Samvinnan - 01.02.1972, Blaðsíða 65

Samvinnan - 01.02.1972, Blaðsíða 65
íláti). Glóðarsteikið síðan rifjurnar öðrum megin, snúið þeim við og Ijósbrúnið hinum megin. Leggið þá þunna hýðislausa appelsínusneíð, ananashring, aprikósu eða ostsneið á hverja rifju og penslið yfir með smjöri ef um ávexti er að ræða. Grillið þar til áveixtirnir eru byrjaðir að brúnast eða osturinn bráðnaður. Eí kjötskammturinn er of lítill má t. d. drýgja hann á eftirfarandi hátt: 4—6 brauðsneiðar eða bollur 3— 400 g hakkað nauta- eða lambakjöt 1 msk brauðmylsna eða haframjöl 1 egg eða 1 eggjarauða og 1 msk vatn salt og pipar, 1 tsk. kjötkraftur eða súputeningur (leystur upp í vatni). Brúnaður laukur, pikles, HP-sósa eða tómatsósa Smyrjið brauðsneiðarnar. Hrærið kjötið með brauðmylsnu, eggi og kryddi. Skiptið því á brauðsneiðarnar og smyrjið því vel í jafnt lag. Steikið því næst, fyrst með kjöthliðina niður, í 8—10 mín., því næst brauðið þar til það er byrjað að brúnast. Berið þetta fram á vel heitum diskum. Látið brúnaðan lauk, pikles og HP-sósu eða tómatsósu á buffin til bragðbætis og steikt egg þar yfir. Borið fram með hráu grænmetis- salati, úr t. d. gulrótum, blóm- eða hvítkáli og eplum, sem bragðbætt er með sinnepi og tómatsósu. Kalt kartöflusalat með sýrSum rjóma 1—2 dl sýrður rjómi 4— 5 msk oliusósa (mayonaise) 1—2 msk smátt saxaður laukur 2 tsk pikles 1 tsk karrý söxuð steinselja eða kerfill 4—500 g kartöflur 1—2 epli Hrærið sýrða rjómann saman við oliusósuna og bragðbætið með lauk, pikles, saxaðri steinselju og kryddi. Skerið kaldar, flysjaðar kartöfl- urnar í þunnar sneiðar og eplið í litla bita. Hellið sósunni yfir og hrærið varlega í. Berið salatið fram vel kalt með kjöt- og fiskréttum. Pönnukökur meS sveppa- eða rækjufyllingu Búið til venjulegt pönnukökudeig með Vá tsk af salti og 1 tsk af sykri til bragðbætis, en sleppið dropunum. Bakið meðalþykkar pönnukökur, sem má fylla t. d. á eftirfarandi hátt: RÆKJUFYLLING: 100 g olíusósa (mayonaise) 2 eggjahvítur söxuð steinselja eða dill sinnep, paprika 1— 200 g rœkjur Blandið stífþeyttum hvítunum saman við kryddaða olíusósuna ásamt rækjunum. Vefjið pönnukökurnar upp með fyllingunni og raðið þeim í smurt eldfast mót. Hellið dálitlu bræddu smjöri yfir og stráið rifnum osti jafnt yfir pönnukökurnar sem síðan eru bakaðar við 200 gráðu hita í um 10 mínútur. SVEPPAFYLLING: 175 g sveppir safi úr hálfri sítrónu (V2 dl sherry) 50 g smjör 1 lltill laukur (saxaður) 1 dl rjómi 2— 3 msk hveiti (3—4 sneiðar reyktur lax) Hreinsið sveppina (eða notið niðursoðna sveppi) og skerið þá í eggja- skera. Bræðið smjörið, bætið sítrónusafa, lauk, sherry, salti og pipar saman við og sjóðið sveppina þar í um 5 mín. Stráið hveitinu yfir og þynnið jafninginn með rjómanum og sveppasoðí eða vatni. Jafningurinn á að vera fremur þykkur. Skiptið honum á pönnukök- urnar. Skerið laxinn í bita og stráið honum yfir jafninginn. Vefjið síðan pönnukökurnar upp, raðið þeim í smurt eldfast mót. Látið yfir þær smjör og rifinn ost og bakið á sama hátt og pönnukökur með rækjufyllingu. Ostahorn (32 stk.) 50 g pressuger lVi dl volgt vatn 1 dl rjómi eða mjólk 1 tsk salt 1 tsk sykur 2 egg 200 g smjörlíki Vi kg hveiti FYLLING: 100 g smjör 100 g rijinn ostur (bragðsterkur) 2—3 tsk paprika Allt hrœrt saman. Hrærið gerið með volga vatninu í stórri skál. Bætið rjóma, salti, sykri og eggjum saman við. Bætið smjörinu smátt og smátt út í ásamt hveit- inu. Hnoðið (ath. að deigið á að vera lint) og látið deigið bíða í skál- inni með klút yfir á volgum stað þar til það hefur aukizt um allt að helming. Hnoðið og skiptið í 4 parta. Fletjið deigið út í kringlóttar kökur. Skerið hverja þeirra í 8 þríhyrninga. Látið dálitla ostafyllingu á hvern hyrning og vefjið upp frá breiðari endanum. Beygið hornin um leið og þeim er raðað á plötuna og látið þau lyfta sér á volgum stað (hafið stykki yfir plötunni) í 10—15 mín. Penslið hornin síðan með þeyttu eggi og bakið við um 25 gráðu hita i um 15 mín. Hornin eru góð með súpum, einnig með tei eða kaffi og má smyrja þau ef vill. Allt pressugersbrauð verður ljúffengara ef það er velgt rétt áður en það er borið fram. Páskaterta (Sænsk verðlaunakaka) 3 egg lVi dl sykur 3 msk volgt vatn 2 dl hveiti lVi tsk lyjtiduft FYLLING: 3 dl vanillukrem eða t. d. kaldur búðingur SKREYTING: 1 dl aprikósumauk 200 g möndlumassi (massipan) 2 eggjahvítur 50 g möndlur (möndluspœnir) Þeytið egg og sykur í þétta froðu. Sigtið hveiti og lyftiduft og blandið því varlega saman við ásamt volga vatninu. Bakið deigið strax í vel- smurðu tertumóti með lausum botni við 200 gráðu hita, neðarlega í ofninum. Bökunartími er um 20 mín. Látið kökuna kólna nokkra stund áður en aprikósumaukinu er smurt yfir. Hrærið því næst möndlu- massann með eggjahvítunum, látið hann í sprautupoka og sprautið yfir kökuna t. d. í tígla. Bakið kökuna áfram þar til möndlumassinn er hæfilega bakaður (Ijósgulbrúnn). Takið kökuna úr mótinu, kljúfið hana og leggið saman með vanillukreminu. Smyrjið kreminu einnig utan á kökuna og hyljið með rifnum möndlum, sem áður eru ristaðar á þurri pönnu. 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.