Samvinnan - 01.02.1972, Page 52
eftirliti og veita eftirlitsmanni fœri á að rannsaka börn og ungmenni, sem þar eru
vistuð, húsakynni þeirra, þrif, heilsufar, matarœði, aðbúnað og þroska, veita honum
aðgang að skýrslum, bókum cg: reikningum stofnunarinnar o. s. frv.
Tálmanir gegn framkvæmd eftirlits varða refsingu að lögum, sbr. 3. gr. og 49. g:r.,
3. mgr.
56. gr.
Foreldrar eða aðrir forsjármenn barns svo og: aðrir þeir, sem hagsmuna eiga að
gæta vegna ráðstafana barnaverndarnefnda, geta borið mál undir barnaverndarráð
til fullnaðarúrskurðar. Er ráðinu skylt að taka málið til skjótrar meðferðar og úr-
lausnar. Akvæði 14., 15., 16. og 20. gr. eiga hér einnig við, og getur barnaverndar-
ráð mælt fyrir um formlegan málfutning fyrir ráðinu.
Málskot til barnaverndarráðs frestar ekki framkvæmd ákvörðunar barnaverndar-
nefndar. Þegar sérstaklega stendur á, getur barnaverndarráð þó ákveðið, að fram-
kvæmd ályktana barnaverndarnefndar skuli frestað, unz ráðið hefur fellt úrskurð
sinn. Skal barnaverndarráð þá hraða störfum svo sem framast er unnt.
Barnaverndarráð getur metið að nýju bæði lagahlið málsins og sönnunargögn þess.
Það getur ýmist staðfest úrskurðinn að niðurstöðu til eða hrundið honum að nokkru
eða öllu, þar á meðal mælt fyrir um aðrar ráðstafanir en barnaverndarnefnd. Þá
getur ráðið cinnig vísað málinu til nefndarinnar til meðferðar að nýju, svo og aflað
gagna sjálft eða fyrir atbeina barnaverndarnefnda eða með öðrum hætti, ef því er
að skipta.
Nú verður barnaverndarráð þess áskynja, að barnaverndarnefnd hafi gert ráð-
stöfun andstætt lögum, og ber barnaverndarráði þá að láta mál til sín taka, þótt því
hafi ekki verið skotið til ráðsins.
57. gr.
II reglugerð, er menntamálaráðherra setur, skulu sett nánari ákvæði um starfs-
háttu barnaverndarráðs, þ. á m. um boðun funda, bókun fundargerða, boðun vara-
manna svo og um verkaskiptingu innan ráðsins, um starfsmenn ráðsins og ráðu-
nauta, svo og skrifstofuhald ráðsins.
VI. KAFLI
Um skoðun kvikmynda.
58. gr.
Enga kvikmynd má sýna börnum innan 16 ára aldurs, nema að undangenginni at-
hugun, sem framkvæmd sé af þar til hæfum mönnum. Ráðherra tilnefnir, að fengn-
um tilögum barnaverndarráðs, sérstaklega þar til hæfa menn til fimm ára í senn
til að annast skoðun kvikmynda.
Skoðunarmenn skulu meta, hvort mynd geti haft skaðsamleg áhrif á siðferði eða
sálarlíf barna eða á annan hátt. Skulu þeir hverju sinni ákveða, hvort mynd sé óhæf
til sýningar börnum innan 16 ára eða á tilteknum aldursskeiðum innan þess aldurs.
Ekki aflar það barni innan ákveðins aldurs hcimildar til aðgangs að kvikmynda-
húsi, þar sem sýnd er mynd, sem bönnuð er börnum á þess aldri, að það sé í fylgd
með fullorðnum eða þeim, sem heimild hafa til að sjá viðkomandi kvikmynd.
Nú hefur kvikmynd, önnur opinber sýning eða skemmtun verið bönnuð börnum
innan tiltekins aldurs samkvæmt 2. málsgrein þessarar greinar eða 1. málsgrein 43.
greinar, og bera þá dyraverðir og eftirlitsmenn samkomustaðar ásamt hlutaðeigandi
forstöðumanni ábyrgð á framkvæmd bannsins. Þegar slík sýning hefur verið bönnuð
börnum, eru dyraverðir og eftirlitsmenn viðkomandi skemmtistaðar skyldir að láta
þau börn, sem eftir útliti og vexti gætu verið yngri en tilskilið er, sanna aldur sinn
með framvísun nafnskírteinis, þá er þau æskja aðgangs að sýningunni. Nafnskírteini
er því aðeins fullnægjandi sönnunargagn um aldur í þessu sambandi, að á því sé
mynd skírteinishafa með embættisstimpli lögreglustjóra og dagsetningu.
Skoðun kvikmynda fer fram í Reykjavík, og skal trvggja skoðunarmönnum við-
unandi aðstöðu til starfsins. Heimilt er þó ráðherra að ákveða, að skoðun fari fram
utan Reykjavíkur, þar sem aðstaða er fyrir slíka skoðun að mati hans. Urskurður
skoðunarmanns skal fylgja hverri mynd, og gildir hann hvarvctna á landinu.
