Samvinnan - 01.02.1972, Side 57
(Skellihlátur fundargesta). f raun og veru
eru langflest íslenzk fyrirtæki svo fárán-
lega lítil, að erfitt er að bera þau saman
við fyrirtæki í öðrum löndum.
Fidel: Hvað er þá ísland, kapítalískt
eða sósíalískt land?
Pétur: íslandi svipar mjög til félags-
og efnahagsfyrirkomulags annarra Norð-
urlanda. Mismunurinn er sá, að núna er
á íslandi stjórn, sem nokkrir marxistar
eiga aðild að, og eitt af stefnuatriðum
þessarar stjórnar er að losa okkur við
bandaríska herstöð, sem er búin að vera
á íslandi um árabil.
Fidel (brosandi): Þetta líkar mér vel
að heyra. (Alvarlegur). Ef þessi stjórn
rekur Kanann burt, er ástæða til að
senda henni beztu heillaóskir.
Pétur: En þetta er ekki byltingarstjórn,
heldur hægfara umbótastjórn.
Fidel: Jæja, þetta er þá umbótastjórn,
en mun hún losa sig við herstöðvar Kan-
ans?
Pétur: Ég efast um það. (Skellihlátur
fundargesta). Ég held að ....
Fidel (grípur framí): En losar þessi
stjórn sig ekki við Kanana vegna þess að
hún vill ekki losna við þá, eða vegna þess
að hún getur ekki hent þeim út?
Pétur: Ég býst við, að hún muni afsaka
sig með því að segja, að hún geti ekki
losnað við þá, en að sjálfsögðu er hugtak
eins og „vilji“ einungis skilgreiningar-
atriði.
Fidel: í raun og veru vilja þeir ekki
losna við Kanann?
Pétur: Það mætti segja sem svo.
Fidel: En þá er þetta ekki alþýðustjórn.
Pétur: Ja, að vissu leyti má líta á hana
sem slíka, þar sem meirihluti alþýðu kaus
hana í frjálsum kosningum.
Fidel: Er þetta fasistastjórn?
Pétur: Þetta er ekki fasistastjórn.
Fidel: En hvernig stendur á því, að hún
leyfir Kananum að hafa herstöð þarna;
hvernig stendur á því, að hún vill ekki
losna við hana?
Pétur: Hvernig stendur á því, að Amer-
íkanar hafa herstöð á Kúbu? (Hlátur).
Fidel: Ja, þetta er rétt og þó ekki. Ég
skal skýra mjög vel mismuninn. Þú sagðir,
að þarna í Norðrinu langar þá ekki til
þess að losna við herstöðina, en ég segi
þér, að við á Kúbu getum ekki losað okk-
ur við þá.
Pétur: Auðvitað. Á íslandi er einnig
sagt, að ekki sé hægt að lo:-na við þá,
vegna þess að fjárhagslega og ....
Fidel (grípur framí): En þú sagðir mér,
að íslendingar segi að þeir hafi ekki bol-
magn til að henda þeim út, en að þú
haldir í raun og veru, að þeir vilji ekki
losna við þá. Ég var rétt í þessu að segja
þér, að við getum ekki losnað við þá. Ég
spyr þig, heldur þú virkilega, að okkur
langi ekki til að losna við þá? (Hvessir á
Pétur augun). Svaraðu mér!
Pétur: Þetta er svipuð spurning og ef
þú hefðir spurt mig, hvort japanskir
ráðamenn vildu losna við mengunar-
vandamál Tókíóborgar. Ég mundi svara
þessari spurningu á þá leið, að núna af-
saki þeir sig með því að segja, að of dýrt
og erfitt yrði að hreinsa borgina. En ef
50.000 manns dyttu niður dauðir af völd-
um andrúmsloftseitrunar á morgun í
miðborg Tókíó, getur þú verið viss um,
að gripið yrði til róttækra ráðstafana, án
tillits til kostnaðar eða erfiðleika. Sama
máli gegnir um ykkur á Kúbu, þið ....
Fidel (grípur framí): En þú ert ekki
enn búinn að svara mér. Svo virðist sem
þú haldir að við getum tekið herstöð
Bandaríkjamanna í Guantanamo (Kúbu).
Pétur: Þegar þið sjáið bráða nauðsyn
til að losna við herstöðina, munuð þið
losa ykkur við hana.
Fidel: Þótt við þyrftum að losna við
herstöðina, gætum við ekki gert það. Það,
sem þú hefur stungið uppá, væri hættu-
leg ógnun við Bandaríkin og jafnframt
hreint brjálæði. Blátt áfram hrein vit-
firring. Við, sem berum ábyrgð á velferð
átta milljón Kúbubúa, við förum ekki i
stríð bara að gamni okkar (fundargestir
klappa). Við hættum okkur ekki út í
ævintýramennsku bara að gamni okkar.
Og sízt af öllu gerum við það til þess að
þóknast skoðunum heimspekings, sem
ferðast um spekúlerandi í vandamálum
heimsins. Sá, sem segir, að við gætum og
ættum að taka herstöð Bandaríkjamanna,
fer með fjarstæðu, sem í raun og veru
gerir hann óhæfan jafnvel sem „áhorf-
anda“. (Fidel þagnar, segir mjög lágt):
í raun og veru er ég steinhissa á þessari
uppástungu. Steinhissa. (Muldrar í barm
sér): Vonandi getum við losnað við þá.
