Samvinnan - 01.02.1972, Side 7
Blönduósi 21. jan. 1972.
Herra ritstjóri!
Ég get ekki með öllu leitt hjá
mér að minnast á þátt kirkj-
unnar í síðasta blaði „Sam-
vinnunnar". Það er skylt að
þakka fyrir hann. Þar var fjöl-
breytt fram borið, en samt
fannst mér kenna nokkurs
fúkkakeims af réttunum. En
það er nú kannski ekki óeðli-
legt. Mér fer sennilega eitthvað
líkt og Skugga-Sveini, þegar
hann lærði Biblíuna alla í einu.
Þetta bögglast þó ekki fyrir
brjósti mínu, heldur veldur það
mér einskonar höfuðverk.
Þarna gengu menn kirkjunnar
undir dálítið próf. Og ég verð
að segja, að enn féllu þeir á
prófinu. Þeir hafa nú raunar
alltaf gert það, allt frá Krists
dögum, ef miðað er bara við
þessi nærri því tvö þúsund ár,
sem talið er að liðin séu frá
„holdtekju" guðs, eins og mætti
víst orða það, að ég ætla. En
leið kirkjunnar má víst lýsa á
líkan hátt og Gröndal lýsti
Alpafjöllunum í Heljarslóðaror-
ustu sinni, en þar sagði hann,
að væri klofsnjór á sumrum, en
jökull á vetrum. Og þó sjást
spor Hannibals hins púnverska
þar enn í snjónum, segir Grön-
dal.
Og spor kirkjunnar sjást enn
í þeim aldanna klofsnjó, hvern-
ig sem þeir — blessaðir prest-
arnir og þeirra fylgjarar —
reyna að auka moldviðrið. Ég
er ekki laginn að orða hugsanir
mínar og ekki lærður í laga-
eða trúarbragðaflækjum, en
mér finnst eðlilegt, að mönnum
sé boðuð sú kenning, að þeir
eigi að reyna að breyta við ná-
ungann og raunar alla menn
sem líkast því, sem þeir vilja
láta aðra breyta við sig. En
þetta tal um að elska náung-
ann. Það er stórt orð, Hákot. Og
ef við rýnum í spor kirkjunnar,
munum við sjá að þarna hef-
ur henni sótzt leiðin seint og
stundum lent á undanhaldi.
Það að kirkjan sé líkami
Krists er nú sennilega eitthvað
eðlisskylt gömlu hugmyndinni
um það, að ástin búi í hjartanu
og Guð sé uppi í einhverjum
himni, — eins og við séum ekki
öll i himni — þó ekki kannski í
sjöunda himni. Sem sagt:
Hugsanabrengl.
Ég held að til hafi verið
kirkjudeildir, sem hafa haft
uppi þá kenningu, að Kristur
hafi verið góður uppreisnar-
maður, en ekki guð. Hann hafi
verið hinn mikli meistari
mannkærleikans.
Það hafa meira að segja ver-
ið til vitrir og lærðir menn, sem
hafa talið vafasamt að þessi
Jesús hafi nokkurntíma verið
til. Það er þessvegna ekkert til-
takanlega út i bláinn, þó mér
finnist þetta tal guðfræðing-
HEKLA
Akureyri
Heklu peysan
hcntar báðum
dralon
. BAYER
Úrvals trefjaefni
3