Andvari

Volume

Andvari - 01.04.1962, Page 104

Andvari - 01.04.1962, Page 104
102 KRISTJÁN ELDJÁIIN ANDVAllI þetta í skopskyni, og það er langt síðan menn veittu því athygli, að kímniblæ má ná með því að lýsa hinu hátíðlega hvers- ilagslega og hinu auvirðilega hátignar- lega. A 15. öld var uppi íslendingur, sem kunni að hagnýta sér þetta út í æsar. Það var skáldið, sem kvað Skíðarímu, sem að anda og tilgangi minnir á Don Ouijote. Þar er flækingurinn Skíði leidd- ur inn í Valhöll sjálfa, þar sem fyrir eru æsir og fornar hetjur. Skíði er í svo miklu ósamræmi við þetta umhverfi og það við hann, að hvorttveggja verður mjög hros- legt. Skop Jóns Thoroddsens er og mjög af þessum toga spunnið. Honum er t. d. tamt að leggja lítilmótlegum persónum hátignarlegt mál á varir. Gröndal not- færir sér ósamræmið aðallega á tvennan hátt: með því að klæða alþekkta útlend- inga í gervi íslenzks bændafólks og gera þeim upp hugsanagang þess, og í öðru lagi með því að fella samtíma menn inn í umhverfi fornaldar- og riddarasagna. Hvorttveggja verkar á alveg sama hátt, það er blandað saman ólíkum menningar- stigum, íslenzku og útlendu, fornu og nýju. Þetta verkar á mann líkt og skop- teikningar, enda alvanalegt í öllum skop- blöðum, að sá sem gera á hlægilegan er færður í einhvern annan búning en sinn eiginn eða látinn standa í allt ann- arri stöðu, en menn eru vanir að sjá hann í. Þarf ekki annað en að blaða í Spegl- inum til að sannfærast um þetta. Grunar mig einnig, að mikil yrði aðsókn, ef alþingismennirnir efndu til bændaglímu á Austurvelli eða alþekktir, ráðsettir borg- arar, sem hér ganga hversdagslega með hatt og staf um göturnar, færu að heyja burtreið inni á skeiðvelli, og ekki myndi það spilla, ef þessir herrar klæddust mið- aldabúningi eða riddarabrynju. Margur mundi hlæja dátt að slíkri sjón, en ein- mitt af þessu tagi er fyndni Heljarslóðar- orustu. Hún er í ætt við skopteikningar og eftirhermur. En þessi fyndni á sín takmörk. Sum fyndni er svo almennt mannleg, að hún cr næstum því óháð stund og stað. En fyndni Ideljarslóðarorustu er þannig, að fullnægja verður vissum skilyrðum og hafa ákveðna þekkingu til að njóta hennar. Maður þarf hclzt að vera íslendingur, cn ekki nóg mcð það. Maður verður að vera kunnur fornsagnastílnum og þcim heimi, sem í sögunum birtist. Annars getur allt farið fvrir ofan garð og neðan, eins og það er ekki heldur mikið púður í að heyra hermt eftir manni, sem mað- ur hefur hvorki hcvrt né séð. Það getur vel verið, að þegar Islendingar hætta að drekka í sig fornsagnaandann með móður- mjólkinni, þá fari þeim að leiðast Heljar- slóðarorusta. Það er merkilegt atriði í fvndni Heljar- slóðarorustu, að höfundurinn segir hana alla með alvörusvip. Hann lýsir hinum afkáralegasta fáránleik, án þess að hon- um stökkvi bros, líkt og hann segði almælt tíðindi. Sífellt kemur hann manni á óvart, fyndnin hæfir mann stundum líkt og snoppungur, samlíkingarnar cru margar svo fráleitar og hugsanatengslin svo ólíkindaleg, að maður þarf fyrst í stað nokkurn tíma til að átta sig. Mun það ekki ofmælt, að fáar bækur taki Heljarslóðarorustu fram að snöggum hugsanatengslum og taumlausu ímvnd- unarafli. Hugarflug Gröndals var alveg hamslaust, eins og hann segir sjálfur, og hann var aldrei hræddur við að fara þangað sem andinn hreif hann. Sjálf- ur segir hann, að sér hafi dottið mestur hluti sögunnar í hug eitt sinn undir borð- um, og mun það satt, enda skrifaði hann hana á tæpum hálfum mánuði. Sagan ber það líka greinilega með sér, að hún er ekki yfirleguverk. Það cr í hcnni ein-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.