Samvinnan - 01.12.1973, Síða 39

Samvinnan - 01.12.1973, Síða 39
Þorvaldur Kristmundsson: Fjölbýlishús við Fellsmúla. Gísli: Má ekki alveg eins segja, að við virkjum þá? Við megum ekki heldur gleyma því afar- mikilvæga atriði i sambandi við framtíðarhorfurnar, að þegar við tölum um menntun manna og möguleika til þroska- vænlegrar vinnu, þá ber okkur að stefna að því að verða ekki hreinir leiksoþpar, og það held ég að okkur auglýsingateikn- urum hafi tekizt. Þið eruð kannski þeirrar skoðunar, að arkítektarnir hafi ekki komizt hjá því? Guðrún: Nei, ekki sem stétt. Jón: Þeir verða að sætta sig við ákveðin skilyrði, eftir bita- stærð og þörf. Gísli: Ég hef þá trú, að á til- tölulega skömmum tíma mun- um við setja okkar eigin skil- yrði og rækja ákveðnar þjóðfé- lagslegar skyldur, semsé þær að vera tengiliður milli upp- lýsingavalds eða fræðsluvalds annarsvegar og auglýsinga- valds og almennings hinsvegar. Guðrún: Ég held að okkur muni líka takast þetta eftir á- kveðinn tíma. Hingaðtil hafa öll þessi mál verið skipulags- laus og í ólestri. Fólk hefur komið heim frá námi og allt lent í sömu myllunni, en skort alla samhæfingu og samtök. Jón: Gísli segir að auglýsinga- teiknarar hafi náð miklum ár- angri á skömmum tíma, og það er rétt. Forsenda þess er ein- faldlega sú, að verkkaupar telja sig hagnast á þvi og gera það efalaust. Þetta á sér líka stað í sambandi við arkítektúr meðal menningarþjóða. Þegar eitthvert fyrirtæki er orðið mjög öflugt eða einhver fjár- málamaður er búinn að auðg- ast nóg eða jafnvel á vafasam- an hátt, einsog til dæmis í Bandarikjunum, þá lætur hann reisa listasafn eða leikhús til að bera nafn sitt. Þegar Uni- lever er búið að græða nógu mikið, þá reisir það Lever- Gunnlaugur Halldórsson og Bárður ísleijsson: Reykjalundur í Mosfells- sveit. house, sem siðan er stælt í SAS-hótelinu í Kaupm.höfn. Viskíframleiðendur, sápufram- leiðendur og allskonar aðrir auðhringar gera slíkt hið sama. Það er talið sjálfsagt og við- eigandi að krýna fjárgróðann með menningarlegu framlagi, sem haldi nafni fyrirtækisins á loft, og þá er fenginn góður arkítekt til að teikna þessar stofnanir. Þetta er ekki hugs- unarhátturinn á íslandi. Hér er hugsunarhátturinn þessi: „Hvaða arkítekt getur komið þessu húsi í gegn fyrir mig með einni aukahæð ofaná og af- slætti á taxta?“ Spurningin hér er, hver situr i borgarráði, lrver situr í skipulagsnefnd, hvaða maður getur til dæmis fengið samþykkt hótel á óskipulögðu svæði undir Öskjuhlíðinni? Gylfi: Ertu að benda okkur á Halldór Jónsson eða hvað? Jón: Nei, rneira að segja er- lendir listamenn lenda í klón- um á þessu fólki, þegar þeir ætla að fara að byggja yfir sig á íslandi. Hörður: Mér finnst það alveg rétt sem Gisli var að segja. En hinsvegar verðum við að gæta þess, að á því er talsverður munur að láta gera auglýsingu, sem kostar 10 til 15 þúsund krónur og eitthvað að auki í framleiðslu, og að láta teikna heilt hús, sem kostar kannski milljónir. Ég er hér að verja arkítektana, þvi þeir ná ekki eins vel utanum sín verkefni og auglýsingateiknarar. III nauðsyn Gísli: í bókagerð er um að ræða upphæðir sem skipta hundr- uðum þúsunda. Þegar ein- hver er fenginn til að hanna eða teikna bók, er það talinn vera aukinn kostnaður, og þá er spurningin hvort hann skil- ar sér aftur. í þeim tilfellum þar sem við höfum fengið að fjalla um bækur, þannig að þær hafa orðið dýrari, hefur tekizt að láta þennan aukna kostnað skila sér aftur ein- hverra hluta vegna, þráttfyrir það að við höfum haldið í heiðri þær grundvallarreglur, sem við viljum starfa eftir, og ekki gerzt undirtyllur eða leigþý eða hvað menn vilja kalla það — þ. e. a. s. ekki far- ið eftir því sem útgefendur hafa helzt beðið um. Þetta er til, og ég held það sé hægt að komast áleiðis með einbeitni og þrautseigju. Stefán: Þörfin fyrir þessa þjónustu verður að vera fyrir hendi, og hún verður að vera skynjuð af þeim sem völdin hafa og peningana. Gísli: Það er hægt að búa hana til. Stefán: Alveg rétt. Þar höfum við brugðizt. Jón: Hér er kannski líka um að ræða illa nauðsyn. Fram- leiðendur telja sig þurfa aug- lýsingar, þeir þurfa menn til að hanna bækur og teikna aug- lýsingar. En þegar kemur að byggingarlist, þá líta ráða- menn svo á, að fagvinna arkí- tekta sé illur óþarfi. Ég ætla ráðamönnum, að minnstakosti stjórnmálamönnum (ég vil ekki tala um arkítekta í valda- aðstöðu), ekki svo illt innræti, að þeir mundu viljandi og vit- andi vits ráðstafa þessum verð- mætum, sem fólgin eru í skipu- lagi og byggingu borga, á jafn- guðlausan, kjánalegan og kæruleysislegan hátt og raun ber vitni, ef þeir héldu ekki í hjarta sínu, að það sé eigin- lega andskotans sama hvernig þetta er gert. Þar komum við aftur að menntakerfinu. Fólk er ekki alið upp við arkítektúr og því gersamlega óupplýst í sjónmenntum. Það heldur að allt sé í lagi, afþví það veit ekki betur. Hörður: Það var minnzt á ó- kosti þessa skipulags, ókosti kapítalismans og ókosti sósíal- ismans, en í fagi Gísla, aug- lýsingaþjónustunni, eru kostir kapítalismans augljósir. Jón: Ótvírætt í þeim skilningi, að meira komi i kassann. Hörður: Þetta er semsagt hið frjálsa framtak einsog það ger- ist bezt, og athugið það, að þar kemur enginn stjórnmála- maður nálægt. Það eru ein- ungis einkaframtaksmenn. Jón: Og þeir sjá, að varan selst betur, þegar góðir fagmenn standa að því að hanna hana og auglýsa. 39
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.