Samvinnan - 01.12.1973, Síða 21

Samvinnan - 01.12.1973, Síða 21
bara Þingeyraklaustur 18. ald- ar, þá yrði það ferðamanna- staður. Jón: Enda var þetta ríkasta klaustur á landinu. Hörður: Það voru mörg svipuð höfuðból, en þau eru bara horf- in með öllu. Þessvegna sjáum við ekkert nema kotin frá sið- ustu öld. Jón: Þarna kemur bæði til tímans tönn, og svo hitt að landið var bókstaflega tæmt af öllu fémætu. Það var allt flutt til Danmerkur. Hörður: Ef þið hafið til dæmis lesið listann í Fornbréfasafninu yfir alla þá muni, sem teknir voru úr Þingeyraklaustri einu og fara mundu langt i að fylla Þjóðminjasafnið, þá munduð þið skilja þetta betur. Jón: Enda var ísland nýlenda, sem var notuð fyrir óefnilega pabbadrengi, sem gátu ekki unnið fyrir sér á heiðarlegan hátt. Þeir voru sendir til ís- lands í nokkur ár og komu heim og byggðu veglegar hallir, eftir að búið var að skrapa landið gersamlega bæði hár- laust og jafnvel húðlaust af listrænum hlutum. Norsk og dönsk áhrif Gísli: Ég hef á tilfinningunni að þráðurinn hafi slitnað á ár- unum frá 1830 til um 1930. Hörður: Ef við tökum húsagerð hér i Reykjavík og sjáum, hvað embættismennirnir hafa byggt í höfuðborginni og hve menn- ingarlegur bærinn er kringum árið 1900, þá fáum við aðra mynd en við erum vön að gera okkur af þessum tíma. En þá þýðir ekki að fara i moldarkof- ana við Arnarhól eða í Þing- holtunum. Við verðum að fara niðrí Lækjargötu og Tjarnar- götu. Jón: Að ekki sé minnzt á Ak- ureyri, Seyðisfjörð og ísafjörð. Um aldamót var Akureyri raunverulega miklu meira menningarsetur en Reykjavík. Þar sátu andans menn einsog Matthias og hans nótar. Gísli: En var það ekki fyrst og fremst byggt að Norðmönnum og Dönum? Jón: Auðvitað koma þar til bæði norsk og dönsk áhrif á húsagerð. Gylfi: Erlendu áhrifin eru menningarleg á þessum stöð- um. Gísli: En eru ekki okkar eigin framkvæmdir sem þjóðar litil- vægar á þessum tíma? Hörður: Alls ekki. Þetta er ná- kvæmlega það sama og skeður á miðöldum. Athugið bara, hvernig miðaldir mótast. Það er ekki til nein þjóðræknistefna. Ef þið lítið á gótíkina í Frakk- landi og Englandi og norður um alla Evrópu, þá mundu þessir afturhaldsseggir, sem skrifa í slúðurdálkana, segja að hér sé um að ræða tízku- stefnu þar sem hver apar upp eftir öðrum. Jón: Varla verður hægt að tala um tízkustefnur í sambandi við byggingar, sem tók kannski tvær til þrjár aldir að reisa. Gótíkin bryddir á ákveðnum nýjum byggingartæknilegum möguleikum, og það var efnið, einsog gjarnan vill verða, sem réð byggingarhættinum. Eins er byggingarlist á íslandi háð þeim efnum, sem fyrir hendi eru, þeirri veðráttu, sem verð- ur að byggja fyrir, og svo vit- anlega ríkjandi þjóðfélagshátt- um, þeirri fátækt sem þjóðin lifði við. Að sjálfsögðu byggðu höfðingjar og hið kirkjulega vald, meðan þess naut við, bet- ur en almúgamaðurinn. SAM: Þetta hrap, sem Hörður minntist á að átt hefði sér stað með siðaskiptunum, hlýtur að vera tengt því, að þá hverf- ur af vettvangi það afl sem stóð á bakvið svo mikið af list- sköpun þjóðarinnar, hið auð- uga kirkjulega vald. Þá höfð- um við enga arftaka hér heima. Útí Evrópu tekur aðallinn að verulegu leyti við hlutverki kirkjunnar í listrænum efnum, ræður til sín listamenn, en hér verður algert tómarúm. Jón: Það hörmulega í þessu máli er, að meðan kaþólska kirkjan sat við völd safnaði hún auði og völdum, en byggði um leið upp þjóðmenninguna, en með siðaskiptunum hverfur frumkvæði og framtak úr Stefán, Guðrún, Jón og Sigurður A. Magnússon. landi. Þá hættir þjóðin að geta tjáð sig í ákveðnum listform- um, en í staðinn fær hún „kulturvenlige Danskere“, sem hafa alls engan metnað fyrir hönd íslenzkrar menningar. Einsog ég sagði við danska vini mína á sinum tíma: Á 600 ára stjórnarskeiði Dana á íslandi reistu þeir aðeins eitt hús, og það var tukthús. Hörður: Þau voru að vísu fleiri. Hvað um Viðeyjarstofu? Jón: Auðvitað tók ég mér skáldaleyfi einsog Steinn Stein- arr. Þetta fór líka prýðisvel í Danskinn. Gylfi: Mig langar að benda á eitt í sambandi við ummæli Steins. Þegar hann lætur þessi orð falla, er Þjóðminjasafnið að kúldrast inní Landsbóka- safni, þannig að það litla sem til er af eldri arfleifð er varla sjáanlegt. Þessir hlutir eru ekki einusinni settir upp þannig nú, að við skoðum þá sem mynd- listarverk. Þessvegna förum við á mis við þann rétta skilning á fortíð okkar. Bókmenntir í fyrirrúmi Guðrún: Mér finnst líka rétt að benda á það, að þeir ís- lendingar, sem hafa verið okk- ar aðalmenningarfrömuðir, hafa miklu frekar haldið fram bókmenntum og bókmennta- arfi okkar. Þetta á við enn í dag. Það gætir miklu meiri skilnings á bókmenntum en öðrum listgreinum. Jón: Það er það eina sem virt er meðal íslendinga. Einsog Ás- mundur Sveinsson sagði ein- hverntíma, ef menn geta hnoð- að saman vísu eru þeir menn með mönnum, en allt annað er hégómi. Gylfi: Við verðum að hafa í huga í sambandi við bókina, að þegar endurreisnin er að hefj- ast hér á landi, þá er bókin fjölmiðill þeirra tíma. Leiðtog- arnir ná einungis til fólksins með hinu prentaða orði, með bókinni. Þeir geta ekki náð sömu áhrifum með myndum, og af því leiðir að þróun bók- menntanna verður miklu meiri og blómlegri en annarra list- greina. SAM: Má vera, en ég vil nú samt varpa fram þeirri stað- hæfingu, að íslenzk myndlist á þessari öld sé sízt ómerkari þegar á heildina er litið en bókmenntirnar sem samdar hafa verið. Hitt er kannski líka vert íhugunar, að enginn ís- lenzkur rithöfundur getur lifað af sínum verkum, nema Hall- dór Laxness, en það geta nokkrir myndlistarmenn. Hörður: Þeir eru áreiðanlega færri en þeir sem lifa á bók- menntum. SAM: Það lifir enginn rithöf- undur nema Laxness á bókum sínum. Hörður: Við skulum ekki deila um það. En ég vildi aðeins víkja að skilningi íslendinga á sjálfum sér og sögu sinni, sem ég álit vera rangan. Ég tel að rómanski stíllinn hafi verið 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.