Samvinnan - 01.02.1972, Blaðsíða 38

Samvinnan - 01.02.1972, Blaðsíða 38
árunum 1962—70 var byggt dagheimili fyrir 40 börn og leikskólar fyrir nímlega 100 börn í Kópavogi, en það er mun meira en nágrannasveit- arfélögin gerðu í þessum mál- um á sama tímabili. Þetta er þó að sjálfsögðu aðeins brot af þörfinni, eins og ofangreind könnun sýnir ljóslega. Sveitarfélögin ein? Allt fram til þessa hafa sveit- arféiögin ein eða áhugamanna- félög staðið fyrir rekstri dag- heimila og í mörgum tilfellum byggt sérstaklega yfir þessar stofnanir. Á Norðurlöndum öll- um utan íslands tekur ríkið mikinn þátt í byggingu og rekstri dagheimila. Árið 1963 bar ég fram í bæjarstjórn Kópavogs tillögu, þar sem skor- að var á ríkisvaldið að greiða helming af byggingarkostnaði þessara stofnana og hluta rekstrarkostnaðar. Tillagan var samþykkt samhljóða. Nokkru síðar var hún borin fram á þingi Sambands íslenzkra sveit- arfélaga. Þar fékk tillagan hins vegar heldur óblíðar mót- tökur, og var henni breytt þar á þann veg, að ekkert gagn var í henni lengur. Einar Olgeirsson o. fl. báru alloft fram frumvarp til laga á Alþingi, sem var svipaðs efnis, en náði aldrei fram að ganga. Ný stjórn, breytt viðhorf (?) Þeir, sem ráðið hafa stefnu í dagheimilamálum okkar, hafa fyrst og fremst tekið mið sín af þeirri veröld, sem þeir ólust upp i, og hafa verið seinir að átta sig á breyttum tímum. Þeir hafa ekki enn áttað sig á því, að dagheimilin eru orðin góðar og mikilvægar uppeldis- stofnanir, sem hafa jákvæð áhrif á þau börn, sem dveljast þar. Þeir hafa ekki heldur áttað sig á því, að ungar stúlkur kref jast þess í vaxandi mæli að geta unnið utan heimilis. í öllum stjórnmálaflokkum vantar enn töluvert á, að næg- ur og almennur skilningur sé á mikilvægi þessa máls. Þetta er þó í mjög misríkum mæli. En nú eru e. t. v. að verða þáttaskil i þessu máli. Ríkis- stjórn sú, sem nú situr við völd, hefur lýst því yfir, að hún muni vinna að jafnrétti kynjanna og setja löggjöf um þátttöku ríkis- ins við byggingu og rekstur dag- heimila. Hér er ríkisstjórninni mikill vandi á höndum, þvi alls staðar blasa við verkefni. Þátttaka rikisvaldsins i bygg- ingu og rekstri dagheimila er þó miklu meira en spurning um fjárveitingu. Með þessu er verið að ætla dagheimilum mun meira hlutverk í þjóðfélaginu en þau gegna nú. Jafnframt verður því að vinna á skipuleg- an hátt að því, að hin nýju heimili leysi verkefni sín vel af hendi. Þetta hlýtur að krefj- ast þess, að fagleg yfirumsjón sé með þessari starfsemi, sem í senn felur i sér ráðgefandi starf og eftirlit. Allir þeir, sem eiga nokkuð undir því, hvernig þessi mál skipast á komandi árum, verða enn sem fyrr að berjast ötul- lega fyrir framgangi málsins, m. a. með því að gæta þess, að ríkisstjórnin hviki ekki frá of- angreindri stefnuyfirlýsingu. Svandís Skúladóttir. 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.