Samvinnan - 01.12.1973, Blaðsíða 77
þessi fjelagi til kaupfjelags
síns, enda er hann fjelagslynd-
ur og tryggur, í raun rjettri.
Er nú eptir að vita, hvernig
þessar tvær ferðir bera sig í
samanburði þeim, sem jeg býst
við að maðurinn gjöri. En það
er mjer ekki mikið áhyggju-
efni. Um hitt hef jeg hugsað
meira, er hann sagði, að kaup-
fjelagsskapur vor væri úrelt
stofnun, því jeg hef orðið þess
áskynja, að þetta er skoðun
mjög svo margra fjelags-
manna. Og þegar svo er kom-
ið, að menn fylgjast með í
framsóknarmáli ýmist af vana-
festu, vináttu eða venzlasam-
böndum, eða þá fyrir það þrek-
leysi, sem eigi vill brjóta í
bág við einhvern einstakan
mann, eða eitthvað annað;
þegar menn hafa tapað trúnni
á þýðingu málefnisins, mark-
miði þess, framsóknarafli og
grundvallarskipulagi, þá er
engin furða, þó fjelagsfylking-
unni verði sein og ervið gang-
an upp eptir framsóknar-
brekkunni.
Jeg hef nú verið að leita ept-
ir því, að hverju leyti kaup-
fjelagsskapurinn væri talinn
úrelt stofnun, og gizkað þar á
ýmislegt, sem of langt yrði
upp að telja og sundur að rekja
að þessu sinni. En mjer finnst
líklegt, að einhverjir af mörg-
um verði fúsir á að koma fram
með sínar ástæður fyrir því,
hjer í tímaritinu, að telja
kaupfjelagsskap vorn ótíma-
bæran nú orðið. Ef það er gjört,
verður tækifæri til að ræða
málið ýtarlega á báðar hliðar,
og það getur svo aptur stuðl-
að til þess, að hrinda því í
rjett horf, sem reynist að
stefna í öfuga átt. Þetta og því
um líkt, ætti að vera eitt af
helztu hlutverkum timaritsins.
Tilgang kaupfjelaganna má
sjá af lögum þeirra. Eins og
það hefur ekki verið sýnt fram
á það enn þá, að sá tilgangur
sje rangur eða óhollur til þjóð-
legra framfara, eins víst er hitt
að fjelögin eiga nokkuð langt
í land með það, að ná til-
ganginum að fullu og öllu, þó
talsvert hafi miðað í áttina.
Meðan svo er, getur mjer ekki
skilizt, að kaupfjelögin sjeu
úrelt, nje frumlagshugmyndir
þeirra ótímabærar. Hitt er
annað mál, að ýmisleg fyrir-
komulagsatriði, deyfð, skortur
á góðri forstöðu, og margt fleira
getur skemmt árangurinn af
starfinu og tafið fyrir þroska
fjelaganna, en þetta getur
hæglega komið fyrir, þó aðal-
grundvöllurinn sje góður og
fjelagskjaminn heilbrigður í
sjálfu sjer. Sje hjer vissulega
LEGO kubbarnir eiga sívaxandi vinsældum að fagna
hjá börnunum, því að LEGO grunnöskjurnar eru barmafullar
LEGO kubbar, til að byggja
úr skip, sem jafnt má sigla á
gólfteppinu og í baðkerinu.
Húsgögn úr LEGO kubbum.
Nú geta börnin byggt heilt
brúðuhús, með húsgögnum
eftir eigin hugmyndum.
REYKJALUNDUR
VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI
AÐALSKRIFSTOFA REYKJALUNDI, Mosfellssveit - Sími 91-66200
SKRIFSTOFA í REYKJAVÍK, Suðurgata 10 - Sími 22150
77