Samvinnan - 01.02.1972, Síða 40

Samvinnan - 01.02.1972, Síða 40
lengj a greinina um of. Enda könnunin fyrst og fremst hugs- uð og unnin sem gagnasöfnun fyrir leikvallanefnd. Skortur sérmsnntaðs starfsliSs Eins og ég hef þegar nefnt, hefur leikvallanefnd jafnan verið það ríkt i huga að leik- vallardvölin mætti vera börn- unum, sem þangað leituðu, já- kvæð í uppeldislegu tilliti. Þar kemur vissulega margt til greina. Þó er það vafalaust þyngst á metunum, að til gæzlu veljist sem hæfast starfsfólk. í leikvallastarfinu ríkir algjör skortur á sérmenntuðu fólki. Að vísu hafa fáeinar fóstrur ráð- izt til starfa á gæzluvöllum, en í alltof litlum mæli. Leikvalla- nefnd hefur reynt að bæta úr þessu að nokkru með námskeið- um. Nú siðast i vetur standa yfir 3ja mánaða námskeið (64 tímar) fyrir starfandi gæzlu- konur, þar sem kennt er 5 daga vikunnar, 2 tíma í senn. Það er þó ljóst að slík skammtíma námskeið eru ekki fullnægj- andi. Lengri kennsla þyrfti til að koma, þar sem tækifæri væri til að fara ýtarlegar i náms- efnið. Erlendis, t. d. á Norður- löndum, tekur nám slíkra tóm- stundastarfsmanna, „fritids- pedagóga", 2 ár, talið sam- bærilegt við fóstrunám. Er það eðlilegt þar sem störfin eru mjög hliðstæð, þó að unnin séu við dálítið ólíkar aðstæður. Eitt er víst, að það er ekki minni vandi að vera góður „leikleiðbeinandi“ á leikvelli en að vera góð fóstra eða góð- ur kennari — öll eru störfin þýðingarmikil fyrir þá ófull- veðja einstaklinga, sem látnir eru í forsjá þessa fólks, — öll þýðingarmikil, þjóðfélagslega séð. í nágrannalöndum okkar eiga sér nú stað miklar umræður um leikaðstöðu utanhúss. Hér er ekki tækifæri til að fara langt út í þá sálma, en það sem ég hef séð ber því vitni, að málið allt er nú skoðað í stærra sam- hengi en fyrr. Þýðing þess verður æ ljósari, og miklar framfarir eru að verða í þess- um efnum. Danir munu hafa orðið fyrstir þjóða til að setja löggjöf um leikvelli og útivist- arsvæði. Bein framlög ríkisins til allra framkvæmda á þessu sviði eru lögboðin þar í landi. Svíar eru um þessar mundir að fá eða hafa þegar fengið svip- aða löggjöf. Það hlýtur að líða að því, að við gerum einnig svipaðar kröfur til ríkisins, bæði varðandi menntun starfs- fólks og þátttöku í beinum kostnaði við framkvæmdir. Við íslendingar (Reykjavík og nokkrir aðrir kaupstaðir) höf- um nokkra sérstöðu í þessu sem fleiru. Smábarnagæzluvellir munu hér almennari en annars staðar. Við höfum þar tals- verða reynslu og þurfum að hagnýta hana. Ekki einungis að auka hana, með nýjum og nýjum gæzluvöllum með sama sniði, heldur að átta okkur á, hverju við þurfum og eigum að breyta. Það sem okkur skortir aðal- lega er að skapa betri skilyrði fyrir eldri börnin, sem nú sækja gæzluvellina, og aldurs- hópana þar fyrir ofan. Enginn vafi er á því, að koma þarf upp hinum svonefndu starfsvöllum í síauknum mæli. Hver nýr völl- ur kostar hins vegar mikla peninga og tekur auk þess langan tíma að koma honum í gagnið. Það og skortur á sér- hæfðu starfsfólki verða okkur mestur Þrándur í Götu. Blöndun aldursflokka Mér finnst einsýnt, að jafn- framt því sem við bætum við nýjum starfsvöllum eftir þvi sem ástæður leyfa ættum við að huga vel að því hvort ekki er hægt að nota gömlu vellina til sameinaðrar starfsemi fyrir yngri og eldri börnin. Leikvell- irnir eru mjög misstórir, sá minnsti er 500 fermetrar, sá stærsti rösklega 2300 fermetrar. Flestir eru 1000—1500 fermetr- ar. Ljóst er að yngstu börnin (2ja til 4ra ára) þyrftu afdrep. En það þyrfti ekki að vera mjög stórt. Hreyfileiki þeirra er á- berandi minni en eldri barn- anna. 200—400 metra