Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 50

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 50
188 ^rétta átt. Framkværadir í stórum stíl er lika örðugar vegna þess, að mestöll flsksala er í kaupmannahöndum. En þegar samvinnuhreyfingin er búin að festa rætur við sjávarsiðuna, sem væntanlega verður innan skamms fer þetta að verða auðveldara. Við það eru tveir kostir. Fyrst það, sem nú hefir verið ádrepið, að sannvirðið yrði sá grundvöllur, sem sættagerð tveggja stærstu stéttanna í landinu yrði að byggjast á. Og í öðru lagi væri hér um verulegt að- stöðu hagræði að tefla. Tími einyrkjans er orðinn dýr. Vöruaðdrættir, einkum í sveitum, taka afarmikinn tíma, ekki einungis flutningarnir heldur líka innkaupin, ef i marga staði þarf að sækja. Kaupfélögin eru á góðri leið með að bæta úr þessu. Þau þurfa að geta útvegað hverjum félagsmanni alt, sem hann þarf til heimilisins. Þau gera það nú að mestu leyti, einkum með erlendu vöruna. En þá ætti að vera hægur leikur að bæta við innlendu framleiðslunui. Sennilega verður þess ekki langt að bíða, að sérstakir menn taki að sér mikið af nauðsynjavöruflutningi sveitamanna. Það er annað spor á framfarabrautinni. Verkskiftingin sparar. Og hér er vinnuaflið dýrast. Margt fleira mætti rita um hugmynd þessa til að gera hana glegri og skýrari. En þess gerist ekki þörf. Að þessu sinni nægja nokkrir almennir frumdrættir. En þeir sýna ljóslega að á þessu sviði, sem mörgum öðrum, hefir samvinnan drjúga yfirburði fram yfir sam- ikepnina, bæði fyrir einstaklinginn og þjóðina.

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.