Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1946, Side 21

Samvinnan - 01.11.1946, Side 21
9. HEFTI SAMVINNAN ur Guðmundsson ann skóla sínum og nemendum skólans með móðurlegri umhyggju. Þetta kemur með- al annars fram í þingskjölum, sem sjaldan geyma rómantísk tilfinningamál. Sigurði skólameistara er, sem von er til, mikið áhugamál að Menntaskólinn á Akureyri fái heimavist úr steini. í skjali til þings- ins í vetur lýsti skólameistari átakanlega brunahætt- unni, sem margir tugir ungra kvenna og karla eiga við að búa á hinum háu timburloftum menntaskól- ans á Akureyri. Þannig ræðir móðir um hugsanlega hættu barna sinna og skólamenn um aðstöðu nem- enda, ef þeir hafa nægilega mikinn áhuga fyrir starfi sínu. En þrátt fyrir margháttaðar annir við skólakennslu og skólastjórn hefur Higurður Guðmundsson ritað í hjáverkum sínum allmargar greinar, flestar um dána vini og sanitíðarmenn. Tónlistarfélagið á Akureyri hefur lagt heppilega lykkju á leið sína og gefið út þessa bók, þó að hún snerti alls ekki tónmennt, held- ur sögu og bókmenntir. Meginkostirnir við ritgerðir Sigurðar Guðmundssonar eru, að þær knýja menn til að hugsa. Höfundinum er alvara, og hann segir lesand- anum hug sinn allan um menn og málefni. í þessum lýsingum eru margar perlur, lauslega samtengdar. En perlurnar eru gersemar, hver fyrir sig, og þær gefa bókinni varanlegt gildi. Sumar æviminningar, eins og um Valtý Guðmundsson og Benedikt Sveins- son, bregða skörpu ljósi yfir þátt í íslandssögu, sem of lítið hefur verið ritað um. Hlut Valtýs Guðmundsson- ar hefur verið allt of lítið haldið á loft, því að hann er brautryðjandi hinna kapitalistisku framfara og framkvæmda á 20. öldinni. Stundum eru sögulegir hómar höf. byggðir á rómantískri aðdáun á einstakl- ingshyggjunni. Rómar hann í því efni menn, sem stinga fyrir sig fótum í mannfélagsmálum, án þess að unnt sé, jafnvel eftir á, að sjá réttmæt tilefni, og vafasamt þykir mér, að skólameistarinn á Akureyri hái mjög í minningum þingmann einn, sem hét skóla hans stuðningi í réttmætri baráttu, en sýndi sjálf- stæði sitt rneð því að bregða fæti fyrir málið, svo að hað féll í það sinn. En bók Sigurðar Guðmundssonar verður ekki réttilega metin eftir einstökum smáat- riðum, heldur heildaráhrifum. Skólameistarinn kemur víöa við, og bregður skörpu ljósi yfir mörg mannleg ^rálefni. Margar af ritgerðum hans minna á kvæði eftir sr. Matthías. Þar er mikill persónukraftur og andríki, en skipulagið ekki í föstum sniðum. Það er roikili ávinningur að þessi bók er út komin, meðal annars til að útskýra gáfu og starfshætti hins mikil- virka brautryðjanda í íslenzkum skólamálum. Helgafell hefur nú gefið út tvö bindi af æviminn- lfigum sr. Árna Þórarinssonar, í þeim búningi, sem Þorbergur Þórðarson hefur viljað veita minningu þe.ssa aldurhnigna prests. Mun von á einni eða tveim bókum af sama tagi. Hér er um að ræða eins konar atvinnubótavinnu fyrir eitt af atvinnuskáldum kom- múnista. Þoibergur Þórðarson vill vera skáld, en hef- ur ekki gáfur til þess. Má glögglega kenna þann van- mátt bæði í Ijóðum hans og Eddu þeirri, er hann samdi. Hins vegar er honum létt um að rita óbundið mál á hversdagslega vísu greindra sjálfmenntaðra manna. Maður, sem vill vera skáld, en vantar skáld- gáfuna, verður að bregða sér á leik við bókaiðjuna. Það gerir Þorbergur í þessu ritverki. Hann tekur að sér að hlusta á sögulegar endurminningar prests, sem kominn er að fótum fram, og mun alla jafna hafa verið nokkuð laus í rásinni í frásögnum sínum. Upp úr þessum samtölum spinnur Þorbergur vaðalskennda viðburðasögu, þar sem getið er fjölmargra dáinna manna og fæstum lagt gott til. Má kalla, að hér sé um eins konar líkrán að ræða, þar sem allt er látið fjúka um menn, sem eru löngu liðnir, og fá ekki að hvíla í ró í gröf sinni fyrir málskrafshneigð tveggja lausmálgra manna. Af niðurlagi síðara bindis þessa verks, er helzt að sjá, að næsta bók eigi að verða sam- safn ádeilu-atriða um fólk í söfnuðum þeim, þar sem sr. Árni Þórarinsson var lengi þjónandi prestur. Má segja, að þær kveðjur fari ekki illa í bók, þar sem koinmúnisti heldur á pennanum fyrir gamlan þjón þjóðkirkjunnar á íslandi. Bókfellsútgáfan hefur gefið út í vandaðri útgáfu hina frægu bók Eiríks bónda á Brúnum, ferð hans til Kaupmannahafnar, og sögusagnir hans um dvöl hans í mormónafylkjum í Bandaríkjunum og baráttu hans fyrir þeim trúarbrögðum hér á landi gegn einbeittri mótstöðu hinna helztu kennimanna í landinu. Er skemmst af því að segja, að bók Eiríks er dýrgripur í íslenzkum bókmenntum. Eiríkur var sunnlenzkur bóndi, hefnr aldrei notið nokkurrar skólagöngu eða hjálpar til muna frá mannfélaginu. Þegar Eiríkur er miðaldra maður bregður hann sér í ferðalag til Kaup- mannahafnar, gengur fyrir konung að sið forn- manna og kynnist fleiri fyrirmönnum. Síðan ritar Ei- ríkur um ferð sína og mun sú ferðasaga lengi í minn- um höfð. Lýsir hann ferðalaginu, stórborgum og mönnum, sem hann kynntist með svo mikilli ná- kvæmni og skarpleika, að furðu gegnir. Engin mynd er til í íslenzkum bókmenntum, sem sýnir betur en ferðasaga Eiríks frá Brúnum þá andlegu færni, sem bændastéttin hafði til að bera, þegar hið nýja frelsi, vélavinnnan og bæjamenningin heldur innreið sína í íslenzkt þjóðlf. Þegar menn lesa bók Eiríks á Brún- um, sem hafði verið mjög afskiptur um bóklega að- stöðu, en er þó mikill rithöfundur, er fengin glögg 253

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.