Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 53

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 53
Skýrsla um hið íslenska NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAG FYRIR ÁRIÐ 1993 amkvæmt lögum Hins íslenska náttúrufræðifélags skal for- maður félagsins birta ' skýrslu um starfsemi þess í Náttúru- frœðingnum árlega. Hefur þessi háttur verið hafður á allt frá árinu 1952 er Náttúrufræðingurinn var gerður að félagsriti en fram til þess hafði tíma- ritið aðeins verið selt í áskrift. ■ FÉLAGAR í árslok 1993 voru félagar og áskrifendur 1552 talsins. Hafði þeim fækkað um 81 á árinu. Heiðursfélagar voru 10, en 3 félags- menn voru kjömir heiðursfélagar á aðal- fundi félagsins 20. febrúar 1993, þeir Jón Jónsson, jarðfræðingur, sem manna mest hefur skrifað í Náttúrufræðinginn, Eyþór Einarsson, grasafræðingur, og Þorleifur Einarsson, jarðfræðingur, en þeir voru báðir um árabil formenn félagsins og þess utan óþreytandi að sinna erindum og þörf- um félagsins á ýmsar lundir. Kjörfélagar voru 7, ævifélagar 19, en almennir félagar innanlands 1265. Skólafélagar voru 63, félagar og stofnanir erlendis 58, en 130 stofnanir innanlands voru áskrifendur að Freysteinn Sigurðsson (f. 1941) lauk Diplomprófi í jarðfræði frá Háskólanum f Kiel í Þýskalandi árið 1974. Freysteinn hefur starfað hjá Orkustofnun æ síðan, einkum við grunnvatnsrannsóknir, neyslu- vatnsrannsóknir og jarðfræðikortagerð. Hann hefur verið formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags frá 1990. FREYSTEINN SIGURÐSSON Náttúrufræðingnum. Á árinu létust 11 félagar, 76 sögðu sig úr félaginu, en 82 félagar bættust við á árinu, þar af 43 skólafélagar. Vegna vanskila um árabil voru 77 félagar strikaðir út af félagaskrá. ■ STJÓRN OG STARFSMENN Á aðalfundi HÍN 20. febrúar 1993 voru stjórn og embættismenn allir endurkjörnir. Stjórn félagsins var 1993 skipuð sem hér segir: Formaður Freysteinn Sigurðsson, varaformaður Hreggviður Norðdahl, gjaldkeri Ingólfur Einarsson, ritari Gyða Helgadóttir, meðstjórnandi Sigurður S. Snorrason. Varamenn í stjórn voru Einar Egilsson og Þóra Elín Guðjónsdóttir. Endurskoðendur voru Magnús Árnason og Sveinn Ólafsson en varaendurskoðandi Ólafur Jónsson. Fulltrúi HIN í Fuglafriðunarnefnd var Agnar Ingólfsson, prófessor, en í Dýra- verndunarnefnd Sigurður H. Richter, líf- fræðingur. Fulltrúi HÍN á Náttúruverndar- þingi 1993 var Freysteinn Sigurðsson, formaður HÍN, en fulltrúar á aðalfundi samtakanna Landverndar voru Freysteinn Sigurðsson og Guttormur Sigbjarnarson. Framkvæmdastjóri félagsins var Guttorm- ur Sigbjamarson, útbreiðslustjóri var Erling Ólafsson en ritstjóri Náttúrufræð- ingsins var Sigmundur Einarsson. Fram- kvæmdastjóri sá um undirbúning að ferð- um félagsins og fræðslufundum, ritstjórn og útgáfu fréttabréfs, undirbúning stjórn- arfunda og annarra fundarhalda, skrif- Náttúnifræðingurinn 64 (4), bls. 283-289,1995. 283

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.