Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1946, Page 22

Samvinnan - 01.11.1946, Page 22
SAMVINNAN 9. HEFTI sönnun fyrir því hvernig mjög fullkomnar bókmennt- ir urðu til í íslenzkum torfbæjum, við kertaljós og lýsistýru. Þar voru að verki íslenzkir sveitamenn. Hið öfluga norræna eðli, bókmenntahneigð kyn- stofnsins, hin stórfengilega náttúra landsins og hin margbreyttu störf á íslenzku sveitaheimili, gerðu íslenzku þjóðina að rithöfundum og skáldum. Eiríkur á Brúnum var fylgdarmaður Kristjáns konungs IX., þegar hann kom hingað til lands með stjórnarskrána 1874. Þó að sú stjórnarbót væri skorin við nögl frá hálfu Dana, var hún samt upphaf hins nýj a tíma á ís- landi. Sú kynslóð, sem tók við þeirri stjórnarskrá, var steypt í sama móti og Eiríkur á Brúnum. Hún bar lítt skyn á vatnsleiðslur og götuljós í stórborgum. Ekki kunni hún heldur góð skil á leikmennt og trúð- listum mannmargra borga. En í Eiríki á Brúnum og samtíð hans var fólginn hinn þjóðlegi arfur og hin fullkomna bókmenntatamning þjóðarinnar. Úr þess- um efnivið mátti gera allt, sem nútímatækni heimtar. Bezt sést þetta ef til vill ef litið er á skáldskap og ritmennsku. Öldum saman hefur nálega öll listagáfa þjóðarinnar orðið að falla í einn fraveg, stuðlamál og sögulega frásögn. Síðan 1874 hafa íslendingar, auk Ijóðskálda, eignazt söguskáld, leikritaskáld, ágæta leikara, tónskáld, söngvara, málara, myndhöggvara og byggingameistara, auk tiltölulega jafnmikillar starfsskiptingar varðandi flestöll merkileg viðfangs- efni. Bók Eiríks á Brúnum er þess vegna einn hinn bezti lykill að nútímasögu landsins. Þeir, sem kynna sér þessa bók með gaumgæfni, eiga auðvelt með að skilja hvernig íslenzka þjóðin hefur með ótrúlegum hætti megnað að endurreisa þjóðveldið og fjölþætt líf, byggt á véltækni nútímans, á rústum margra alda kúgunar og vanræktar undir forræði tveggja ná- skyldra frændþjóða. Bókfellsútgáfan sendi, auk Eiríks á Brúnum, aðra og ennþá stærri sögulega heimild á bókamarkaðinn. Það er feröasaga Jóns Indíafara. Er það verk í tveim bindum, pappír og prentun er hvorttveggja vandað, en fræðimennskuísinn er að jafnaði ekki laus við vakir þar sem Guðbrandur Jónsson er að verki, en hann hefir annazt hið bókfræðilega starf við út- gáfuna. Jón Indíafari fór ungur í siglingar og kom víða við. Hann var um stund í her Dana og fór í fylgdar- liði konungs bæði um Danmörku og Noreg. Jón kom til margra landa, en mest var ferð hans austur til Indlands, og er í ferðabókinni hermt frá ævintýrum hans í þessari eftirminnilegu ferð. Jón Indíafari fylgdi í spor fornmanna og settist að í ættlandi sínu eftir að hann hafði fullnægt ferða- löngun sinni. Ritaði hann eftir minni frásögu þá sem nú er í fyrsta sinni gefin út á íslandi. Bókfellsútgáfan á skilið þökk lesandi manna á íslandi fyrir að hafa notað veltiár bókgerðarinnar hér á landi til að gefa út bækur sem gott er að hafa við höndina, en sem torvelt hefði verið að gefa út á mögrum árum. Ferðabók Jóns Indíafara er merkileg söguheimild um- líf, hugsunarhátt og málfar á 17. öld. Hver slík bók bregður birtu yfir tímabilið, sem mót- aði höfund þann, sem hefur óafvitandi gert nokkurs- konar kvikmynd af sjálfum sér og samtíðarmönnum sínum. Bókaverzlun Finns Einarssonar í Reykjavík hefur gefið út litla og fjöruga bók eftir Gísla Halldórsson verkfræðing. Gísli Halldórsson er Skaftfellingur að ætt, sonur Halldórs Guðmundssonar, sem lagði stund á raffræði og kom hinum mörgu ágætu Skaftfelling- um á sporið, með því að beizla bæjarlækina, án veru- legrar aðstoðar frá stofulærðum kunnáttumönnum. Gísli er gæddur hinni sömu innri óró, sem einkennir Skaftfellinga Hann glímir stöðugt við nýjungar, ekki sízt í sambandi við kælitæki. í þessari bók kennir margra grasa. Þar er sagt frá námsárum höfundar, frá ferðum hans um fjarlæg lönd, og frá draumum hans um tækniframfarir ókominna alda. Minnir Gísli þar á H. G. Wells og hinar miklu draumsýnir hans. „Á ferð og flugi“ er hressandi kver, en einna merkileg- ast í sambandi við rithöfundarstarf Gísla Halldórs- sonar er að finna hinn skaftfellska uppruna, sem gægist hvarvetna fram í orðum og athöfnum hins um- brotafúsa unga verkfræðings. Bók hans er hressandi og vekjandi fyrir ungu kynslóðina, sem dreymir um hraða og véltækni og vill tengja gamla tímann með öllum hans margbreyttu minningum við atomöldina. Langt er liðið síðan Ben. Gröndal skáld sagði: „Hver kenndi Snorra Sturlusyni og Einari í Nesi að skrifa?“ Spurningu skáldsins hefur ekki enn verið svarað, en líklega hefur íslenzk náttúra og íslenzkt sveitalíf ver- ið áhrifamesti kennari íslenzkra rithöfunda. Einar Ásmundsson í Nesi í Höfðahverfi var frægur maður fyrir andlegt atgerfi. Einar átti bróður, sem Gísli hét, og bjó undir hárri skógivaxinni hlíð norðanvert við Fnjóská. Gísli átti mörg börn og mannvænleg. Elztur af sonum haps var sr. Ásmundur, sem þjónaði um langa stund prestaköllum í Svartárdal í Húna- þingi og Fnjóskadal í Þingeyjarsýslu. Þegar aldur færðist yfir sr. Ásmund hætti hann prestsskap og flutti til Reykjavíkur. Hann gaf út í haust sem leið dálítið safn af sjálfstæðum ritgerðum. Hann nefndi bókina: „Á ferð“. Höfundurinn hefur áreiðanlega fundið að mjög væri farið að halla degi og brátt gæti verið komið að leiðarlokum. Fáum vikum eftir að 254

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.