Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1964, Blaðsíða 77

Andvari - 01.06.1964, Blaðsíða 77
GYLFI Þ. GÍSLASON: Gunnar Gunnarsson skáld 75 ára Ræða menntamálaráðherra, flutt í afmælishófi, höldnu til heiðurs Gunnari skáldi á 75 ára afmæli hans, 18. maí 1964. Hvað er að vera íslendingur? Er það að vera fæddur á eyjunni í At- lantshafi, sem liggur norður undir heim- skautsbaug, en er vermd af hlýjum straumum sunnan úr höfum? Nei. Er það að vera íslenzkur ríkisborgari og hafa íslenzkt vegabréf í útlöndum? Nei. Er það að mæla á íslenzka tungu? Nei. Eða erum við kannski íslendingar af því, að við drögum fleiri fiska úr sjó en nokkur önnur þjóð að tiltölu? Nei. Eða hefur það gert okkur að betri íslendingum, að lífskjör okkar hafa á undanförnum ára- tugum batnað svo mjög, að land okkar er komið í hóp þeirra, sem búa við mesta hagsæld? Nei. En hvað er það þá, sem gerir menn að íslendingum? Islendingur er sá einn, sem er hlekkur í þeirri keðju, er tengir líf þess fólks, sem nam ísland fyrir nær ellefu hundruð árum, lífi þeirra manna, sem nú byggja landið. Islendingur er sá einn, sem er þáttur í því samhengi menningar, er ver- ið heíur grundvöllur íslenzkrar sögu í meira en þúsund ár. Islendingur er sá einn, sem er hluti af því ævintýri, er hófst hér norður í höfum á níundu öld, er enn að gerast á hinni tuttugustu og aldrei má ljúka, — ævintýri, sem er heill- andi af því að það er ótrúlegt, lærdóms- ríkt af því að það er satt. Af hverju minnist ég þessa einmitt nú? Það er af því, að í dag er sjötíu og finnn ára einn þeirra manna, sem verið hafa mestir Islendingar á þessari öld, — sterk- u'r hlekkur í þeirri keðju, sem tengir ís- lenzka nútíð íslenzkri fortíð, snar þáttur í samhengi íslenzkrar menningar, heill og glæstur kafli í ævintýrinu um Islendinga. Þyki okkur einhvers virði nú, að við erum Islendingar, — að við eigum eigin menningu, sem forfeður okkar skópu og varðveitzt hefur um aldaraðir, — að við eigum Island sem sjálfstæð þjóð, þá meg- um við minnast þess, að við eigum það hvorki auði né valdi að þakka, að svo er, heldur andlegri reisn, sem verið hefur aðall þess fólks, sem byggt hefur Island frá upphafi. Helztu aflvakar þeirrar reisn- ar hafa verið þeir menn, sem í sögu og Ijóði kenndu þjóðinni að þekkja sjálfa sig og skilja, hvöttu hana eða sögðu henni til syndanna, glöddu hana eða vöktu hana til umhugsunar, juku henni kjark eða færðu henni fegurð. Slíkir menn voru Snorri og Hallgrímur og Jónas. An þeirra og allra hinna, sem skópu íslenzka menn- ingu, værum við ekki það, sem við er- um. Víst er það merkilegt, sem gerzt hefur í íslenzkum efnahagsmálum á þessari öld, þeirri öld tækni, sem orðið hefur öld vel- megunar á íslandi. En þrátt fyrir vaxandi auðsæld hefðum við getað orðið minni menn og verri íslendingar, hefðum við ekki borið gæfu til þess að eignast andans menn, sem reyndust þess megnugir að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.