Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.05.1917, Blaðsíða 111
109
JJr athugasemdum endurskoðenda reikninga Heklu 1916.
I. Þrátt fyrir ýmsa erflðleika vegna stríðsins og
•dýrtíðarinnar, fiskileysis hér austanfjalls á vetrarver-
tiðinni og óhapps þess á s. 1. vori, að skip með vörur
til félagsins strandaði á þeim tima, er félagið vantaði
vörur til útsölu, þá heflr samt ræzt furðu vel úr við-
skiftunum þetta árið.
Þá skal frá þvi skýra, að Hekla keypti s. ]. sumar
þvegna vorull mikla, sem enn er óseld* Ullin ergeyind
í umbúðum hér, í Reykjavík og í Kaupmannahöfn, (alls
um 500 stórsekkir). Félagið heflr borgað ullina og all-
an kostnað við hana til 1. maí 1917. Hefir Landsbanki
íslands lánað til þess 100 þús. kr. Ullarverðið er svo
hátt nú sem stendur, að ullin nemur nokkuð liærra
verði. Líkindi þykja til þess að verðið lækki ekki
bráðlega og tilboð er nú gefið í Danmörk í (200) sekki
sera þar liggja, svo selja mætti þá með nokkrum hagnaði.
Af þessari óvissu um sölu ullarinnar, þykir ekki fært
að blanda henni inn í reikninga Heklu s. 1. ár. Er því
bæði ullinni og láni bankans, sem andvirði hennar,
haldið utan við framanskráða reikninga, og látið biða
reikningsfærslu ársins 1917.
• II. I 31. gr. félagslaganna er ákveðið að draga
25% frá útsöluverði útlendra vöruleifa í efnahagsreikn-
ingi. En samkvæmt 33. gi'. má breyta þeseu, o. fl.,
ákvæðum laganna með samþykki % atkv. á lögmæt-
um aðalfundi. Eftir þessari heimild, og af því að vöru-
leyfi eru bæði nýlegar vörur og nytsamar; matvörur
nú seldar hærra verði en þær eru taldar i vöruleifa-
skránni, og ýmsar vörur seldar með minni framfærslu
en 25%, þá er tillaga okkar:
Aðalfundur samþykkir að draga 20% frá útsölu-
verði útlendra vöruleifa í efnahagsreikningi Heklu
81/>2 1916.
Um þetta verður að greiða atkvæði á undan reikn-
ingnum, því hann er færður með 20% frádrætti.