Samvinnan - 01.02.1972, Page 54

Samvinnan - 01.02.1972, Page 54
Pétur Guðjónsson, höfundur meðfylgj- andi greinar, hefur dvalizt í Chile undan- farið ár og kynnt sér þjóðfélagsástand þar, en hann er félagsfræðingur að mennt. í tilefni af fundinum með Castro, sem sagt er frá í greininni, birti stærsta dagblað Chile, „E1 Mercurio“, leiðara 7. desember, þar sem segir m. a.: „Skemmtilegasti partur kvöldsins var kappræða milli Castros og fulltrúa frá hinu fjarlæga eylandi, íslandi, Péturs Guð- jónssonar. Að okkar mati hrakti íslend- ingurinn Kúbumanninn uppað köðlunum hvað eftir annað, en samt er ekki hægt að nota líkingar úr hnefaleikum til að lýsa þessu einvígi. Blaðamaðurinn frá heim- skautsbaugnum hefði ekki getað verið ólík- ari hnefaleikamanni. Á sjónvarpsskermin- um kom hann fyrir sjónir einsog korna- barn í fæðingarsögu frelsarans með leiftr- andi augu og látlaust bros. Fidel Castro tók á móti blaðamanninum með þrumusvip, en kerúbinn tók höggum herforingjans dauflega, hætti aldrei að brosa eða leiftra og hélt áfram að varpa skarplegum spurningum til leiðtogans frá Karíbahafi. Endaþótt Pétur Guðjónsson virtist bera sigur úr býtum í viðureigninni, taldi Castro sig hafa haft betur í nokkrum fangbrögðum, enda hefur honum senni- lega fundizt hann vera heima í Havana. En hann áttaði sig brátt á því, að svo var ekki, og afréð að láta hinn engil- bjarta íslending ekki afskiptalausan (endaþótt aðrir blaðamenn þrábæðu um orðið), heldm- bað hann að segja það sem honum lægi á hjarta og baðst afsökunar á að hafa tekið framí fyrir honum.“ Myndirnar tók eiginkona Péturs, Nicole, sem er bandarísk. Pétur Guðjónsson: Ci f<i/i/tci/tjóm ó í/lcindi?/pyf Cci/tfo Þrammar í sal þursi, þotið er til fóta. Komin er kempan Castro, klappandi lýður fagnar, vígreifur að vanda. Klórað er skeggi, klórað er búk, brátt skal fundur hefjast. „Nú skal spjalla, vinir, nú skal þræta, fjendur, já, nú verður gaman." Blaðamannafundur í „byltingarland- inu“ Chile í byrjun jólamánaðarins. Fjöl- miðlasnápar (og aðrir andvökumenn, sem láta sér mjög annt um örlög heims), ljós- myndavélar, kvikmyndavélar, sjónvarps- vélar — allt í einum haug. Andakt og spenna, hér er að gerast söguríkur at- burður: fyrsti alþjóðablaðamannafundur Fidels í fjölda ára. Allra þjóða kvikindi, 250 stykki, vinstrisinnaðir, hægrisinnaðir, sumir sinnulausir. Von vesalinganna, konungur konunganna, mun brátt tala, byrla af vizku sinni, pata höndum, reið- ast, hlæja, prédika; já, prédika heil ósköp. En nú er ljós lýðsins þreyttur að sjá, enda engin furða. Hann er búinn að vera á stanzlausu spani um allt Chile í 25 daga, kjaftandi linnulaust. (Að vísu er bjarg- vættur vanur kjálkaleikfimi frá heima- landinu, en utanlandsferðalög hafa ekki verið á dagskrá foringjans: hann hefur ekki látið sjá sig utan Kúbu í 6 ár). Þótt þróttmikill sé, var ekki laust við að hann kvartaði yfir því, að vinur hans, Allende fórseti Chile, gæfi honum ekki nægan tíma til þess að slappa af. „En ég er samt sem áður þróttmikill, vegna þess að bylt- ingarandinn gefur mér tífaldan kraft. Þegar ég drepst, ætla ég að gefa hjarta mitt Náttúrugripasafni Kúbu, með svo- hljóðandi undirskrift: „Hér er hjartað, sem þraukaði viðdvöl Castros í Chile 1971“.“ Síðasta kvöld Castros í Chile, blaða- mannafundur, sjónvarpað og útvarpað um víða veröld. Ljósberi lagar sig til, togar í nærskyrtuermarnar, sem standa framúr grænni byltingarmannaskyrtunni. „Fyrir- gefið, ég verð víst að kippa þeim upp“ ... Maðurinn Castro, strákslegur, viðfeldinn — „simpatico“. Snápar slappa af, spurn- ingar byrja. Félagi Fidel, verndari almúgans, kon- ungur ræðumanna. Gullfalleg, rám, syngj- andi rödd, frjálsar, en nákvæmar hreyf- ingar — miklar hreyfingar. Hraðmæltur, hagmæltur, eftir þvi sem við á — Fidel hefur unun af því að tala. Byltingin skín Pétur: „Hvernig stendur á því, aö Ameríkanar hafa herstöð á Kúbu?“ 30

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.