Samvinnan - 01.12.1973, Side 9

Samvinnan - 01.12.1973, Side 9
vissuÖ þér þetta um smurost ? Að Humar- eða Rækjuostur hrærður saman við oliu- sósu er afbragð með köid- um fiskréttum. Að kjúklingasósan bragðast enn betur efhún er krydd- uð með Sveppaosti. sera vit hafa og vilja á að leysa hana sem bezt af hendi. Jeg i- mynda mjer því, að nauðsyn- legt framfaraskilyrði í þessari grein sje það að sameina fisk- inn á hina hentugu fiskverk- unarstaði; þar sje völdum mönnum falin umsjón á fisk- verkuninni. Þessi kenning þyk- ir nú ef til vill styðja blaut- fiskverkunina, sem svo margir fyrirdæma og það líklega af rjettmætum ástæðum. En þeir sem á annað borð hafa megn og manndáð til að komast hjá henni, þ. e. geyma afla sinn, þangað til hann er fullverkað- ur, geta vel lagt saman við ná- granna sina með að verka hann eptir rjettum reglum, ef þeir á annað borð vilja. Agnúarnir virðast mjer því, eptir dómi skynberandi manna og hlutarins eðli, gegn skjót- um framförum sjávarútvegar- ins vera einkanlega og í fám orðum þessi; 1. Fjárskortur þeirra manna, sem mesta hvöt og þörf hafa til þess að reka þenn- an atvinnuveg, efla hann og auka, svo sem með þil- skipum, íshúsum og fisk- verkunartækjum o. s. frv. Það er: þeirra manna, sem mestmegnis lifa á honum. 2. Vantandi verðtryggingar hjá þessum mönnum, þó að þeim væri gefinn kostur á nægu lánsfje. 3. Stirð samvinna milli út- gjörðarmanna og háseta og misjöfn hagnýting á þeim hluta, sem hásetarnir bera frá borði. 4. Óhagkvæm kaup á því, sem til árlegrar útgjörðar heir- ir, fyrir alla þá, sem ekki eru kaupmenn sjálfir. 5. Misjöfn verkun á fiskinum, þegar hver verkar heima hjá sjer. En er nú óhugsandi að yfir- stíga þessa agnúa alla í einu að mestu leyti eða öllu? Það er gamalt máltæki: „Tekst ef tveir vilja“. Hjer eiga tveir flokkar manna hlut að máli. í fyrri flokknum tel jeg þá, sem dálitið fjármagn hafa, en ekki leggja sinn eiginn vinnukrapt til þilskipaveiða (væntanlegir útgj örðarmenn), en i hinum flokknum eru þeir, sem lítið eða ekkert fje hafa annað en vinnuarð sinn, en eru fúsir að leggja fram vinnu- kraptinn (formenn og hásetar). Ef þessir tveir flokkar leggja saman, mynda regluleg sam- vinnufjelög með góðri stjórn og skipulagi og fylgja svo fyrir- tækinu með tiltrú og góðri von, þá skil jeg ekki í örðu en að mikið ávinnist og að það, sem vinnst þannig, verði notasælla en með nokkru öðru fyrirkomu- lagi. Jeg hugsa mjer fyrirkomu- lagið í aðalatriðunum á þessa leið. Menn á allstóru svæði, sem stunda fiskveiðar, ganga í sjálfsábyrgðarfjelag og sjeu inngönguskilyrðin meðal ann- ars viss hluteign í höfuðstóli fjelagsins (ekki mjög stór) og samsvarandi ábyrgð. Fjelagið kaupir og gjörir út svo mörg þilskip, sem það hefur efni og ástæður til. Það kemur og á fót samsvarandi frystihúsum, salt- forða, fiskverkunarstæðum og nauðsynlegum áhöldum. Allir hásetar á skipunum og stöðug- ir verkamenn sjeu i fjelaginu, og fá þeir vinnulaun sín í á- kveðinni hlutdeild aflans. Allur kostnaður við útgjörðina og fiskverkunina að öðru leyti sje fjelagslegur. Fjelagið annast sjálft eða með eigin erindreka sölu fisksins á markaði. Jafn- framt þessu sje fjelagið kaup- fjelag, þ. e. gjöri sameiginleg innkaup á öllum helztu nauð- synjavörum, ekki einungis til útgjörðarinnar, heldur og til heimilisþarfa hvers fjelags- manns. Það setji sjer strangar reglur um fiskverkunina. Hlunnindi við svona lagaðan fjelagsskap eru skjótt auðsæ, t. d.: 1. Að ýmsir smámolar, sem til lítils voru hagnýttir áður, verða þá sameinaðir í þjón- ustu framfarafyrirtækis í allstórum stíl og bæta að sínu leyti úr fjárskortinum. 2. Þess konar fjelag getur með sjálfskuldarábyrgð sett all- tryggilegt veð gegn nauð- synlegu fjárláni í viðbót við það veð, sem er í skipum þess og húsum. 3. Hjer fara hagsmunir allra saman; alúð og erfiði ein- staklingsins eru hagsmunir heildarinnar og hagsmunir heildarinnar koma ein- /-----------------------------------------------------------------------s sendir viðskiptavinum sínum beztu JÓLA- OG NÝÁRSÓSKIR V.__________________________________J 9

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.