Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 51

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 51
SlGURÐUR H. PÉTURSSON Minningarorð Sigurður Pétursson gerla- fræðingur lést í Reykjavík þann 15. desember 1994 á átttugasta og áttunda aldurs- ári. Sigurður lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1929 og stundaði síðan nám við háskóla í Kiel, Leipzig og Kaupmannahöfn. Hann lauk dr.phil.-prófi í tæknilegri gerlafræði frá háskólanum í Kiel árið 1935. Sigurður var einn af frum- herjum í örverurannsóknum hér á landi. Hann hóf störf sem eftirlitsmaður með mjólk hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík 1935 og starfaði þar í tíu ár. Frá árinu 1937 starfaði hann við gerlarannsóknir hjá Iðnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans. Gerlarannsóknastofa Iðnaðardeildar var síðar sameinuð rannsóknastofu Fiskifélags Islands sem síðar varð Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Sigurður var deildarstjóri gerladeildar frá 1960 til 1976 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Rannsónir hans í þágu fiskiðnaðarins beindust að einkum að skemmdum af völdum örvera í sölt- uðum sjávarafurðum, s.s. saltfiski og grá- sleppuhrognum. Sigurður Pétursson átti sæti í stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags árin 1946-1955 og var formaður félagsins 1951-1955. Er Sigurður lét af formennsku tók hann við ritstjórn Náttúrufræðingsins og gegndi því starfi í 10 ár, 1956-1965. Aðeins Árni Friðriksson hefur ritstýrt Náttúrufræð- ingnum lengur, eða í 11 ár. Á því 20 ára tímabili sem Hið íslenska náttúrufræðifélag naut krafta Sigurðar urðu miklar breytingar á högum félagsins og einnig á útgáfu Náttúrufræðingsins. Árið 1947 var náttúrugripasafn félagsins afhent íslenska ríkinu og gert að ríkisstofnun. Þar með lauk hinu upprunalega aðalhlut- verki félagsins. Sem fyrr var það megintilgangur félags- ins að fræða íslenska alþýðu um náttúrufræði og var útgáfga Náttúrufræðingsins stærsti þátturinn í þeirri starfsemi. í formannstíð Sig- urðar, var Náttúrufræðingur- inn gerður að félagsriti Hins íslenska náttúrufræðifélags og blaðið stækkað úr 12 örkum í 14 á ári. Hið íslenska náttúrufræðifélag hafði keypt Náttúrufræðinginn árið 1941. Fyrstu árin á eftir voru ritstjóraskipti tíð en því skeiði í sögu tímaritsins lauk er Sigurður settist á ritstjórastól. Hann kom á laggimar fyrstu ritnefndinni og þar með komst útgáfan í núverandi horf. í ritstjórnartíð Sigurðar var alþýðleg fræðsla höfð í há- vegum og sést það glöggt þegar flett er heftum frá þessum tíma. Auk annarra starfa fyrir félagið tók Sig- urður saman höfunda- og efnisskrá yfir 1.-25. árgang Náttúrufræðingsins. Hann skrifaði yfir 60 pistla og greinar í Náttúru- fræðinginn auk fjölda greina í Frey, Ægi og Tímarit Verkfræðingafélags íslands en ritstjóri þess var hann 1946-1949. Eftir Sigurð liggja einnig nokkrar bækur, m.a. urn mjólkurfræði og gerlafræði svo og fyrsta íslenska kennslubókin í líffræði fyrir framhaldsskóla. Var hún notuð til kennslu í mörg ár og er merkt brautryðjandaverk. Sigurður Pétursson var kjörinn heiðurs- félagi í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi 16. febrúar 1985. Með honum er genginn einn hinna ötulustu félagsmanna frá upp- hafi. Útför Sigurðar var gerð frá Garða- kirkju þann 29. desember 1994. Sigmundur Einarsson 281

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.