Samvinnan - 01.02.1972, Qupperneq 66
VEKUR AÐDÁUN ALLRA FYRIR NÝTÍZKULEGT
ÚTLIT OG VANDAÐA VINNU
FJÖLBREYTT ÚRVAL FAGURRA ÁKLÆÐA
SKEIFAN
KJÓRGAR-ÐI, SIMI, 16975
William Hogarth (1697—
1764), enski málarinn og graf-
listarmaðurinn, varð einhverju
sinni fyrir því, að gamall nirfill
bað hann að mála mynd af
tortímingu egypzka hersins i
Itauðahafi, en bauð svo hlægi-
lega lága borgun, að ITogarth
neitaði að vinna verkið. Eftir
mikið málþóf sættust þeir loks
á upphæð, sem var mitt á milli
þess sem nirfillinn hafði boðið
og málarinn hafði sett upp.
Hogarth setti samt það skil-
yrði, að hann fengi greiðsluna
fyrirfram, og á það féllst nirf-
illinn. Nokkrum vikum síðar
barst honum málverkið. En
reiði hans og ofboð áttu sér
engin takmörk, þegar hann
komst að raun um, að í ramm-
anum var ekki annað en lér-
eftsferningur þakinn rauðri
málningu. í ofsabræði sendi
hann strax eftir Ilogarth.
— Hvað er að? spurði Ho-
garth mildilega. — Lízt yður
ekki á myndina?
— Uff, hvæsti nirfillinn. Þér
hafið blekkt mig og svikið.
Hvar eru ísraelsmennirnir?
— Þeir eru allir kornnir yfir
heilir á húfi.
90 HERBERGI
öll með baðkeri eða steypibaði,
síma, útvarpi og sjónvarpi ef
óskað er. Athugið hina fjölbreyttu
þjónustu er Hótel Saga hefur að
bjóða, svo sem hárgreiðslustofu,
snyrtistofu, rakarastofu, nudd og
gufuböð.
Viljum sérstaklega vekja athygli
á hinni miklu verðlækkun á gist-
ingu yfir vetrarmánuðina.
HAGATORGI 1 - REYKJAVÍK - SÍMI 20600
62