Eftirmáli
Þögn slær á salinn. Fidel lítur á úr
sitt, virðist þreyttur, utan við sig: „Nú
eru liðnar þrjár klukkustundir, þrjár
klukkustundir, bezt að hætta þessu.“
Fundarmenn reyna hver af öðrum að ná
athygli Fidels. Ameríkani frá sjónvarps-
stöðinni NBC stendur upp. Fidel: „Heyrðu
góði, þú ert þegar búinn að tala. Ég hélt,
að þú værir svo mikill lýðræðissinni. Ef
þú ert frekur, átt þú á hættu, að allir
hinir reiðist við þig.“ Fundarstjórinn
leyfir blaðamanni frá chileska dagblað-
inu Clarin (styður Allende) að bera fram
síðustu spurningu kvöldsins:
Oscar Vega, blaðamaður Clarins: Þetta
verður mjög stutt spurning, comman-
dante. Ég ber fram mína spurningu ekki
sem áhorfandi, heldur sem þátttakandi í
byltingarferli við annan byltingarmann.
Fidel: Allt í lagi, ég skal svara henni,
ef hún er ekki of löng.
Oscar Vega: Gaman væri að vita hvert
var það augnablik, það atvik, sem hafði
sterkust áhrif á yður meðan á dvöl yðar
stóð hér í Chile. Ég á ekki við neikvæð
áhrif; þau eiga sér ávallt stað; frekar
hefði ég áhuga á að vita, hver var mesta
hamingjustund yðar, hvert var það atvik
sem hafði sterkust jákvæð áhrif á yður.
Fidel (annars hugar): Mjög erfið
spurning, mjög erfið. (Hnippir i Jaime
Suarez, ráðherra, fulltrúa Allendes).
Heyrðu, íslendingurinn virðist vera í
fýlu. Heyrðu íslendingur, ertu svekktur
út í mig? (Hlátur fundargesta). Ætlun
mín var ekki að ergja neinn, eh?
Pétur: Nei, nei, hafðu engar....
Fidel: Nei, ég segi það, vegna þess að
viðræður okkar enduðu á frekar slæmri
nótu. Ef þú ert svekktur út í mig, bið ég
þig innilega afsökunar.
Pétur: Ég er alls ekki svekktur út í þig,
síður en svo.
Fidel: Ef til vill var einhver misskiln-
ingur okkar á milli, en mér skildist, að
þú hefðir sagt, að þegar við vildum taka
herstöðina gætum við gert það.
Pétur: Þetta voru aðeins draumórar
evrópsks heimspekings, eins og þú sagðir
sjálfur. (Hlátur fundargesta).
Fidel: En hvað var það, sem þú sagðir?
Pétur: Ég sagði, að í því tilviki, að
nauðsyn bæri til athafnar, þ. e. a. s. í
byltingartilvikinu, væri ekki til neitt, sem
héti erfiðleikar nútíðar eða framtíðar.
Þetta er mín skoðun, þó að ég sé ekki
byltingarmaður, en þar sem þú ert bylt-
ingarmaður, gætir þú dæmt miklu betur
um þetta en ég ....
Fidel: Ég er nú ekki svo viss um það,
en hvað sem því líður, ert það þú sem
leggur mér ráðin núna.
Pétur: Mér virðist að í slíku tilviki sé
afstaða byltingarmannsins afdráttarlaus.
Fidel: Hvaða afstaða?
Pétur: Afstaða byltingarmanns. Er það
rétt, já eða nei?
(Löng þögn).
Fidel: Við erum báðir eyjarskeggjar, en
samt skiljum við ekki hvor annan. Og
báðir höfum við herstöðvar Kanans. Við
skulum sjá til, hvor okkar verður fyrri til
að losna við þá, en því miður eru þjóðir
okkar mjög smáar. Ég er hræddur um, að
einum saman muni okkur ekki takast að
leysa þetta vandamál, sízt af öllu hér
í kvöld.
Pétur: Ég er þér alveg sammála um það.
Fidel (steinhissa): Hvað áttu við?
Pétur: Ég er þér sammála um, að erfitt
væri að leysa þetta vandamál í kvöld.
Þess vegna væri betra að hafa frekari við-
ræður um málið, en sjálfsagt væri betra,
að þú byðir mér til Kúbu. (Skellihlátur
fundargesta) ....
Fidel (grípur framí): Það gæti vel
komið til greina.
Pétur (heldur áfram): .... heldur en
ég bjóði þér til íslands, vegna þess að ég
er hræddur um, að ísland yrði of kalt
fyrir þig.
Fidel: Það má vel vera. Ég væri mjög
ókurteis, ef ég tæki ekki vel í beiðni þína
um viðtal við mig. Talaðu við kúbanska
sendiherrann, sem er hérna í kvöld, og
biddu hann um vegabréfsáritun. — En
hvað með fargjaldið? Eru til peningar
fyrir fargjaldinu?
Pétur: Við skulum vona það. (Hlátur
fundargesta).
Fidel: Fínt er. Heyrðu, þú veizt, að við
Kúbumenn erum fátækir, ekki satt?
Pétur: Vissulega, en kannski gætum við
báðir borið byrðina, eh?
Fidel: Ja, örugglega verður brátt laust
sæti í póstflugvél okkar (sem fer milli
Chile og Kúbu á vikufresti), og við mun-
um ekki tapa neinu þótt þú færir með
henni. Talaðu við sendiherrann og hann
lætur þig vita, hvenær þú getur farið til
Kúbu með vélinni. Á Kúbu skulum við
halda áfram viðræðum okkar. Og ef þig
langar til, getum við einnig fengið okkur
smágöngutúr umhverfis herstöðina í
Guantanamo. (Mikill hlátur). 4
53