Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 24
sept, 8-oct og 9-enn. Frumefni nr. 104 er
til dæmis kallað rutherfordíum (Rf) í
Bandaríkjunum og kurtchatovíum (Ku) í
Rússlandi, en kerfisbundna nafnið er
„unnilquadíum“ (unq, un=l, nil=0 og
quad=4; -íum endingin táknar málm). A
sama hátt verður frumefni nr. 105 að
„unnilpentíum" (unp). A vegum IUPAC
starfar nefnd um nafngiftir í ólífrænni
efnafræði og það er í verkahring hennar að
koma með tillögur að nöfnum frumefna. í
ágúst 1994 samþykkti þessi nefnd að
leggja til við IUPAC að eftirfarandi nöfn
yrðu tekin upp fyrir frumefni nr. 104-109:
Nokkru áður, eða í nóvember 1993,
hafði bandaríska efnafræðifélagið sam-
þykkt að nota í Bandaríkjunum mjög svip-
aðan lista. Helsta ágreiningsefnið virðist
vera að bandarísku vísindamennírnir
höfðu samþykkt að nefna frumefni nr. 106
seaborgíum (Sg) til heiðurs Nóbelsverð-
launahafanum Glenn Seaborg en IUPAC
nefndin samþykkti sem almenna við-
miðunarreglu að nefna ekki frumefni eftir
vísindamanni meðan hann væri enn á lífi.
Endanleg ákvörðun verður tekin á fundi
IUPAC á síðari hluta árs 1995.
■ LOKAORÐ
Hér hefur verið fjallað ufn líklegan upp-
runa nokkurra nafna frumefnanna. Raktar
hafa verið orðsifjafræðilegar skýringar
nafnanna, en þær skýringar eru þó fjarri
því að vera einhlítar. Eftir stendur vonandi
tilfinning fyrir þeirri spennu sem örugg-
lega fylgir því að einangra fyrstur manna
nýtt frumefni og fá tækifæri til að stinga
upp á nafni þess.
Það er skoðun greinarhöfundar að auka
megi áhuga nemenda í framhaldsskólum á
efnafræði með því að setja fræðigreinina í
sögulegt og jafnvel málvísindalegt sam-
hengi. Þessi grein er vonandi lóð á þá
vogarskál.
ÞAKKARORÐ
Eftirtaldir fá kærar þakkir fyrir aðstoð við gerð
myndefnis: Hjörtur Einarsson, Lúðvík Kalmar
Víðisson og Svana H. Stefánsdóttir. Þá fær
Bókaútgáfan Iðunn þakkir fyrir að leyfa
birtingu mynda úr bók Peter Madsen & Hans
Rancke-Madsen Úlfurinn bundinn.
■ HELSTU HEIMILDIR
Árni Bjömsson 1993. Saga daganna. Mál og
menning, Reykjavík.
Crosland, M.P. 1962. Historical studies in the
language of chemistry. Harvard University
Press.
Dóra Hafsteinsdóttir og Sigríður Harðardóttir
(ritstj.) 1990. íslenska alfræðiorðabókin I-
III bindi. Örn og Örlygur hf„ Reykjavík.
Gibson, M. 1979. Goð, menn og meinvættir úr
grískum sögum. Sigurður A. Magnússon
þýddi. Bókaforlagið Saga, Reykjavík.
Greenwood, N.N. & A. Earnshaw 1984.
Chemistry of the elements. Pergamon Press,
England.
James, J.L. (ritstj.) 1993. Nobel laureates in
chemistry 1901-1992. American Chemical
Society and the Chemical Heritage Founda-
tion.
Madsen, P. & H. Rancke-Madsen 1979. Úlfur-
inn bundinn. Goðheimar 1. Iðunn, Reykja-
vík.
Ringnes, V. 1989. Origin of the names of
chemical elements. Journal of Chemical
Education, bls. 731-738.
Simek, R. 1993. Hugtök og heiti í norrænni
goðafceði. Ingunn Ásdísardóttir þýddi,
Heimir Pálsson ritstýrði. Heimskringla,
Háskólaforlag Máls og menningar, Reykja-
vík.
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Jón K.F. Geirsson
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 3
107 REYKJAVÍK
254