Andvari - 01.06.1964, Blaðsíða 106
104
GILS GUÐMUNDSSON
ANDVAKI
ljóða í bókinni, en örkin er fyllt með bæn
í óbundnu máli eftir Jóbann Arndt. Nót-
unum er sleppt.
Þórður biskup Þorláksson var snyrti-
menni í útgáfum sínum sem öðru, enda
varð hann fyrstur til að gera Passiusálm-
unum sæmileg skil. Hann skrifar formála
þessarar útgáfu, sem að ýmsu leyti er
merkilegur, ekki sízt af því, að hér mun
í fyrsta skipti kveðið upp úr um snilld
Hallgrims og gildi Passíusálmanna.
6. prentun, Hólum 1704. Utgáfunni
fylgir langur formáli eftir Björn biskup
Þorleifsson, með afar miklu orðskrúði um
skáldskap og sönglist. Lofar hann Passíu-
sálmana mjög að verðleikum og kveðst
ekki hafa lesið um þetta efni neina aðra
sálma, „sem svo að verki og efni vandaðir
eru, grundv'allaðir í Skriftinni, andlega
dýrt kveðnir í skáldskapnum, en bitur
blóðrefill til umsniðingar mannsins
hjarta.“
Birni biskupi þótti nauðsyn til bera, af
trúfræðilegum ástæðum, að breyta tveirn
stöðum í Passíusálmunum. Varð einkum
önnur breytingin alkunn, harðlega for-
dæmd, og biskupi til sárra leiðinda. Hall-
grímur segir um iðrunarleysi Júdasar í 12.
versi 16. sálms: „synd á mót heilögum
anda, held ég hér hafi skeð." En Björn
biskup var á annarri skoðun, og breytti
hann þessu í: „synd á mót heilögum anda,
hér þ>ó ei hafði skeð.“ Leitast hann við
að leiða margvísleg rök að því, að þetta
hafi ekki verið sú „réttkallaða synd á mót
hcilögum anda (eg meina þá ófyrirgefan-
legu)“.
Ut af breytingu þessari varð hinn mesti
úlfaþytur, og töldu margir, að biskup væri
að verja athæfi Júdasar. Kveðlingar flugu
um landið, þar sem lýst var vináttu bisk-
ups og Júdasar, og var margt af því lcir-
burður og óþverri, þótt ortir væru af prest-
um.
Eftir formála biskups og ávarp hans til
lesara kemur fjöldi latínukvæða, þar sem
biskup er lofaður á hvert reipi, kallaður
meðal annars „annar Guðbrandur".
Eftir allt þetta birtast svo sjálfir Passíu-
sálmarnir. Brot bókarinnar er stærra en
verið hafði, og yfirleitt er útgáfan gerðar-
leg. A blaðrönd eru prentaðar tilvitnanir
í Biblíuna. Nótur eru við fyrsta og síð-
asta sálm.
7. prentun, I lólum 1712. Hér er breyt-
ingum Björns Þorleifssonar haldið, en
annars er þessi útgáfa eins látlaus og hin
er íburðarmikil. Biblíutilvitnunum á
blaðrönd er sleppt og öllum formálum
og latínukvæðum. Yfirlætislaus rnaður,
Steinn biskup Jónsson, hefur nú tekið við
stjórn Hólaprentsmiðju.
8. prentun, Hólum 1722. í þessari út-
gáfu er breytingin á „synd á mót heilög-
um anda“, leiðrétt.
9. prentun, Hólum 1727. Að mestu
samhljóða 8. útgáfu. Þó er hér sú mcrki-
lega breyting, að hér er í fyrsta skipti
prentaður formáli Hallgríms að sálmun-
um: „Guðhræddum lesara heilsan."
10. prentun, Llólum 1735. Samhljóða
9. útgáfu. Þetta er 4. og síðasta Passíu-
sálmaútgáfa Steins biskups.
11. prentun, Kaupmannahöfn 1742.
Passíusálmarnir eru hér teknir í sálmabók
þá, er Jón biskup Arnason lét gefa út, og
eru þeir á bls. 42—164. Hér er breyting-
um Björns Þorleifssonar sleppt.
12. prentun, Hólum 1745. Lltgáfa þessi
er sniðin cftir 9. útgáfu.
13. prentun, Kaupmannahöfn 1746.
Passíusálmarnir eru hér teknir í sálmabók
þá, sem þeir bræður Sigurður og Pétur
Þorsteinssynir gáfu út og kölluð var al-
mennt Bræðrabókin. Passíusálmarnir eru
hér á bls. 42—164, alveg eins og í sálma-
bókinni 1742, og breytingum Björns Þor-
leifssonar sleppt eins og þar. Þessi útgáfa
ruglaði útgáfutal Passíusálmanna um
langt skeið.