Tveir skoðunrmrnn hið fæsta skulu skoða hverja mvnd. Greini þá á, skal hinn
þriðja kveðja til, cftir því sem nánar verður ákvcðið í reglugerð, og ræður þá meiri
hluti, hvort banna á mynd eða ekki.
Sá, er skoðunar beiðist, skal greiða kostnað við hana, þar á meðal þóknun til
skoðunarmanna, eftir ákvörðun ráðherra.
Barnaverndarnefndir á viðkomandi stöðum skulu hafa eftirlit með, að aðeins séu
þar sýndar börnum kvikmyndir, sem kvikmyndaeftirlitið hefur leyft.
Um starfshætti kvikmyndaeftirlitsins og starfsemi þess skulu sett nánari ákvæði í
reglugerð, er ráðherra setur.
Ef forráðamaður kvikmyndahúss brýtur gegn ákvæðum þessarar greinar eða
ákvæðum reglugerðar, settum samkvæmt henni, varðar það allt að 15000 kr. sektum,
nema þyngri refsing liggi við að lögum.
Ríkisútvarpið annast skoðun kvikmynda, sem það sjónvarpar.
VII. KAFLI
Niðurlagsákvæði.
59. gr.
Um rannsókn og meðferð brota, sem refsing er lögð við í lögum þessum, fer að
hætti opinberra mála.
Robert Lowell:
Nærsýni um nótt
Sverrir Hólmarsson þýddi
í rúminu gleraugnalaus og allt
er skakkt, skælt og afskræmt
augum nærsýnum einungis fet
í burtu.
Ljósið er kyrrt
eitt andartak. Hér inni
eru bókakilir I móðu, hér
sýnast bækurnar bláar hæðir, brúnir
og grænir akrar, eða litir.
Þetta
er brottfararstaðurinn
braut draumsins. Hver lagði hana
lét eftir sig tölur, orð og örvar?
Örlögin hafa kvatt hann brott í skyndi.
Ég sé
dapurlegt framandi herbergi
hibýli þekkingar minnar
hvítt, lífgað hvltum rörum
múrbrjótum gufu ... ég heyri
einmana málminn anda
og eins og hóstahryglu.
Og augu mln forðast samt
þetta herbergi, þarflaust er að skoða
þarflaust að vlta að ég hafði vonað
að þessi hvlta alsnauða auðn
brenndi móðuna burt
er skilningarvit mln fimm
nístu tönnum, hugsun þræddist á hugsun
eins og um auga nálar . ..
Nú lít ég morgunsins stiörnu ...
Hugsið um hann í garðinum,
hann sem var vizkunnar sæði og Evu
táldró, troðinn og belgdur
af spillingu manna, að springa af sigurgleði
Satan í Edensgarði
sigrihrósandi! En á örskotsstund
breyttist öll þessi blindandi
blrta í höggorm og lá
og engdist um á kviðnum.
60. gr.
Barnaverndarráði er heimilt að stofna til námskeiða og fyrirlestra fyrir meðlimi
barnaverndarnefnda og starfsmenn þeirra, svo og ef þörf krefur fyrir starfsmenn
hvers konar barnaheimila og uppeldisstofnana. Ráðinu er enn fremur heimilt að
stofna til námskeiða eða annarrar fræðslustarfsemi fyrir foreldra og uppalendur. Þá
skal barnaverndarráð gefa út handbækur fyrir barnaverndarnefndir. Kostnaður
greiðist úr ríkissjóði.
61. gr.
Lög þessi taka gildi þegar í stað, og eru þá numin úr gildi lög nr. 29 9. apríl 1947,
um vernd barna og ungmenna, svo og lög nr. 20 16. apríl 1955 og lög nr. 58 18. apríl
1962, um breytingar á þeim lögum, og önnur þau lög, er fara í bága við þessi lög.
Menntamálaráðhcrra skipar etfir gildistöku laga þessara kvikmyndaeftirlitsmenn,
um samkvæmt ákvæðum laga þessara, og er kjörtími þeirra það, sem eftir er af
kjörtímabili hreppsnefndar, er kaus nrfndina, en barnaverndarnefnd gegnir þó störf-
um, unz ný nefnd hefur verið kosin. Barnaverndarnefndir þær, er nú starfa, halda
áfram störfum til þess tímamarks, er grcinir í 7. gr.
Mcnntamálaráðuneytið hlutast til um, að barnavcrndarráð sé skipað samkvæmt
ákvæðum 12. gr. svo fljótt sem föng eru á, cnda fellur niður umboð núverandi
barnavcrndarráðs, er hið nýja ráð er fullskipað.
Menntamálaráðherra skipar eftir gildistöku laga þessara kvikmyndaeftirlitsmenn,
sbr. 58. gr., enda fellur þá niður umboð núvcrandi kvikmyndaeftirlitsmanna.
Hvað hefur truflað tilveru mína?
Aðeins feti fjær
felast kunnugleg andlit móðu.
Um fimmtugt svo fjarska brothætt
fjöður llkast ...
Fyrirburðir augans eru liðnir,
Á svartri upplýstri skífu
standa grænleitar tölur nýs tungls —
eitt, tvö, þrjú, fjögur, fimm, sex!
Ég anda og fæ ekki sofið.
Unz morgunnlnn kemur
og segir: ,,Slfk var þín nótt“.
48