Samvinnan - 01.02.1972, Qupperneq 68

Samvinnan - 01.02.1972, Qupperneq 68
mýsnar? Það gera kettirnir. Og hver elur bezt upp ketti, þann- ig að þeir tímgast í þúsunda- tali? Það gera piparmeyjarnar. Þannig getur England þakkað heilbrigða og þróttmikla íbúa sína engum öðrum en pipar- meyjunum.“ Theodore Hook (1788— 1841), enskur skáldsagnahöf- undur og pólitískur ádeiluhöf- undur, fékk dag nokkurn að vita, að einn af pólitískum andstæðingum hans hefði gengið í hjónaband. — Það gleður mig innilega að heyra, sagði hann, en að andartaki liðnu sá hann sig um hönd: — Og þó! Hversvegna ætti það að gleðja mig? Hann hefur aldrei gert neitt veru- lega á hluta minn. Henrik Ibsen (1828—1906), norska leikskáldið heimskunna, dvaldist í Múnchen þegar bar- áttan um hið svonefnda „nýja leikform“ var í algleymingi. Eitt kvöld var Ibsen boðið til kappræðu við helzta formæl- anda hins umrædda nýja forms, Martin Greif, og fengu báðir höfundarnir tækifæri til að leggja fram og túlka eigin sjónarmið varðandi leikritun. Ibsen var æstur vegna skoð- ana andstæðingsins, og á leið- inni heim var hann enn að fjargviðrast útaf þessu við samferðamann sinn, Michael Georg Conrad. Þegar þeir voru komnir heim á dvalarstað Ib- sens, héldu þeir samræðunni áfram, og Ibsen sagði í reiði- kasti: — Hvað vill þessi Martin Greif eiginlega? Hverskonar leikrit eru það sem hann sem- ur? Leikrit um fólk sem er löngu dautt og grafið og sem hann hefur aldrei þekkt! Er hægt að skrifa um eitthvað sem maður þekkir ekki? Hvað koma þessar löngu liðnu per- sónur Martin Greif við? Hann ætti að geta látið þær í friði og skrifað um þá sem lifa einsog honum sýnist. Nú rýfur hann grafarró látins fursta í Bæjara- landi. Þegar hann er búinn með það, kemur væntanlega röðin að Hohenzollern. Því er ekki að neita að nóg er til af dauðum þjóðhöfðingjum. Mannkynssagan er löng. En það getur þó ekki verið verk- efni leikskálda í nútíman- um .... Hér tók hinn kurteisi og þolinmóði áheyrandi, Michael Georg Conrad, framí fyrir Ibsen: — En kæri doktor Ibsen, þér hafið sjálfur skrifað verk um Catilinu. — Það er allt annað mál, hrópaði Ibsen. — í fyrsta lagi var Catilina enginn kóngur, heldur stjórnleysingi. í öðru lagi var ég ekki leikritahöfund- ur þá, heldur apótekari. „Catilina“ er fyrsta leikrits- tilraun apótekara. Hefur Greif nokkurntíma verið apótekari? Jakob I (1566—1625), kon- ungur Englands frá 1603, heimsótti einhverju sinni lít- inn bæ útá landi, og var tekið á móti honum af opinberri móttökunefnd. Einn nefndar- manna las langa og skrúð- málga ræðu til kóngsins, þar sem meðal annars var látin í ljós von um, að konungur lifði jafnlengi og sólin, tunglið og stjörnurnar. — Góði maður, greip kon- ungur framí, ef ég ætti raun- verulega að lifa svo lengi, þá yrði sonur minn að stjórna ríkinu við kertaljós. Jerome K. Jerome (1859— 1927), enskt gamanskáld og m. a. höfundur bókarinnar „Þrír á báti“, var eitt sinn á ferða- lagi um Bandaríkin og varð þá að hlusta á það hundrað þúsund sinnum, að Englend- ingar gætu ekki í neinni grein borið sig saman við Banda- ríkjamenn að því er varðaði stærð og magn. Smámsaman varð hann bæði þreyttur og gramur yfir þessu gorti og sagði að lokum: — Þið Bandaríkjamenn er- uð sífellt að gorta af því, hve stórt land ykkar sé. En ef Sviss flettist út einsog Ameríka hef- 64
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.