land- svæði, þar sem komið væri fyrir leikföngum við þeirra hæfi, myndi að mínu viti ná tilgangi sinum. Ekki væri ósanngjarnt að takmarka heimsóknir þess aldurshóps við annan hluta hins daglega starfstíma vallar- ins, öðru hvoru megin við há- degið. Komi sama barn aftur á völlinn sama dag, væri það ekki til dvalar á smábarnagæzlu- velli, heldur i fylgd með sér eldra barni eða með fullorðn- um — því ekki það? — t. d. eldra fólki, sem liti eftir barn- inu. Slík blöndun aldurshópa er viðurkennd uppeldislega heppi- leg. Þann hluta vallarins, sem á þennan hátt sparaðist, mætti nota til margháttaðrar starf- semi með og fyrir börnin, til frjálsrar aðsóknar barna á öll- um aldri. Þá kæmi einnig til greina að hafa vellina lengur opna, t. d. eftir kl. fimm. Það er reynslan á Norðurlöndum, að þeir vellir, sem eru opnir eftir þann tíma, eru bezt sóttir. Og líklegt þykir mér að sú yrði einnig raunin hér á landi. Nánari samvinna Aðstaða til smíða, teikninga og fleira föndurs, ásamt tæki- færum til að þróa ýmsa ímynd- unarleiki, er því miður hverf- andi lítill þáttur í okkar leik- vallastarfsemi. Þetta þarf að breytast, og það eru engar ó- yfirstíganlegar hindranir í veg- inum — það þurfum við að gera okkur Ijóst. Engar óyfirstígan- legar hindranir nema þá veðr- áttan okkar. Hún er okkur vissulega talsvert erfið. Ekki af því að hún sé svo hörð, heldui af því að hún er svo ótrygg og umhleypingasöm. Til þess að sjá við henni þurfum við að fá stærri skýli á vellina. Skýli sem geta verið börnunum afdrep, þegar ekki er hægt að vera úti nema stutta stund. Og skýli með meira geymslurými. Sem sagt stærri skýli. Eins og ég hef áður drepið á eru engin gjöld greidd fyrir þá þjónustu, sem leikvellirnir veita. Ekki myndi ég telja æski- legt að því yrði breytt. Annað mál væri, að mínum dómi, að foreldrar tækju nokkurn þátt í verkefnakaupum, legðu t. d. fram, þegar barn þeirra (eða börn, jafnt hvort um fleiri eða færri væri að ræða) byrjar að sækja leikvöllinn, einföldustu verkefni, s. s. litakassa og leir- klump, og létu leikvellina njóta verðlausra umbúða og fleira, sem til fellur á hverju heimili, t. d. notaðra, ónýtra flika o. fl. Slíkt myndi fáu eða engu heim- ili vera tilfinnanlegt, en væri leikvöllum mikils virði. Yfir- leitt sýnist nánari samvinna heimilanna við sinn hverfis- leikvöll ekki aðeins æskileg, heldur nauðsynleg. Hér ætti að vera kjörið verkefni fyrir for- eldrafélög eða hverfasamtök. Fyrst og fremst skipulagsmál Þó að ég hafi hér dvalið við, hvernig hægt væri að breyta nokkuð um starfshætti og nýt- ingu gæzluvallanna, sem við þegar höfum, er mér ljóst að þar er aðeins rætt um nærtæk- ustu verkefnin. Framtíðin mun gera ólíkt stærri kröfur en þær, sem við sættum okkur við. Leikvellir eru í grundvallarat- riðum fyrst og fremst skipu- lagsmál. Leikvallaþörfinni verð- ur ekki mætt nema arkitektar, verkfræðingar og skipulags- fræðingar reikni með þeim í upphafi við skipulag bæja og bæjarhverfa. Ennþá hefur lítið farið fyrir því í okkar landi. E. t. v. vegna þess að lítið fer ennþá íyrir grundvallarskipu- lagi almennt. En það væri ef til vill ekki til of mikils mælzt, að húsameistarar, minnugir þess að það mun vera kvöð á ibúum fjölbýlishúsa að koma upp leiktækjum fyrir börn á lóðum sínum, gerðu ráð fyrir útgangi úr hverjum stigagangi beint út á lóðina, svo að ekki þyrfti að vísa börnum, sem eru að byrja að ganga, út í umferðarhætt- una, sem af bílaumferðinni leiðir. Það væri strax ofurlítill vottur þess, að þeir vissu að börn eru til í þessari borg. Margrét Sigurðardóttir. 36

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.