Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 46

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 46
Sættargerð. Mikið hefir verið talað um stéttaríg hér á landi á síðustu árum. Sumir menn og sum blöð hafa mjög átalið andstöðu stéttanna, og það ekki sizt þeir aðilar,. sem einna mest hafa alið á deilunum. Fullkominn friður innanlands er tæplega æskilegur. Til þess að fá þann frið, yrði þjóðin að vera sofandi. Andstæður innbyrðis er að nokkiu leyti vottur um lífs- mark, þar sem deilt er um eitthvað verulegt, sem skoð- anir hljóta að vera skiftar um. En hitt er verra, þegar kröftunum er sundrað til einskis. Deilt til að deila. Það er hættulegt. Eðlileg andstæða er t. d. alt af milli vinnuseljanda og vinnukaupanda. Annar vill seija dýrt, það sem hinn vill fá ódýrt. Af þessu leiðir hin eilífu Hjaðninga- víg milli auðmanna og öreiga. Þeir líta svo á að annars líf sé hins dauði. Þeir berjast um yfirráð sama hlut- arins — auðsins. Það sem er annars gróði, telur hinn vera sitt tjón. Það er þess vegna ekki undarlegt, þó að hinn öri samdráttur auðsins hér á landi á síðustu árum hafi orðið tilefni umfangsmikillar deilu milli stóratvinnuveitenda og verkmanna. Þar er eitthvað um að deila. Og friður milli þeirra stétta getur tæplega skapast, nema undir gerbreyttum kringumstæðum. En stundum virðist kali milli stétta á litlu bygður t. d. milli landbænda og sjávarbænda, milli alþýðu í.

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.