Samvinnan - 01.12.1973, Síða 56
Ole Skjerbæk Madsen:
KOPTARNIR í
EGYPTALANDI ÞOKASTTIL
NÝRRAR SJÁLFSVITU N DAR
Fyrir rúmu ári var í fréttum skýrt frá
ofsóknum á hendur kristnum mönnum í
Egyptalandi. Kiikja í Khanka, ekki langt
frá Karíó, hafði verið eyðilögð vegna
misklíðar milli kristinna manna og
múhameðstrúarmanna á staðnum. Til
svipaðra atburða kom nokkrum mánuð-
um áður í bænum Banha í óshólmum
Nílar. í Banha eru múhameðstrúarmenn í
miklum meirihluta. í þessu greinaikorni
verða dregnar fram ýmsar aðstæður, sem
varpað gætu ljósi á afstöðu kirkjunnar
til hins múhameðska samfélags í Egypta-
landi. Gieinin byggir bæði á eigin at-
hugunum, sem ég gerði meðan ég dvald-
ist í Egyptalandi, og á fréttaklausum sem
meðal annars hafa birzt í „Orthodox
Kyrkotidning". Sömuleiðis styðst ég við
samtöl við ýmsa Egypta.
Einsog stendur eru um sex milljónir
kopta í Egyptalandi, en samtals eru
landsmenn kringum 33 milljónir. Hvers-
dagslega verður ekki vart við neinn grein-
armun á múhameðstrúarmönnum og
kristnum mönnum. Þeir búa hlið við hlið,
og oft er um að ræða gagnkvæm vin-
áttutengsl, en það er ekki rætt um trú-
mál. Yfirleitt vita hvorir um sig mjög
lítið um trúarbrögð hinna. Undir yfir-
borðinu biitist hinsvegar önnur mynd.
Menningarþrýstingur
Koptar geta ekki gleymt því, að þeir
eru hinir raunverulegu Egyptar, og þó
finna þeir tilfinnanlega fyrir hinum
múhameðska menningarþrýstingi. Við
það bætist, að á dögum Englendinga og
Farúks konungs gegndu margir koptar
ábyrgðarmiklum embættum. Eftir bylt-
ingu Nassers breyttist það verulega.
Mörgum koptum finnst þeir nú vera af-
skiptir, þeir fái lélegustu embættin og
framhjá þeim sé gengið við styrkveit-
ingar. Það er semsé einkum meðal vel-
menntaðra kopta sem óánægju gætir, og
vafalaust er það ein af orsökum þess
að margir háskólamenntaðir koptar
hverfa úr landi.
Fyrir utan þessi vandamál geta komið
upp alvarleg vandamál hjá ungu fólki
sem fellir hugi saman og hyggst ganga
í hjónaband, en er hvort af sinni tiú.
Að því er hjónabandslöggjöfina varðar
er réttaikerfið tviskipt, og þegar stofnað
er til hjónabands verður annaðhvort að
fara að múhameðskum eða kristnum lög-
um. Þessvegna verður annar aðilinn að
skipta um trú, og í reyndinni me: kir það,
að kristni aðilinn verður að ganga af
trú sinni. Skilnaðarvandamálið kemur
líka inní þetta samhengi. Samkvæmt
kristna réttarkerfinu er hjónaskilnaður
óheimill, en skipti annar aðilinn um trú
— ekki endilega svo að hann taki upp
múhameðstrú, heldur getur hann játast
annarri kristinni kirkju — þá er farið
eftir múhameðskum réttarreglum, og
skilnaður er karlmanninum auðveldur.
Gagnvart hinum kristna minnihluta
stendur múhameðstrúin, höfuðtrú hins
arabíska heims. Hún er ríkistrú Egypta
og einingarband milli Arabalanda. Þeg-
ar gerður var sáttmáli um samband milli
Líbýu, Sýrlands og Egyptalands, kom
þetta einkar greinilega fram. Ýmsir
koptar létu i ljós kvíða, þegar sáttmálinn
var undirritaður. Að skilningi Kaddhafís,
leiðtoga Líbýu, mun vegsemd múham-
eðstrúar verða endurvakin þegar hin
samarabíska hugmynd verður að veru-
leika á grundvelli múhameðstrúar. Sadat
er einnig sannfærður múhameðstrúar-
maður.
Um allan hinn múhameðska heim hef-
ur kirkjum verið lokað. í Norður-Afríku
eru aðeins fáir kristnir menn eftir. I
Tyrklandi hefur orþódoxa kirkjan ein-
ungis litla prestaskólann í Níkósíu, eftir
að guðfræðiháskólanum á eynni Khalkis
við Istanbúl var lokað af ríkisstjórninni.
