Samvinnan - 01.02.1972, Síða 62
alvöru. Sá finnur, sem leitar, og fyrir
þeim mun upp lokið, sem á knýr.
Hins vegar er kvartað um sambands-
leysi á fleiri sviðum. Fjarlægðir hverfa
milli landa og manna, en gagnkvæmur
skilningur vex ekki að sama skapi. Skáld-
in segja, að þau nái ekki sambandi við
lesendur, og sumum skáldum er það
vandamál, hvernig háttað sé sambandi
eigin orða við anda þeirra sjálfra. Og
lesendur skáldskapar kvarta undan því,
að þeir nái ekki neinu taki á því, sem
höfundar eru að túlka. Og mikið hefur
verið talað um sambandsleysi stjórnmála-
manna við fólkið. Kirkjan er ekki ein
í erfiðleikum. En meðan lifandi æð er í
henni, hlýtur hún að gangast undir
þyngra sjálfdæmi en nokkur annar aðili.
H
Nú er þetta orðið lengra mál en áform-
að var.
Umræðan, sem er tilefni þessara orða,
kemur víða við og stendur fyrir sínu. Það
er aðeins þrennt, sem mig langar að
víkja að, áður en ég set punkt.
Árni Bergmann vekur máls á því, að
niðurstaða af athugun á siðgæðislegum
þroska kristinna manna annars vegar og
ókristinna hins vegar hafi verið þeim
kristnu óhagstæð.
Ég dreg ekki í efa, að hann hafi farið
rétt með þessa niðurstöðu, svo langt sem
hún nær. En ég fullyrði, að draga
mætti fram óteljandi staðreyndir, sem
benda í gagnstæða átt. Ég hef t. d. séð
greinargerð fyrir könnun, sem nýlega fór
fram, líka í Bandaríkjunum, og fjallaði
um hjónaskilnaði. Þar fer 4. hvert hjóna-
band út um þúfur. En meðal hjóna, sem
fara reglulega saman í kirkju, er hlut-
fallið 1 á móti 57, og þegar þessu fylgir
reglubundinn lestur Biblíunnar og bæna-
líf á heimilinu, kemur sjaldan fyrir, að
hjónaband lendi i strandi.
Hitt er annað mál, að kristinn maður
er ekki friðlýstur fyrir freistingum og
mannlegum annmörkum. Og sú hætta er
alltaf mikil, að tilteknir sigrar, t. d. á
siðgæðissviðinu, geri menn sjálfsánægða
og þóttafulla og hálfvegis blinda á það,
sem er utan við þröngt reynslusvið og
takmarkaðan mælikvarða meira eða
rninna afmarkaðs hóps. Hinn vammlausi
farísei, sem var ótviræður methafi i
ákveðnum dyggðum, er léttvægur fundinn
í guðspjöllunum. Og hann batnar ekki við
það að taka upp kristið nafn.
Annað nefnir Árni, sem er íhugunar-
vert. Hann spyr, hvernig líta beri á það,
þegar menn gera ekki ráð fyrir Guði en
ganga samt fram í kærleika.
Hitt er mér miklu meiri spurning,
hvernig menn, sem játa Guð kærleikans,
geta verið uppfullir af úlfúð og hatri. En
hvort tveggja er til. Og skýringin er sú,
að Guð er ekki flokksbundinn þeim, sem
þekkja hann eða vilja af honum vita. Og
djöfullinn kann að vísu vel við sig hjá
þeim, sem afneita Guði, en þykir ennþá
skemmtilegra að snúa á hina. Guð hefur
aldrei bundið sig við neina útvalda, hvorki
ísrael til forna né kirkjuna, þannig að
hann hafi gefið þeim einkarétt á að hugsa
gott og gera rétt. Miskunnsami Samverj-
inn, trúvillingur talinn, uppfyllti boðorð
kærleikans, presturinn og levítinn ekki.
Sérfræðingar í trú reynast stundum ónýt-
ir, þegar Guð þarf á þeim að halda.
Það er nauðsynlegt og rétt að leggja
áherzlu á holdtekju Guðs í Kristi, eins
og gert var við hringborðið. En ekki má
gleyma sköpuninni. Sá Guð, sem birtist
í Kristi, er skapari himins og jarðar og
allra manna. Hann hefur ekki látið
mannlífið afskiptalaust og gerir það ekki,
hvernig sem háttar um trú. Móðurást er
sú sama í kristnum barmi og ókristnum.
Læknisaðgerð hefur sama tilgang og ger-
ir sama gagn, hvort sem læknirinn er
kristinn eða ekki. Félagslegar umbætur
eru jafnverðmætar þó að heiðinn hugur
sé á bak við, ef þær eru til góðs fyrir
manninn. Lúther hefur sagt margt hald-
gott og spámannlegt um starfsemi Guðs
í sköpuninni, og væri gaman að fara
nánar út i það við tækifæri. Guð, skapari
minn og þinn, hefur ekki gefið oss orð
sitt eða kirkju sína til þess að binda
hendur sínar með einkaleyfi á góðum
verkum handa afmörkuðum hópi manna.
Hann er allra manna Guð. Og samkvæmt
Biblíunni verða allir menn að síðustu
dæmdir eftir verkum sínum, jafnt kristn-
ir menn sem ókristnir Og það vita kristn-
ir menn frá fyrsta fari, að náðin og sann-
leikurinn, sem Kristur hefur gefið þeim,
sem þekkja hann, gerir þeim ekki auð-
veldara að mæta fyrir dómstóli Guðs, ef
sú gjöf hefur orðið þeim til ónýtis.
