Andvari - 01.06.1964, Síða 29
ANDVARI
ANNA BORG
27
á móti of stórt og bjart af persónuleika Önnu Borg. Að leikárinu liðnu tekur
lirm þátt í gestaleik danska þjóðleikhússins í þjóðleikhúsi Noregs, þar sem hún
er hyllt sem frú Geirþrúður í „Niels Ebbesen".
Árin eftir stríðið velur Konunglega leikhúsið alveg ný viðfangsefni. Anna
Borg fær að leika margvíslegustu hlutverk. f „Flugunum" eftir Jean-Paul Sartre
dregur hún mynd Klytaimnestru skörpum dráttum, svo að grunur vaknar urn
mikið dulið farg á persónunni bak við tiltölulega fáar setningar, þar sem hún
stendur á sviðinu eins og fomt gyðjulíkneski. Næsta leikár leikur hún sjálfa
gyðjuna — fagra, vitra og virðulega Afrodite með móðurlega hlýju, sem ljómar
í leik hennar í vandasömu leikriti Kjeld Abells „Dagar á skýi“, þar sem atóm-
sprengjan vai-par í fyrsta sinn sínu illa ljósi inn á danskt svið. En loks fær hún
uppfyllta ósk, sem hún hefur lengi alið í brjósti, „að leika vonda konu“. Það
er vorið 1947, átta mánuðum fyrr en hlutverkið í leikriti Abells, og hlutverkið
er Regina Giddens í ameríska þorparaleikritinu „Litlu refunum" eftir Lillian
Ilellmann. Ilún snýr sér að hlutverkinu með lífi og fjöri og fær meira að segja
tækifæri til að leika það aftur seinna á íslandi sem gestur. Hins vegar gat
jafnvel ekki móðurleg blíða hennar og fullkomin innlifun í Sigríði í „Nætur-
frosti" bjargað þessu byrjendaverki tveggja ungra leikritahöfunda, Jörgens Grún-
walds og Svends Bache. Verkið fór forgörðum vegna veikleika þess sjálfs. I
klassísku hlutverkunum sýndi Anna Borg til fulls skaphita sinn, þegar hún
hrópar upp sannleikann um svik Jagos í „Othello", og hófstillingu sína í styrk-
leikanum tjáði hún fagurlega sem Inger Borgen, þegar „Orðið“ eftir Kaj Munk
komst loks á Nýja svið Konunglega leikhússins í byrjun leikársins 1948—49.
Hátíðahöldin miklu á tvö hundruð ára afmælinu 1948 tefla frarn öllu
starfsliði leikhússins, þegar sýnd voru 19 leikverk frá afmælisdegi Holbergs
þann 3. til afmælisdags leikhússins þann 18. desember, sem náðu frá upphafi
danskra gamanleikja og til nýjasta danska leikritsins. Poul Reumert lék í þessari
sýningasamfellu sjö aðalhlutverk, Anna Borg fjögur. Við Emilíu Shakespeares,
Guðrúnu Oehlenschlágers og Inger Munks bætti hún sjálft aðalhátíðarkvöldið
sínu hlíðasta brosi og glæstustu fegurð sem veitingakonan hjarta í hátíðarleikriti
Kjeld Abells „Lóð nr. 267 Austurhverfi". Næstu leikár höfðu hins vegar ekki
mikið að bjóða henni. í staðinn tók leiklistardeild útvarpsins nú að notfæra sér
hæfileika hennar í auknurn mæli. Þó sýndi hún sterka skapgerð sína á sviðinu
í „Föðurnum" eftir Strindherg, sem mistókst þó í furðulegri og óskiljanlegri svið-
setningu Sam Besekows. í „Ardéle eða Margueriten" eftir Jean Anouilh lék
hún greifafrúna í upphafi leikárs 1950—51 með kuldalegum virðuleika. Þar
sem leikárið virtist ekki ætla að færa henni fleiri viðfangsefni, ákvað hún að
koma í framkvæmd meiri háttar gestaleik í ættlandi sínu. í byrjun febrúar 1951