Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1946, Side 30

Samvinnan - 01.11.1946, Side 30
SAMVINNAN 9. HEFTI Hvað þarf maðu eftir Leo 1. Kona nokkur, sem átti heima í borg, heimsótti einu sinni yngri systur sína, sem bjó í sveit. Eldri systirin var gift smákaupmanni í borginni, en hin gift bónda í sveitaþorpi. Á meðan þær sátu yfir tedrykkju, fór eldri systirin að stæra sig af því, hversu henni liði vel í borginni. Hvað þau hjónin hefðu stórar og fallegar stofur, hversu fínt hún klæddi sig og börnin, hvað þau hefðu gott að borða og drekka, og hversu vel hún skemmti sér á sýningum, leikhúsum, og við fleiri skemmtanir. Yngri systurinni gramdist, og fór að tala með lítils- virðingu um líf verzlunarmanna í borgum, en hrós- aði aftur hinu fábreytta sveitalífi. „Ég vildi ekki skipta á mínum lífskjörum og þín- um,“ sagði hún, „því þótt við lifum fátæklegu lífi, þá höfum við litlar áhyggjur. Þú lifir nú ríkmann- legu lífi, en heppnin verður sífellt að fylgja þér, svo þú missir ekki af því. í dag ert þú rík, en á morgun ert þú ef til vill betlari á götunni. Sveitalíf okkar er þó að minnsta kosti öruggara. Við lifum óbrotnu lífi, en líður samt vel. Við munum aldrei verða rík, en ávallt hafa nóg fyrir okkur.“ „Nóg,“ — sagði eldri systirin. „Já, ef til vill mun- uð þið hafa nóg, — til að draga fram lífið líkt og kálf- ar og svín, en þið hafið engin þægindi, ekkert fé- lagslíf, enga siðmenningu. Hversu mikið sem þinn góði eiginmaður vinnur, þá munuð þið lifa og deyja í sorpinu, og börnin ykkar á eftir.“ „Hvað gjörir það til,“ sagði yngri systirin. „Þetta er okkar líf. Við erum þó að minnsta kosti örugg. Við þurfum ekki að beygja kné okkar fyrir neinum, og óttumst engan. Þið í borginni lífið mitt í heimi freistinganna. í dag leikur allt í lyndi fyrir þér, en á morgun getur fjandinn komið í líki einhvers, sem freistar manns þíns, — með spilum, víni, eða konu, svo allt er tapað. — Er þetta ekki satt?“ Húsbóndinn Pakhom lá á bekknum, og hlustaði á tal kvennanna.“ Þetta er heilagur sannleikur," sagði hann „Þeim, sem hefur stritað við að yrkja jörðina allt frá barnæsku, kemur ekki í hug aö gjöra neinar vitleysur. Hið eina sem okkur vantar, er dálítið meira landrými. Ef við ættum eins mikið land og við vildum, skyldi ég ekki óttast neitt, jafn vel ekki djöfulinn sjálfan." rinn mikið land? Tolstoy. Konurnar luku við að drekka teið sitt, töluðu dá- litla stund um fötin sín, tóku því næst af borðinu, og gengu síðan til hvílu. En djöfullinn hafði húkt út í horni, og heyrt allt sem fram fór. Honum var skemmt, þegar hann heyrði, að konan hafði komið bónda sínum til að raupa um það, að ef hann hefði nóg land, gæti hann boðið heim- inum byrginn, jafnvel djöflinum sjálfum. „Gott og vel, við þig vil ég eiga viðskipti. Ég skal gefa þér nægilegt landrými. Þannig skal ég krækja í þig“. II. Nálægt þorpinu bjó aðalsfrú nokkur sem átti 300 ekrur lands, sem lá að landi bændanna. Gott sam- komulag var á milli hennar og þeirra, og lék hún þá aldrei grátt í viöskiptum. En dag nokkurn, réði hún til sín gamlan hermann fyrir ráðsmann, og byrjaði hann að angra bændurna með ýmsum kröfum. Pakhom var eins aðgætinn og mögulegt var, en alltaf fannst annað hvort hestur í höfrunum, eða kýr sem ranglað hafði inn í garðinn, eða þá kálfar fundust á engjunum, og alltaf krafðist ráðsmaðurinn skaðabóta. , Pakhom borgaði bæturnar, en nú voru stöðugt bar- smíðar og skammir á heimilinu, og samkomulagið við ráðsmanninn var hið versta, og hann var feginn þegar sá tími kom að gripirnir voru teknir í hús um haustið. Hann sá eftir fóðrinu, en þá mundi hann þó hafa frið. Um veturinn breiddist út sá orðrómur, að frúin ætlaði að selja land sitt, og að gestgjafinn í kránni við þjóðveginn vildi kaupa það. Við þessar fréttir urðu bændurnir mjög áhyggju- fullir. Þetta verður verra og verra sögðu þeir. Ef gestgjaf- inn fær landið mun hann mergsjúga okkur með skaðabótum, ennþá meir en frúin. Viö getum ekki lifað án landsins, og við erum umkringdir af því á allar hliðar. Ráðamenn þorpsins gengu nú á fund aðalsfrúar- innar, og báðu hana um að selja ekki gestgjafanum landið, heldur selja þeim það, og lofuðu að greiða hærra verö fyrir það. Aðalsfrúin samþykkti þetta. Þá reyndu bændurnir að mynda með sér samtök um að kaupa landið í sameiningu. Þeir héldu nokkra fundi, en gátu aldrei komist að neinni niðurstöðu, heldur 262

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.