Þá er það í þriðja lagi spurning ritstjór-
ans um það, hvort kirkjan sé ekki vilhöll
i afstöðu sinni til alþjóðlegra málefna.
Allir menn eru í þeirri hættu að mótast
af umhverfi sínu, sjá ekki gegnum áróður,
verða einsýnir. Kirkjunnar menn mega
vissulega vara sig á slíku, og oft hafa
þeir fallið á slíkum prófum.
Stríðið í Víetnam er einkum nefnt í
þessu sambandi. Það er rétt, að kirkja
íslands hefur ekki staðið fyrir né tekið
sem slík þátt í mótmælum gegn he-naði
Bandarikjamanna þar í landi. Alþjóða-
samtök kristinna manna, sem kirkja vor
er aðili að, hafa hins vegar gert það. Á
þeim vettvangi er islenzka kirkjan ekki
að neinu leyti í forustu, eins og skiljan-
legt er. Því síður hefur hún aflsmuni til
þess að skakka hinn ljóta leik austur þar.
Allir vita, að þar er háð styrjöld milli
stórvelda. Sökin er varla öll annars vegar.
En þjóðhöfðingi Bandaríkjanna leggur
hönd á helga bók, þegar hann gengst
undir ábyrgð sína. Því mega kristnir
menn gera meiri kröfur til hans og þjóðar
hans en til mótpartsins. Og í þá átt er
lika hægt að koma mótmælum fram, ekki
í hina. Bandarískar kirkjur, félög og ein-
staklingar geta gagnrýnt aðgerðir stjórn-
arvalda sinna og mótmælt þeim, án þess
að eiga opinbera lögsókn og fangelsi yfir
höfði sér, þó að fantar og skríll taki
stundum tauminn af réttvisinni.
Hvað sem líður valdaskákinni í veröld-
inni, þá er það ljóst, að hörmungarnar í
Víetnam allt frá styrj aldarlokum (að'
ógleymdu nýlenduskeiðinu áður) hljóta
að hvíla þungt á hverri heilbrigðri sam-
vizku, fyrir utan þann háska, sem vofir
yfir, að þessi refskák verði að heimsstríði
Það sjá víst flestir, að Bandaríkjamenn
hefðu átt að vera búnir að draga sig út
úr þessu fyrir löngu, allra hluta vegna.
En engum einum treysti ég til þess að
leysa þennan hnút né aðrar örlagaflækj-
ur, sem líf hnattarins er undir komið. Þar
er vonin sú ein, að pólitík hins s. n. valda-
jafnvægis, með þeirri tortryggni, því her-
námi hugarfarsins undir ofbeldi óttans,
sem sú pólitik byggist á og leiðir til, þoki
fyrir jákvæðari hugsun á báða bóga eða
allar síður.
Hjálparstarf kirkjunnar er gersamlega
óháð stjórnmálalegum viðhorfum. Það
miðar að því að bæta úr neyð, hvar sem
hún er, auk þess sem það vinnur sam-
kvæmt langtíma áætlunum að efnalegri
uppbyggingu í þróunarlöndum.
íslenzka kirkjan hefur tiltölulega ný-
verið gerzt umtalsverður þátttakandi í
þessu starfi. Aðild hennar hlýtur að vera
takmörkuð hlutfallslega. Hún hefur í
fyrsta lagi einbeitt sér að fáum, stórum
verkefnum, þar sem neyð hefur dunið
yfir skyndilega (Bíafra, Perú, Pakistan),
og liklegt var, að islenzkt framlag gæti
eftir atvikum munað nokkru. í öðru lagi
tekur íslenzka kirkjan að sér ákveðin
verkefni, samkvæmt tilvísun þeirra al-
þjóðlegu stofnana, sem sjá um skipulag
þessarar starfsemi fyrir hönd allra aðild-
arkirkna. Loks vill Hj álparstofnun kirkj-
unnar láta til sín taka á innlendum vett-
vangi, eftir því sem geta hrekkur til.
Það er ekki nein blindni á þörfina í
Víetnam, því siður pólitísk hlutdrægni,
sem veldur því, að íslenzka kirkjan hefur
ekki látið til sín taka um hjálparstarf
þar í landi. Hún hefur ekki hingað til
megnað meira en hún hefur gert, ekki
getað dreift sínum rýra skerfi viðar. Ég
vona hins vegar eindregið, að þegar styrj-
öld lýkur í þessu hrjáða landi, verði ís-
land með í því að græða einhver sár þar.
Að síðustu verð ég að gera athugasemd
við ummæli ritstjórans vegna komu þýzku
blaðakonunnar hingað, sem vakti máls á
þátttöku hér í alþjóðlegri söfnun til að
reisa heilbrigðismiðstöð í Hanoí. Mér er
ókunnugt um, við hverja hún ræddi aðra
en mig, en ég held ég megi fullyrða, að
ég hafi tekið henni vel og máli hennar.
Ég sagði henni eins og satt var, að enginn
gæti búizt við, að hlutur vor yrði stór
í slíku samstarfi. Það skyldi hún vel. En
ég sagðist mundi fagna því, ef íslenzka
kirkjan fengi að vera með í þessu, jafn-
vel þótt það hefði ekki nema táknræna
þýðingu. Hún hafði ekki meira um málið
að segja að sinni, og skildum við vinir,
að ég held. Ég bað hana að lofa mér að
fylgjast með málinu og láta mig vita,
þegar hún hefði nánari upplýsingar í
höndum, sem vér þyrftum að hafa til
þess að geta eitthvað í þessu gert. Hún
lofaði því. En síðan hef ég ekkert frá
henni heyrt. Ég veit ekki hvers vegna. En
ekki er sökin mín né íslenzku kirkj-
unnar. 4
58