Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1995, Qupperneq 22

Náttúrufræðingurinn - 1995, Qupperneq 22
kenningu sína. Orðið oxy-gen er rakið til grísku orðanna oksys (=sýra) og gen (- að framleiða, framleiðandi), þ.e. oxy-gen þýðir „sýru-framleiðandi“. Uppgötvun niturs árið 1772 er yfirleitt eignuð Daniel Rutherford, þó bæði C.W. Sheele og H. Cavendish hafi einangrað lofttegundina um svipað leyti. Lavoisier nefndi frum- efnið a-zote sem þýðir „ekkert líf ‘ eða „án lífs“, vegna þess að dýr dóu ef þau önduðu að sér lofti sem innihélt ekkert súrefni. Orðið köfnunarefni, á dönsku kvælstof og á þýsku Stickstoff, vísar til sama eigin- leika. Árið 1790 lagði Fransmaðurinn Jean-Antoine-Claude Chaptal til að franská nafnið fyrir þessa lofttegund yrði nitrogéne. Nafnið kemur úr grísku eins og azote, þ.e. niter sem þýðir saltpétur og gen (framleiðandi). Raunar er það svo að þótt tillaga að orðinu nitur/nitrogen sé frönsk að uppruna virðist orðið azote hafa lifað lengst í Frakklandi. Leifar af þessu gamla orði má enn finna í nöfnum efnasambanda sem innihalda virka hópinn -N=N-, nefnd azo-efnasambönd. Nafn vetnis, hydrogen, er samsett á hliðstæðan hátt, þ.e. úr grísku orðunum hydros (vatn) og gen: Þegar vetni brennur myndast vatn. 9. FLOKKUR Sérsnidin nöfn I þessum flokki eru sextán frumefni: akt- iníum, argon, astatín, bismuth, dyspros- íum, krypton, lanþanum, liþíum, neodym- íum, neon, praseodymíum, protaktiníum, 10. mynd. Nafn iridíums er dregið af gríska orðinu iris sem þýðir regnbogi. Myndin sýnir hvar Þór og Loki hafa fundið hina hverfulu himnabrú Bifröst eða regnbogann og geta því snúið heim í Asgarð. Teikning eftir Peter Madsen (Madsen & Rancke-Madsen 1979). radíum, radon, technetíum og xenon. I þennan flokk eru saman- dregin ýmis frumefni sem standa eiginlega utan við aðra flokka. Frumefnunum er sameiginlegt að nöfn þeirra eru samsett og sérsniðin nýyrði, flest smíðuð utan um grískan eða latneskan orðstofn. Nánari umfjöllun um eðallofttegundimar og nokkur geislavirk frumefni mun skýra þetta betur. Árið 1835 kom Michael Faraday fram með ýmis nýyrði til notkunar í efnafræði. Nýyrðin hafði hann búið til úr hinum klassísku tungumálum grísku og latínu, orð eins og jón (,,ion“), katóða (,,cathode“) og rafgreining („electrolysis"). Sama verklag var viðhaft þegar eðallofttegund- irnar fundust, þ.e. nöfn þeirra eiga sér gríska eða latneska orðstofna. Tveir vís- indamenn, William Ramsay og John W.S. Rayleigh barón, uppgötvuðu hvor í sínu lagi árið 1894 að andrúmsloftið innihélt eitt efni í viðbót við súrefni og köfnunar- efni. Þeir lögðu til að nýja frumefnið yrði nefnt „aeron“, leitt af aer (loft). Gagnrýn- endur þessa nafns bentu á að það væri of líkt nafni Arons (Aarons) úr biblíunni en samþykktu orðið argon sem þýðir latur eða hvarftregur (úr grísku: a-ergon = engin vinna). Nokkrum árum síðar, árið 1898, voru krypton, neon og xenon uppgötvuð og fengu öll sérsniðin nöfn. Þegar búið var að eima burt súrefni, köfnunarefni og arg- on úr fljótandi lofti var enn eitt frumefni falið í vökvanum, nefnilega krypton, leitt af gríska orðinu kryptos - falinn. Enn ein eðallofttegund, neon, uppgötvaðist í fljót- andi lofti, stuttu á eftir krypton og argon. Nafnið kemur einnig úr grísku (neos - nýr) 252
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.