Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1946, Blaðsíða 31

Samvinnan - 01.11.1946, Blaðsíða 31
9. HEFTI SAMVINNAN lenti allt í þrætum. Loks ákváðu þeir að hver og einn skyldi kaupa eins mikið land og hann gæti. Aðalsfrúin samþykkti þetta einnig. Nokkru síðar frétti Pakhom að nábúi hans hafði keypt 60 ekrur og að aðalsfrúin hefði samþykkt að lofa honum að greiða helming verðsins á tveim árum. Pakhom gerðist nú öfundsjúkur. Þeir kaupa allt landið hugsaði hann, en ég fæ ekkert. Svo ræddi hann málið við konu sína. „Allir kaupa“, sagði hann, „við verðum einnig að kaupa 30 ekrur, við megum til“. Ella mun óðalsbóndinn rýja okkur inn að skyrtunni með sífelldum skaðabótum. Þau fóru nú áð athuga efnahag sinn, og komust að raun um, að þau áttu 100 rúblur. Svo seldu þau folaldið sitt, og helming býflugnanna. Auk þess lánuðu þau son sinn í vinnu, og fengu á þennan hátt peninga fyrir hálfu land- verðinu. Þegar Pakhom hafði þannig peningana í höndun- um valdi hann sér 50 ekrur, en sumt af því var skóg- lendi. Síðan hélt hann á fund aðalsfrúarinnar til þess að gjöra samninginn, og urðu þau ásátt um efni hans, og Pakhom greiddi nokkra upphæð til að festa kaupin. Síðan fóru þau til borgarinnar og fengu samn- inginn gjörðan, og Pakhom greiddi helming verðsins og lofaði að greiða afganginn á tveimur árum. Svo byrjaði Pakhom að búa á sínu eigin landi. Hann fékk lánað sáðkorn, og sáði í nýja akra og fékk mikla uppskeru. Á einu ári borgafei hann allar skuldir, bæði aðals- frúnni og mági sínum. Hann var orðinn jarðeigandi. Hann plægði og sáði jörð sína, og beitti gripum sín- um, á sitt eigið graslendi, og sló sitt eigið hey, og feldi tré í sínum eigin skógi. Hvenær sem hann gekk út að plægja jörðina, sem nú var hans eigin eign, oða til að líta eftir ökrum og engi, fylltist hjarta hans aí gleði. Honurn fannst grös og blóm á sínu landi, ólík þeim sem uxu á landi nábúans. Áður fyrr, þegar svo vildi til, að hann átti leið um þetta landsvæði, hafði hann ekki séð neitt frábrugðið við það, en nú var það alveg óvenjulegt, og ólíkt öllu öðru í hans augum. III. Þannig leið tíminn, og Pakhom var hamingjusam- ur> og allt hefði leikið í lyndi, ef bændurnir hefðu ekki byrjað að sýna honum yfirgang með því, að beita akra hans og engi. Hann kvartaði, og varaði Þá við aftur og aftur, en ekkert dugði. Einn daginn létu nautahirðarnir gripina vaða um engið. Næstu nótt brutust hestarnir út úr girðingunni, og tróðu niður hveitið. Pakhom rak gripina burtu hvað eftir anhað án þess að leita réttar síns, en að síðustu þreyttist hann á þessu, og hélt á fund héraðsdómar- ans og kvartaði. Hann vissi að bændurnir veittu hon- um ekki þennan átroðning af ásettu ráði, heldur vegna þess að þeir höfðu of lítið landrými. En hann hugsaði með sér. „Ég get ekki látið þetta viðgangast, því þetta endar með því, að þeir eyðileggja fyrir mér jörðina. Þeir þurfa að fá áminningu. Svo kærði hann þá fyrir héraðsdómaranum, og nokkrum bændum var stefnt, og þeir dæmdir til að greiða skaðabætur. Þá urðu bændurnir reiðir, og fóru nú að áreita Pakhom af ásettu ráði. Einn þeirra fór að nóttu til í skóg hans, og feldi tólf linditré fyrir honum, flysjaði af þeim börkinn til þess að gjöra úr þeim skó. Næst þegar Pakhom átti leið urn skóginn, sá hann birtu á milli trj ánna á einum stað. Hann gekk þangað og sá þá hin föllnu tré liggja á jörð- inni, og höggna trjástofna standa upp á milli þeirra. „Hefði óþokkinn skilið eitt tré eftir í hverjum klasa, og höggvið aðeins þau yztu“, hugsaði hann með sér. En það var öðru nær, trén voru öll höggvin á einum stað. Pakhom var hamslaus af reiði. Ó, hugsaði hann. Ef ég aðeins gæti vitað hver hefir gjört þetta, skyldi sá hinn sami fá makleg málagjöld. Hann braut heil- ann. Hver gat þetta verið? Það hlýtur að vera Símon, sagði hann við sjálfan sig að lokum, það er enginn annar en hann. Svo flýtti hann sér heim til Símonar, og horfði þar í hvern krók og kima, en sá hvergi börk, en reifst svo við Símon út af engu. Eftir þetta var hann ennþá vissari en áður, um að hann hefði framið verknaðinn. Hann hélt því rakleitt til dómarans. Símon var yfirheyrður aftur og aftur, en að lokum var hann sýknaður, því engar sannanir fengust. Pakhom var nú reiðari en nokkurn tíma áður, og skammaði bæði dómarana og ráðamenn þorpsins. „Þið haldið hlífiskyldi yfir þjófum,“ sagði hann. „Ef þið væruð heiðarlegir sjálfir, munduð þið ekki sýkna þá.“ Þannig skammaði Pakhom dómarann og þráttaði við nábúa sína, en þeir síðarnefndu hótuðu jafnvel að kveikja í húsi hans og skógi. Það var rýmra um Pakhom en áður á býli hans, en samt var þrengra um hann í heiminum. Um þetta leyti heyrðist sagt, að fólk væri aö taka sig upp, og nema ný landsvæði. Pakhom hugsaði með sér: Ég kæri mig nú ekki um að yfirgefa jörð mína, en ef einhverjir flytja burt, yrði rýmra um mig hérna. En dag nokkurn er Pakhom var heima hjá sér, bar þar að garði ferðalang. Honum var borinn mat- ur, og gisti hann þar um nóttina. Hjónin spurðu hann tíðinda, og hvaðan hann kæmi. Bóndinn kvaðst koma sunnan að — frá Volgu, þar sem hann hefði 263

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.