Samvinnan - 01.02.1970, Qupperneq 51
lögfræðinga sé mjög bundin fortíðinni, for-
dæmum frá liðinni tíð, sögulegri hefð og
hefðbundnum skilningi og túlkun. Þannig
má til sanns vegar færa, að lögfræðingar séu
sem stétt flestum öðrum verr fallnir til að
móta og stýra þjóðfélagi, sem er í gerjun
og örri þróun. Þeir eru hemill á allar breyt-
ingar og framþróun í krafti menntunar
sinnar og þjálfunar. Essið þeirra er status
quo. Þarf því engan að undra þó þjóðfélag,
sem jafnlengi og staðfastlega hefur mótazt
af lögfræðingum, sé staðnað og ófrjótt. Það
liggur beinlínis í hlutarins eðli.
Dýrkun fortíðar og fordæma úr sögunni
á sér hliðstæðu í dýrkun gamalla manna,
sem „búa yfir lífsreynslu“, einsog það er
gjarna orðað. Ekki kemur mér til hugar að
gera lítið úr gildi lífsreynslu eða þeirrar
þjálfunar, sem langur starfsdagur veitir. Hitt
mun þó vera jafnsatt, að mannkindin sé
þannig af guði gerð, að frumkvæði hennar,
framtak og andlegt frjómagn taki mjög að
dofna þegar árin færast yfir. Menn gerast
gjarna með aldrinum makráðir og andvígir
hverskonar nýjungum eða framþróun. Þetta
er vitaskuld enganveginn einhlít regla, því
margir aldurhnignir menn eru ungir í anda
og margir yngri menn eru gamlir löngu
af mörgum á þeim sjónarmiðum hinna nor-
rænu gesta, sem vikið var að í upphafi
þessa máls. Hér er semsé við lýði ómengað
öldungaþjóðfélag, þar sem gamlir og lúnir
menn ráða ferðinni og reyna af fremsta
megni að sporna við allri endurnýjun og
framþróun. Þessi tilhneiging kemur fram í
öllum helztu stofnunum þjóðarinnar. Um
það geta ekki sízt ungir vísindamenn og
aðrir hámenntaðir hæfileikamenn borið,
þegar þeir koma heim frá löngu námi með
ferskar hugmyndir og ný viðhorf. Nálega
undantekningarlaust er öll þeirra viðleitni
kæfð í fæðingu, þannig að þeir hrökklast
annaðhvort úr landi eða draga sig inní skel
og reyna að semja sig að siðum staðnaðs
og ófrjós kerfis, þar sem flokksklíkur dauð-
ar úr öllum æðum standa straum af jarðar-
fararkostnaði nýrra hugmynda.
Þau sárafáu dæmi þess að ungir menn
hafi tekið við stjórn stofnana eða samtaka
og fengið verðug verkefni eru órækt vitni
um, á 'hvaða villigötum íslenzka öldunga-
þjóðfélagið er. Hef ég þar til dæmis í huga
Leikfélag Reykjavíkur og Hið íslenzka bók-
menntafélag, sem bæði tóku eftirtektar-
verða fjörkippi þegar ungir menn voru
kvaddir þar t:l forustu. Gagnstætt dæmi er
íslendingar voru undir fertugsaldri. Af þeim
hópi voru 87.199 undir tvítugsaldri, en
52.516 á aldrinum 20 til 39 ára. íslendingar
á kosningaaldri voru semsé 125.496, og af
þeim voru 41,85% á aldrinum 20 til 39 ára,
en áttu einungis tæp 8% þeirra fulltrúa
sem sitja í helztu stofnunum og stjórnum
félagssamtaka. Tekið skal fram að meðal-
aldurinn í yfirlitinu er reiknaður í heilum
og hálfum árum, þannig að brotin aftan við
kommu tákna tugi en ekki mánuði.
Sé litið á skrána, kemur í ljós, að einungis
í einu tilviki er meðalaldurinn rétt fyrir
neðan fertugt og í fjórum tilvikum öðrum
fyrir neðan fimmtugt. Hinsvegar er hann í
fimm tilvikum fyrir ofan sextugt. Á síðasta
ári lækkaði meðalaldur í Þjóðleikhúsráði úr
64 niður í 57 ár, þegar Eyvindur Erlendsson
(33 ára) tók sæti Halldórs Laxness.
Þessar niðurstöður hljóta að orka allt
annað en uppörvandi á þann fjölmenna
hóp ungs fólks sem er að koma til starfa
í þjóðfélaginu. Hann horfir framá það, að
hæfileikar hans fá sennilega ekki að njóta
sín til fullnustu fyrr en hann er kominn
af léttasta skeiði og á að bak: beztu og
frjósömustu æviárin.
