Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1946, Blaðsíða 38

Samvinnan - 01.11.1946, Blaðsíða 38
SAMVINNAN 9. HEFTI að þenja vald sitt út til smærri borga og þorpa. And- spyrnan var hörð. Og 20. desember 1917 lífgaði Lenin við hina gömlu stofnun, sem ívan grimmi hafði beitt á svo áhrifamikinn og hræðlegan hátt: leynilög- regluna Oprichina. Lenin nefndi hana Cheka. Hún tók brátt til starfa af sama hlífðarleysi og hin fyrri og kom brátt á „rauðri ógnarstjórn“, sem keyrði iangt úr hófi fram. Þannig farast sagnfræðingnum Ver- nadsky orð' „Þau grimmdarverk, sem framin voru á þessu tíma- bili, voru ekki einstök dæmi um misbeitingu valdsins. Hin „rauða ógnarstjórn“ var viðurkenndur og ákveð- inn þáttur í því að oka þjóðina undir bolshevismann. Lenin lýsti sjálfur yfir því, að „ekki væri hægt að hugsa sér neina stjórn öreigaríkisins án ógnar og ofbeldis.“ Leynilögreglan starfaði með hlífðarlausri hörku. Svo átti að heita, að starfsemi hennar beind- ist gegn auðmönnunum einum. En sannleikurinn var sá, að leynilögreglan upprætti alla sem grunaðir voru um andstöðu við ráðstjórnina. Fórnarlömbin voru bændur og stundum jafnvel verkamenn. . . Vetur- inn 1917—’18 tókst Bolshevikum að ná stjórnarbákn- inu algerlega undir sig, með því að beita til hins ítr- asta leynilögreglunni, Rauðahernum og hvers konar öðrum meðulum sem föng voru á.“ Bráðabirgðastjórnin hafði undirbúið frjálsar kosn- ingar til stjórnlagaþings, og fóru þær fram 25. nóv- ember 1917, 18 dögum eftir að kommúnistar höfðu tekið völdin í Pétursborg. Af 703 kjörnum fulltrúum voru aðeins 168 kommúnistar. Þingfulltrúarnir komu saman í Pétursborg í janúar 1918. Samstundis létu kommúnistar handtaka alla þá fulltrúa, sem ekki voru sósíalistar. En þrátt fyrir það höfðu byltingarsósíal- istar enn meiri hluta í þinginu og kusu Chernov til forseta, en hann var andstæðingur kommúnista. Tveim dögum síðar sendi Lenin hersveitir, vopnaðar rifflum og vélbyssum, til þingsins og leysti það upp. Var þá úti öll von um lýðræði í Rússlandi. Upp frá þessu var stjórn Sovétríkjanna augljóslega einræði íoringja Kommúnistaflokksins. Lenin gerði vopnahlé við Þjóðverja í desember 1917 og samdi sérfrið við Þýzkaland í marz árið eftir til þess að forða Ráðstjórninni frá hruni af völdum stríðsins. Þetta gerðist þvert á móti samningum Rússlands við bandamenn sína um að semja ekki sérfrið. Og til að koma í veg fyrir, að hungraður lýðurinn steypti stjórn hans, sendi Lenin her og lögreglu til að taka korn af bændum og flytja til nauðstaddra borga. Hann úthlutaði brauði gegn skömmtunarseðlum á þann hátt, að það varð hið öflugasta vopn í stjórnmálabaráttunni. Skömmtun- arseölar voru veittir lögreglumönnum, liðsmönnum í Rauðahernum, meðlimum Kommúnistaflokksins og verksmiðjumönnum, og iðnaðarmenn og atvinnuleys- ingjar fengu dálítinn sultarskammt. Aðrir fengu ekkert. Þessar athafnir björguðu einræði Lenins. En þær vöktu jafnframt andspyrnu, sem lá við að kollvarp- aði því. Bændurnir voru æfir yfir missi korns síns og tóku að veita íögreglu og her viðnám með vopn- um. Öll lýðræðisöfl í Rússlandi voru ofsareið yfir upplausn stjórnlagaþingsins og morðum allra þeirra, sem stjórnin taldi andstæðinga sína. Borgarastríð brauzt út. Auk þess hafði sérfriður Lenins við Þýzkaland vakið megna andúð meðal bandamanna. Firnamiklar birgðir af vopnum og skotfærum, sem Bandamenn höfðu sent rússneska hernum, voru geymdar í Mur- mansk og Arkangelsk og Kyrrahafshöfninni Vladivo- stok. Bandamenn vildu með engu móti láta þessar birgðir komast í hendur þýzku stjórninni eða Ráð- stjórninni. í apríl 1918 voru smáhersveitir frá Banda- mönnum settar í land í Murmansk og skömmu síðar á hinum höfnunum. Bandamenn reyndu ekki að halda til Leningrad eða Moskvu. En samt sem áður nutu rússneskar hersveitir nokkurs stuðnings frá þeim til árása á lið kommúnista, og vorið 1919 var svo komið, að kommúnistar höfðu misst meira en þrjá fjórðu hluta Rússlands. Þá sendi Ráðstjórnin sendifulltrúa Bandaríkjanna í Moskvu tilboð um að semja frið, með þeim hætti að hlutföll yfirráðasvæð- anna héldust óbreytt. Þessu tilboði var hafnað á friðarráðstefnunni í París. Jafnframt neituðu Banda- menn að senda frekari liðstyrk til að berjast gegn Ráðstjórninni. Að lokum tókst kommúnistum að brjóta landa sína á bak aftur og ná öllu ríkinu á vald sitt. Þá hafði styrjöld, pyndingar, morð, hung- ur og sjúkdómar svelgt ótölulegan grúa mannslífa. Allan þennan tíma hafði Lenin ekki reynt að dylja þá staðreynd, að alþjóðhreyfingu kommúnista væri stjórnað af Ráðstjórninni. Hann tók opinberlega þátt í þingum Alþjóðasambands kommúnista og var hinn dáði leiðtogi þess. Fram á þennan dag hafa kommúnistaflokkar allra landa lotið einræðisstjórn Sovétríkjanna. En eftir dauða Lenins 1924 reyndi Ráðstjórnin að gera vináttu-samninga við grann- ríkin, og þá rakst hún óþægilega á þá staðreynd, að hún stjórnaði fimmtu herdeildum í öllum þessum lcndum. Stalin hafði gerzt einræðisherra eftir harða baráttu við Trotsky, og vald hans yfir Ráðstjórn- inni, Kommúnistaflokknum, leynilögreglunni og Ai- þjóðasambandinu varð algjört. Hann tók þátt í þing- um sambandsins og réð þar einn öllu. Þá var ekki hægt að neita hlutdeild hans í Alþjóðasambandinu, 270

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.