Samvinnan - 01.02.1972, Síða 35

Samvinnan - 01.02.1972, Síða 35
Séra Sigurður Haukur Guðjónsson: Vanmáttarlýðurlnn Hratt fjölgar þeim ungmenn- um er misst hafa taktstig við umhverfið. Þrjózk — stöð ráfa þau um, sýkja út frá sér, draga framtið annarra niður i svaðið til sín. Við hin eldri gösprum um nauðsyn æskulýðsfélaga, krefjumst þess að til slíkra mála sé varið fjármunum á reikningum ríkis og sveitarfé- laga. í flestum tilfellum er lát- ið þar við sitja. Fáir reyna að skilgreina, hvað æskulýðsstarf er, — það er aðeins eitthvað fínt, eitthvað óljóst, eitthvað sem ekki má vanta í siðmennt- uðu þjóðfélagi. Þingmenn hrópa: Við viljum æskulýðs- hallir. Flokksvélin baular: Heyr, frelsari er fæddur. En hvað er æskulýðshöll? Ég hefi ekki enn heyrt til þess þing- manns, er hefur hugmynd um, hvað hann er að tala um. Það er engu líkara en kona hans hafi hvíslað í eyra hans: Elsku góði, flyttu nú frumvarp um æskulýðsmál, hún Gunna hans Jóns segir, að það sé svo aga- lega fínt. Gömlu úrræSin ónýt Fyrir nokkrum árum mátti lesa feitletraðar greinar um, að nú væru vandamál þeirra foreldra úr sögunni, er ættu brokkgengar dætur á æsku- skeiði. Hjálpræðisherinn hafði fyrir „sáralitla" þóknun tekið að sér að leysa málið. Síðan kom sú gleðifregn, að upptöku- heimilið gæti annað allt að 11 stúlkum, nota bene, ef þær væru þægar. Síðan eru ár. Vandræðastúlkum fjölgar, en í dag íá þær að sjá um sig sjálfar, meðan við bíðum nýrra sjálfboðaliða til að leysa vand- ann. Æskulýðshöll er rekin, og i flestum skólum eru tóm- stundadeildir í umsjá kenn- ara á launum frá mér og þér. Við höfum því litla ástæðu til að kvarta. Þó eykst fjöldi ungl- inganna sem lifa alla framtíð sína á nokkrum árum, í sjálfs- mennsku, hér í höfuðborginni. Dag eftir dag sitja fyrir framan mann foreldrar í algjörri upp- gjöf, hrópandi á hjálp. En hvar er hana að fá? Meðan þú hefir ekki reynt, þá heldur þú sjálf- sagt að slíkt sé auðvelt. Sú var tiðin, að öll slík vandamál voru leyst með því að senda „villi- dýrið“ í sveit. Það er liðin tíð, að búendur séu svo liðaðir, að þeir treysti sér til að annast óþekktarorma þéttbýlisins. Þó er þetta enn reynt. Ég gæti nefnt þér nokkra drengi á skólaskyldualdri, sem í fyrra voru sendir í hið „heilnæma loft“, en struku þaðan til ráps og leikja hér í borginni. Þær eru heldur ekki fáar 14—15 ára stúlkurnar sem slettast um storkandi því fræðslukerfi, er við höfum sett okkur, af því að þær vita, að „pípið“ i körlun- um og kerlingunum er aðeins raus, sem engin leið er að fylgja eftir. Það var óskemmtilegt að hafa fyrir framan sig 15 ára snáða, sem kotroskinn til- kynnti, að nú gæti hann af- þakkað öll tilboð um hjálp, því að vandi hans væri leystur: „Því sjáðu, sko, sálfræðingur- inn sagði, að ég væri eitthvað hinsegin, því er eðlilegt að ég sé svona. Svo sagði kellingin þarna í Tja 'nargötunni, að það væri bezt ég færi bara í annan skóla. Líklega miklu betri kenn- arar þar, maður.“ Vandamálið var, að snáðinn réð ekki við námsefnið til unglingaprófs, hafði fallið. Hann á föður, sem vinnur allan daginn úti, langt frá heimili. Móður sinni hefir hann týnt, hún hefur um ann- að en hann að hugsa. Dreng- urinn er því aleinn, eftirtektar- laus. Það breyttist ekki, þó að breytt væri um skólann. Niður- staða: Jafnvel strákurinn hlær að eftiröpun okkar á strúts- háttum. Opinber bægslagangur Skilji nú enginn orð mín svo, að ég sé að ásaka það fólk, sem að þessum málum vann og vinnur. Þess vandi er mikill. Hversu vel sem það vill, þá bindur áhugaleysi þitt og mitt hendur þess. Hvar höfum við búið því stað til að taka við slíkum brotabörnum? Ég þekki ekki slíka staði, hef þó leitað, fundið aðeins eitt upptöku- heimili fyrir drengi á landinu öllu. Hundruð þúsunda króna fara þó i æskulýðsmál. For- svarsmenn halda því fram í op- inberum málgögnum, að starf þeirra sé geysiþróttmikið á þessu sviði. Jú, það vantar ekki, að mikill er bægslagangurinn, en hann leysir ekki vandann. í fyrsta stað kemur það, að þau æskulýðsmál, sem hér eru rek- in, eru flest nauðaómerkileg sýndarmennska. Börn okkar þarfnast annars meir en kapp- hlaups við skemmtanaiðnað- inn um tilboð um dráp á tima. Þau vaxa ekki að þroska við kapphlaup hins opinbera við þá, sem telja það fullt starf að pretta fjármuni af börnum. Hallarnöfn breyta þar ekki neinu. í sjálfu sér eru þessir starfshættir ekkert undarlegir, ef þú athugar, hvernig æsku- lýðsráðin eru kosin. Þar gildir ekki verðleikamat á mönnum, heldur er þetta sýningarpallur fyrir þjónustulipurð í pólitísk- um flokkum. Það nægir ekki til afsönnunar þessari fullyrðingu, þó þú finnir þokkalega ein- staklinga í ráðunum, ef þú get- ur ekki bætt því við, að maður- inn hafi reynslu og þekkingu á vandamálinu sem um ræðir. Þetta leiðir aftur af sér það, að ráðsmönnunum okkar er mikill vandi á höndum. Þeir reyna að skreyta sig með erlendum til- lögum eða þá dreifbýlisþekk- ingu á vandamáli, sem er allt annað en þeir ætla. Ný vandamál Við þurfum ekki að fara mörg ár aftur í tímann til að sjá, að hér stöndum við fyrir framan nýtt vandamál. Vinna og nám hélzt í hendur, hinir eldri leiddu þá yngri, stóðu við hlið þeirra, glimdu við gátur lifsins með þeim. Verkin voru þá einföld, það þurfti sáralítið erfiði til að vera fær í flestan sjó, slá, raka, gefa rollum, hnýta öngul á færi, róa. Þetta geta flestir lært. Flestir geta líka lært að skrifa nafnið sitt, og staut í lestri var fjöldanum nóg. Nú eru kröfurnar allar aðrar. Unglingapróf gerir kröfu til þekkingar, sem jafnvel emb- ættismenn kunnu ekki skil á 31

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.