Andvari - 01.06.1964, Blaðsíða 108
106
GILS GUÐMUNDSSON
ANDVARI
21. prentun, Hólum 1791, kölluð 17.
útgáfa.
22. prentun, Leirárgörðum 1796.
„Prentaðir að tilhlutan hins islenzka
Landsuppfræðingarfélags. A kostnað
Björns Gottskálkssonar."
23. prentun, Leirárgörðum 1800, kölluð
19. útgáfa. „Prentaðir á kostnað íslands
almennu uppfræðingar stiptunar."
24. prentun, Viðey 1820 (20. útg.).
„Islands konunglega vísinda stiptun."
25. prentun, Viðey 1825 (21. útg.).
Sama „konunglega vísinda stiptun" gef-
ur út.
26. prentun, Viðey 1832 (22. útg.).
27. prentun, Viðey 1836. Sálmarnir
eru hér prentaðir í „Flokkabók", og er
hver flokkur með eigin titilblaði og blað-
síðutali, svo að heita má, að hér séu marg-
ar bækur í einu bindi.
28. prentun, Viðey 1836 (24. útg). For-
leggjari er O. M. Stephensen.
29. prentun, Viðey 1841 (25. útg.).
Samhljóða næstu útgáfu á undan.
30. preniun, Viðey 1843. í „Flokka-
bók“, bls. 81—204.
31. prentun, Reykjavík 1851, talin 27.
útg. Samhljóða síðustu Viðeyjarútgáfum.
32. prentun, Reykjavík 1855 (28. útg.).
Aftast er prentuð þessi athugasemd: „Þessi
útgáfa Passíusálmanna er lesin saman við
eina hina elztu útgáfu þeirra, sem prentuð
er á Hólum í Fljaltadal 1751, og víða lag-
færð eftir henni." Hér er átt við Sálma-
bókina 1751, þar sem Passíusálmarnir eru
prentaðir í 1 5. sinn, eftir því sem hér hef-
ur verið talið.
33. prentun, Reykjavík 1858 (29. útg).
Hér er horfið aftur að útgáfu Hálfdans
Einarssonar frá 1780, prentaður eftirmáli
hans og orðamunur. Mun Jón Þorkelsson,
síðar rektor, hafa unnið að þessari útgáfu
fyrir Landsprentsmiðjuna, enda er hún
einkar vönduð.
34. prenlun, Rvík 1866 (30. útg.). Hér
er í fyrsta skipti latínuletur á Passíusálm-
unum. Annars er þessi útgáfa samhljóða
þeirri næstu á undan.
35. prentun, Rvík 1876 (31. útg.). Eftir-
mála Hálfdanar Einarssonar er hér sleppt.
36. prentun, Reykjavík 1880 (32. útg.).
Óbreytt frá 35. prentun.
37. prentun, Reykjavík 1884 (33. útg.).
Óbreytt að efni, en brotið hefur verið
stækkað að mun, og letrið er fallegt og
skýrt. Þetta er síðasta útgáfa, sem prentuð
er hjá Einari Þórðarsyni, og eru þær alls
7, 5 þær fyrstu á kostnað Prentsmiðju
landsins, en tvær hinar síðustu á kostnað
Einars sjálfs.
38. prentun, Rvík 1887. Þessi prentun
er í fyrra bindi útgáfu Gríms Thomsens
á verkum Flallgríms. Texti sálmanna er
hér allmikið breyttur frá eldri útgáfum,
þar eð Grímur fylgdi eiginhandarritinu.
Flér eru Passíusálmarnir í fvrsta skipti
prentaðir þannig, að hver hending er sér
í línu.
39. prentun, Rvík 1890. Talin 38. útg.
samkvæmt skrá Gríms Thomsens, en hon-
um liafði sézt yfir útgáfu þeirra í sálrna-
bókinni 1751 (hér talin 15. prentun).
Þetta er fyrsta útgáfa sálmanna, sem Björn
Jónsson sá um, en Isafoldarprentsmiðja
var síðan um skeið aðalútgefandi Passíu-
sálmanna.
40. prentun, Rvík 1896. Utgáfutalan er
nú loks rétt: 40. útgáfa, og er þess getið
í aths. að þessi leiðrétting sé gerð eftir
skrá W. Fiskes.
41. prentun, Rvík 1897. Björn Jónsson
skrifar allrækilegan eftirmála, þar sem
hann gerir grein fyrir handritum Passíu-
sálmanna, orðamun o. 11. Á sumum ein-
tökum þessarar útgáfu eru rauðar línur.
42. prentun, Rvík 1900. 1 þessari út-
gáfu er aftur hætt við að prenta eftir Ijóð-
línum, og ávarp Hallgríms er prentað á
eftir sálmunum.
43. prentun, Rvík 1906—1907. Þetta