Til samanburðar má geta þess, að á liðnu
fyrir aldur fram, en meginreglan er tví- nýveitt embætti ráðuneytisstjóra iðnaðar- mælalaust sú, að starfsþrek, frjósemi og mála, þar sem aldurhniginn og starfslúinn hausti tók 43 ára gamall maður við stjórnar- taumum í Svíþjóð, John F. Kennedy var 44
Meðalaldur í nokkrum stjórnum og stofnunum
Undir
Stofnun Fjöldi Meðalaldur Yngsti aldur fertugsaldri
: Alþingi 60 54 ár 38,5 ár 2
Ríkisstjórn 7 56 — 44,5 —
Borgarstjórn Reykjavíkur 15 46,9 — 33,5 — 2
Hæstaréttardómarar 5 58,2 — 52,5 —
Rannsóknarráð ríkisins 19 54 — 43,5 —
Útvarpsráð 7 51 — 45,5 —
Þjóðleikhúsráð 5 57 — 33 — 1
Monntamálaráð 5 52 — 44 —
Úthlutunarnefnd listamannafjár 7 51 — 37,5 — 1
Stjórn Norræna félagsins 7 63,1 — 49,5 —
Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja 11 45,6 — 29 — 3
Stjórn Sambands íslenzkra samvinnufélaga 9 61 — 46,5 —
■ Stjórn Alþýðusambands íslands 15 47,6 — 29 — 2
Stjórn Búnaðarfélags íslands 3 68,5 — 55,5 —
: Stjórn Stéttarsambands bænda 5 64,5 — 55,5 —
Stjórn Sjómannasambands íslands 7 57,4 — 41 —
Stjórn Landssambands íslenzkra útvegsmanna 15 58,4 — 41,5 —
' Stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna 9 61,6 — 47,5 —
Framkvæmdastjórn Vinnuveitendasambands íslands 5 58,5 — 42,5
Stjórn Landssambands iðnaðarmanna 7 51 — 39 — 1
Stjórn Félags íslenzkra iðnrekenda 5 48,2 — 40 —
, Stjórn Landssambands islenzkra verzlunarmanna 9 39,9 — 29 — 4
St'jórn Kaupmannasamtaka íslands 5 53,6 — 47,5 —
Framkvæmdastjórn íþróttasambands íslands 5 53 — 41,5 —
Háskólaprófessorar 49 52,2 — 33 — 6
296 22
framtak manna sé mest á aldrinum milli
þrítugs og fimmtugs. Þá eru menn opnastir
fyrir nýjungum, frumlegastir og afkasta-
mestir.
Ég gerði mér það þessvegna til dundurs
á dögunum að kanna 25 helztu stofnanir og
stjórnir félagssamtaka hins íslenzka þjóð-
félags í því skyni að finna meðalaldur þeirra
manna sem þar gegna ábyrgðar- og trúnað-
arstöðum. Niðurstaðan birtist í yfirlitinu,
sem fylg:r þessum línum, og get ég ekki
neitað því, að hún kom mér á óvart. Hins-
vegar felur hún án efa í sér eina skýringu
maður var tekinn framyfir ungan og dug-
mik:nn hæfileikamann.
Af þeim 296 mönnum, sem veita forstöðu
25 helztu stofnunum og félagssamtökum ís-
lendinga, eru einungis 22 undir fertugsaldri
og 3 undir þrítugsaldri (reyndar emungis 2,
því sami einstaklingur gegnir tveimur
nefndra embætta). Þetta er ótrúleg útkoma
í þjóðfélagi þar sem mikill meirihluti þegn-
anna er undir fertugsaldri og stór hluti
milli tvítugs og fertugs. í árslok 1968 voru
landsmenn samtals 202.695 talsins. Þaraf
voru 62.980 fertugir og eldri, en 139.715
ára þegar hann var kosinn í æðsta embætti
Bandaríkjanna, og þegar Wilson forsætis-
ráðherra Bretlands endurskipulagði ríkis-
stjórn sína í vetur og skipaði 20 nýja ráð-
herra, var meðalaldur þeirra 37 ár og þó-
nokkrir undir þrítugsaldri. Ég bendi á þess-
ar staðreyndir einungis til að leggja áherzlu
á, að þjóðir, sem framarlega standa í nú-
tímanum, gera sér ljósa gre:n fyrir þeim
fjársjóðum sem fólgnir eru í starfsfjöri,
hugkvæmni, frumleik og þori ungra manna.
Hvenær skyldu íslendingar gera sér það
ljóst? 4
47