Samvinnan - 01.12.1973, Blaðsíða 81
"\
GLEÐILF.G JÓL
FARSÆLT KOMANDI AR
Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum
árum
KAUPFÉLAG BITRUFJAÐAR
Óspakseyri
\____________________________________)
GLEÐILEG JÓL
og jarscelt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðnu ári
KAUPFÉLAG GRUNDFIRÐINGA
Grundarfirði
Ef menn, jafnframt því að
leggja stund á sjálfstæðið,
hefðu það stöðugt fyrir aug-
um, að enginn er sjálfum sjer
nógur, þá mundi betur farn-
azt.
Menn eru almennt fúsir á það
í viðtali og á mannfundum að
telja fjelagsskap og samvinnu
góð og gagnleg meðöl til al-
menningsheilla, en þegar
stund líður, biður sundrungar-
andinn um orðið, og hefur þá
frá svo mörgum agnúum að
greina í fyriikomulagi og
framkvæmdum þess, sem ráð-
gjört var, að stundum lendir
allt í molum, sem starfa átti.
Þetta er ekki svo að skilja, að
það sje þessi andi einn, sem
hamlar góðum fjelagsþrifum,
en hann á opt sinn mikla þátt
að máli. Opt vantar þolgæði og
þrautseigju fjelagsmanna,
sterka og starfsfúsa forstöðu,
sem þá sje sómasamlega laun-
uð, og fleira má til telja.
Eins og sundrungarandinn
kemur allt of mikið fram hjá
einstaklingum, innan takmarka
hinna smærri og einstöku fje-
laga, eins er hætt við því, þeg-
ar hin einstöku fjelög ganga í
bandalag, að þá komi hið sama
fram, þá vilji hvert fjelag fara
sína götu, stjórnin verði veik
og lingerð, og svo verði litið úr
öllu, sem átti að vinna og fram-
kvæma.
Þegar nú litið er á hina litlu
reynslu, sem fengin er í Sam-
bandskaupfjelagi Þingeyinga, í
sambandi við.það, sem hjer er
sagt, og litið á ráðagjörðir
fjelagsins, og framkvæmdir, þá
sýnist bóla þar nokkuð á
þroskaskorti og sundrungar-
anda. Til þess að sýna að svo
sje, skal bent á eitt dæmi.
Hin sjerstöku lög fjelags-
deildanna gjöra ráð fyrir því,
að fjelagsverzlunin sje rekin
„með eigin erindsrekum“, og ár-
um saman hefur þetta atriði
staðið á dagskrá hjá fjelög-
unum, að minnsta kosti hjá
Kaupfjelagi Þingeyinga. Á síð-
asta aðalfundi sambandskaup-
fjelagsins var ráðgjört að láta
nú hjer að skör skríða, og
sambandskaupfjelagið hefði
einn sameiginlegan erindsreka í
Danmöiku, er annaðist við-
skiptin á Norðurlöndum. Þegar
svo til framkvæmdanna kemur
verður enn ekkert úr þessu,
sem allt af hefur verið talið svo
nauðsynlegt. Hver fjelagsdeild
gjörir einhverjar káktilraunir,
út af fyrir sig, í þessa átt;
sundrungarandinn kemur fram
í ljósmálið, en samvinnan lend-
GLEÐILEG JÓL
FARSÆLT NÝTT ÁR
Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum
árum
KAUPFÉLAG SAURBÆINGA
Skriðulandi
v________________________________________________________________J
81