Aðeins í Egyptalandi er til kirkja með
lífsmagni, en lengi hefur verið klofning-
ur milli kirkjudeildanna: koptar og grísk-
orþódoxir hafa ekki getað komið sér sam-
an um, hvort koptíski eða orþódoxi patrí-
arkinn er hinn sanni arftaki Markúsar
postula.
Fyrrlitning á múhameðstrú
Það hefur verið lítið um samræður milli
kristinna manna og múhameðstrúar-
manna í Egyptalandi, og í þeim efnum
hefur koptíska kirkjan ekki staðið sig
sérlega vel.
Hinsvegar hafa grísk-orþódoxi patrí-
arkinn og grísk-kaþólski söfnuðurinn
(grísk-kaþólskir og grísk-orþódoxir eru
tvær aðskildar og ólíkar kiikjudeildir,
sem venjulega er ruglað saman í íslenzk-
um kennslubókum) haldið uppi samræð-
um um miðlæg guðfræðileg vandamál.
Meðal kopta gætir mikillar fáfræði um
múhameðstrú; það er litið niður á
múhameðstrúarmanninn fyrir trú sína.
„Sá maður er heimskur, sem trúir á
Múhameð, hann átti nú svo margar kon-
ur.“ „Múhameð var lygari, enda lærði
hann lygar sínar af fráföllnum kristnum
töframanni.“
Koptarnir þekkja ekki sögu múhameðs-
trúar og spyrja ekki um trúarlegt inntak
eða erindi hennar. Þessvegna á sér ekki
stað nein trúfræðileg samræða. Afturá-
móti heyrir maður gjarna heimskulegar
sögur um múhameðstrúarmenn. Þó ekki
sé hægt að ræða opinskátt við múhameðs-
trúarmanninn um pólitisk eða trúarleg
efni, er ævinlega hægt að veita árásar-
hneigðum sinum útrás með meinfyndni.
Hiáturinn er einasta vopn koptísku kiikj-
unnar, en af fornri vegsemd hennar er nú
harla lítið eftir nema grískar og ítalskar
glansmyndir og brennandi rafmagns-
hjarta Jesú. Af séikennum kopta hefur
til þessa i rauninni aðeins verið um að
ræða guðsþjónustuna, en jafnvel þar eru
arabísk áhiif tekin að þoka koptískum
siðum til hliðar. Hingaðtil hafa trúarhá-
tíðir verið haldnar á kyrrlátan hátt, þar-
eð landið er ekki kristið, en nú er þetta
að breytast.
Landvinningar og samtök
Koptíska kirkjan er aftur að verða at-
kvæðamikil í egypzku þjóðfélagi, og hún
hefur látið æ meir til sín taka siðan
Shenoute III varð patriarki i nóvember
1971. Gert hefur verið mikið átak i skóla-
málum. Á biskupsárum sínum kom Shen-
oute miklu til leiðar á vettvangi sunnu-
dagaskólans. En nú er um að ræða hina
piestlegu þjónustu við söfnuðinn. Kröf-
ur um betri menntun presta verða æ
háværari. Prestaskólinn í Kairó, þar sem
patríarkinn sjálfur kennir, er talinn gott
menntasetur. Ennfremur var snemma á
síðasta ári reistur nýr prestaskóli í Alex-
andriu, sem hefur þannig í fyrsta sinn
síðan í fornöld aftur eignazt raunveru-
legan háskóla. í fyrrasumar sóttu skól-
ann um 150 guðfræðistúdentar. Aukþess
eru haldin kvöldnámskeið. Síðasta aðgerð
Shenoutes er áskorun til háskólageng-
inna kopta um að láta vígja sig til
prestsþjónustu í hjáverkum. Fimm slíkir
menn hafa þegar verið vígðir. Kirkjan
hefur ríka þörf fyrir menntaða presta,
en það er ekki tóm til að bíða þess, að
nægilega margir guðfræðistúdentar ljúki
námi við skólann. Patríarkinn hefur
einnig lagt fyrir marga munka að gegna
þjónustu í borgunum.
Áðurfyrr var koptíska kirkj an einangr-
uð, en nú er að vakna innan hennar nýr
alkirkjulegur skilningur. Þetta er mikils-
vert í samskiptum hennar við múhameðs-
trú. Ein meginröksemdin gegn sannleiks-
gildi boðskapar kristinnar kirkju er
sundrungin innan hennar, og í Kaíró eru
margir dálkar i símaskránni helgaðir
yfirmönnum hinna ýmsu kirkjudeilda. I
þessu sambandi er mikilvæg hin alkirkju-
lega bænavika í Alexandríu og Kairó á-
samt viðleitninnni við að setja saman
sameiginlegar kennslubækur í guðfræði
fyrir evangelíska og koptíska Egypta.
Meðal kirkna í Austurlöndum hefur ver-
ið lagður mikilvægur grunnur að kirkju-
legum samtökum eftir fund orþódoxu
56