Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1946, Blaðsíða 16

Samvinnan - 01.11.1946, Blaðsíða 16
SAMVINNAN 9. HEFTI hann sé frjáls ef hann hlýðir yfirboðarunum — í þessu tilefni rússneska risanum. Röggsamlegur blaðamaður bandarískur hefir fyrir nokkru skrifað grein í blöð í Ameríku um hina yfir- vofandi árás Rússa á Balkanríkin. Honum farast þar orð m. a. á þessa leið: „Um tveggja alda skeið hafa Rússar átt stærra land en okkar þjóð (Bandar.) og jafn auðugt af málmum og vel fallið til akuryrkju, en samt sem áður er rúss- neska þjóðin fátækari en hinir fátækustu hafa nokkru sinni verið í Ameríku. í þjóðskipulagi Rússa er stefnt að því að taka auðæfin af framleiðendunum. í raun og veru lifa menn á ránum þar í landi. Fyrst rændu Bolsevikar yfirstéttirnar til að koma fótum undir sig fjárhagslega, síðan var farið að ræna framleiðend- urna og loks nágrannaríkin. Þeir báðu um og fengu miljónir dollara með láns og leigu kjörum, að þvi er kallað var til varnar, en var raunar aðeins til undir- búnings árástarstyrjöld síðar. Þessari láns- og leigu- hjálp hefir þó verið haldið dyggilega leyndri fyrir rússneskri alþýðu, því ekki má vekja velvild í brjóst- um alþýðunnar í Rússlandi í garð þess ríkis, sem þegar hefir verið ákveðið að ræna næst. Þeir verða að halda fólkinu í volæði og fáfræði — og skipa að herða nú á sultarólinni til þess að hægt verði að hrinda næstu fimm ára áætlun í framkvæmd. Sú áætlun er aöallega gerð með tilliti til næstu ránsferðar. Margir okkar skammsýnu stjórnmálamenn og prestar, menntaðir í skólum nýtízkunnar, hafa reynt eftir megni að sefa ótta Ameríkumanna með þeirri kenningu, að Rússar muni hætta að sá illgresi sínu, setjast í helgan stein og verða belgfullir umhyggju fyrir hag annarra þjóða. En auðvitað hefir reynslan orðið önnur. Því það er um þá eins og skrifað stendur: „Getur blámaður breytt hörundslit sinum og pardusdýrið flekkjum sin- um?“ Rússar eru nú að reyna að ná því marki, að verða mesti ræningjaflokkur sem sagan getur um og verð- launin sem þeir ætla að veita sjálfum sér fyrir það afrek, er Norður-Ameríka.“ * Ýmsum kann að þykja „strítt talað“ hér hjá hinum ameríska blaðamanni, en höfuðgallinn á engilsax- neskum og norrænum þjóðum er sá að þær reyna í lengstu lög að koma sér hjá að horfa beint framan í sannleikann. Þær eru í eðli sínu ótortryggnar og friðsamar og trúa því ekki að flagð búi undir fögru skinni. Þær vilja heldur láta undan en standa í ill- deilum ef unnt er að komast hjá þeim. Þess vegna mun nú fara fyrir þeim eins og oft áð- ur, þær vakna ekki fyrr en þær standa einar og yfir- gefnar einu sinni enn og eiga á engan að treysta, nema forsjón, sem alltaf hefir verið að bjarga þeim úr vargakjöftum. — Hina miklu sök á því að svona getur farið, eiga hinir svonefndu „frið- arsinnar," sem raunar eru sjaldan annað en leiguþý yfirgangsseggjanna er láta hafa sig eins og dulur til að breiða yfir hinn raunverulega illa tilgang árásar- ríkjanna með lygi flærð og blekkingum. Blaðamað- urinn, sem ég vitnaði til áðan, segir, að nú sé svo komið í Bandaríkjunum að hið nýja stríð sé þegar hafið. Hann segir: „Þetta stríð er háð á vinnustöðvum okkar, það er háð innan ríkisstj órnarinnar, í Madison Square Gai’den, þar sem öldungadeildarfulltrúinn Pepper hélt nýlega uppi málstað Rússlands, og það er háð hér innan ýmissa stofnana, þar sem nýtízku prófessorar og jafnvel prestar boða fagnaðarerindi kommúnismans kinnroðalaust.“ Kommúnistum er nú eins og nazistunum var það áður, lífsnauðsyn að blekkja menn sem allra mest. Þess vegna ofsækja þeir að vonum þá menn mest sem reyna að svifta hræsnis- og lygablæjunni frá augum fólksins. Einræðis agentunum verður sjaldan mikið ágengt fyrr en þeim tekst að blekkja til fylgis við sig óþroskaðar sálir, sem af einhverjum hvötum — eigingjörnum eða óeigingjörnum — gerast svikarar við sína eigin þjóð og ganga til samlags eða samstarfs við erindreka hinnar erlendu ásælni. í augum hvers óspillts manns eru slíkir menn fyrirlitlegri en agentar árásarþjóðarinnai'. Agentai'nir eru að vinna íyrir húsbónda sinn og búast við launum fyrir — uppskera þau ef vel tekst til, en hinir uppskera aðeins í'yrír- litningu sinnar eigin þjóðar hvernig svo sem til teksí. Menn eins og Laval, Kvisling, Kúsinen o. fl. slíkir frá dögum nazismans eru nærtækustu dæmin. * Með þessari grein læt ég af að skrifa í „Samvinn- una“ pistla um utanríkismál — Það hefir verið mér ánægja að skrifa þessar greinar en síðan ég hóf útgáfu á tímaritinu Dagrenning hefi ég átt erfiðara með að leysa þetta verk svo vel af hendi sem ég vildi. Mörgum hafa eflaust mislíkað þessar greinar mínar og er það vel farið, því það er vottur þess að þær hafi vakið menn til umhugsunar, en engin gi'ein er góð nema hún geri það, og þeim sem sofa fast þykir oft vont að vakna. Ég óska svo „Samvinnunni“ alls velfarnaðar í fram- tíðinni. J. G. 248

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.