Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 43

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 43
181 nægum höfuðstól til þeas að vextir af sjóðnum nægðu- handa skólanum, skal eg láta óaagt, enda kemur þar svo margt til greina, eins og aðsókn að skólanum, inn- kaup kaupfélaganna o. s. frv. En þótt menn hugsuðu nú aldrei svo hátt, að fá á þennan hátt nóg starfsfé handa skólanum, þá mætti á þennan hátt fá fé til ýmsra framkvæmda, sem geta verið bráðnauðsynlegar, þótt þingið ekki sjái nauðsyn- ina og veiti fé til þeirra. Menn sjá nú af þessu, að eg er að reyna að benda k- á leið til þess að kaupfélögin og heimavistir skólanna geti hjálpast að því að gera skólana sjálfstæða. Fjelagar heimavistarfélagsins afsala sér þá hagnað- inum, sera þeir hafa af því að verzla við kaupfélögin, til skólanna. Og á því veltur þá svona sjóðstofnuo, hvort þeir vilja það. Þegar eg í gamla daga var kunn- ugur á Möðruvöllum og Hólum, ríkti sá andi þar í garð skölanna, að eg þori að fullyrða að nemendur voru fúsir til þessa. Og enn hygg jeg svo vera, þótt mér sé það ekki eins kunnugt nú og fyrir 14—18 árum síðan. Margir munu nú halda, að eins gott sé að bíða með svona sjóðstofnun unz einhver ríkur kaupmaður, sem skólarnir hafa skift við, myndar sjóðinn. En við þá vil jeg segja það, að »betri er ein kráka í hendi en tvær á flugi«. Að vísu eru margir þeir, sem auði hafa safnað með álagningu á vörum eða »með verzlunc, stór- gjöfulir menn, sem oft gefa til fræðslu- og líkarstarf- semi; en öll von er völt. Því á ekki að treysta á vonina, en vinna að stofnun sjóðanna á samvinnu- grundvelli, því jeg vona, að allir geti orðið sammála um þörf þeirra. Eg sagði, að þjóðin græddi líka á því, að heima- vistarfélögin verzluðu við kaupfélög en ekki kaupmenn, og er þá eftir að leiða rök að þvi. Fyrst er þá þess að geta, að jeg teldi það mikinn

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.