Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 47

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 47
185 íiveitum og alþýðu í kauptúnum. Lífsskilyrði beggja stétta eru því nær hin sömu. Báðir strita í sveita síns andlitis. Um eiginlegan mun milli vinnukaupanda og vinnuseljanda er ekki að ræða, enga óbrúanlega gjá, sem skilja yíirlýð frá undirgefnum. Sumir erja jörðina og draga auðæfin í skauti hennar. Aðrir draga gull úr greipum sjávarins. Enginn djúptækur munur er á at- vinnuvegum þessara stétta. Og samt bólar töluvert á kala miili þessara stétta, sem fremur hefir farið vaxandi á seinni árum. Tilefnið á að vera fjármunaleg andstæða. Hvor aðilinn ber hinum á brýn ósanngirni um verblag á seldum afurðum. Deilan um vinnuaflið verður ekki tekin hjer til umræðu, enda er hún ekki djúptæk. Sveitabændur þykjast alloft beittir órétti af sjávar- mönnum um verðlag á fiskmeti. Fullyrða að þeim sé seld varan hærra verði, heldur en framleiðendur fái fyrir hana á erlendum markaði. Gagnstæða sögu segja kaupstaðarbúarnir. Þeir kvarta um verðið á kjötinu, tólginni og smjörinu. Það sé gegndarlaust og uppskrúf- að fram úr hófi. Með því að halda á lofti einstökum dæmum um ósanngjarna sölu á innlendum matvælum hefir tekist að skapa furðu mikla en ærið ástæðulausa úlfúð milli sveitafólks og kauptúnabúa. Eg vil engan veginu neita þvi, að til muni vera þeir menn og það æðimargir, sem fara eins langt og þeir komast í afurðasölunni. Eg hefi jafnvel talað við einstöku menn, og það mæta menn að mörgu leyti, sera hafa haldið því fram, að það væri hrein og bein vit- leysa að hugsa um nokkuð annað í þessum efnum en að komast sem lengst í skiftunum við náungann. Ekki verður við þvi gert þótt nokkrir menn séu til svo harðlyndir. Hitt er verra ef þeim tekst að hafa viðtæk, og ef til vill óheppileg áhrif, á viðskifti fjöl- mennuBtu stétta í landinu. En til þess að svo verði •ekki til frambúðar, þarf að leitast við að finna réttlátan

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.