Andvari - 01.06.1964, Qupperneq 35
ANDVARI
FÁNI ÍSLANDS OG SKJALDARMERKI
33
menn skuli annast vörzlu innsiglisins,
svo að það verði á engan hátt misnotað.
Eigi er vitað, hvort konungur lét gera
innsiglið óbeðinn eða að ósk landsmanna,
en það hefur átt að vera konungi og öðr-
um trygging fyrir því, að þau skjöl, er
innsiglið bæru, væru frá réttum valds-
mönnum.
Innsigli þetta virðist hafa glatazt, og
gerð þess er ókunn, en líklega hefur þorsk-
merkið verið í því.
A Alþingi 1592 var Jóni lögmanni Jóns-
syni falið að bera upp fyrir ríkisráði, er
með völd fór sakir æsku Kristjáns kon-
ungs IV., ýmis málefni, þ. á m. að fá inn-
sigli handa landinu. Innsiglið skyldi vera
í vörzlu höfuðmanns og notað í erindum
til konungs. Ríkisráðið varð við beiðni
landsmanna um innsigli, og er bréf þess
til hirðstjóra um það efni dagsett 9. maí
1593, og segir þar: ,,1 annan máta það,
sem þeir auðmjúklega umbiðja, sem er að
þeir mættu fá eitt sérdeilis innsigli eður
signet upp á það, að nær nokkur vill reisa
eður sigla þar frá hingað í Danmark til
vor, almúgans vegna þar á landinu, að
gera eina skikkan á um bréf eður aðrar
nauðsynlegar sýslanir, að hans fullmagt
eður umboðsbréf eður passborð og önnur
bréf og skilríki, sem með honum gefast og
sendast, mættu með fyrrnefndu innsigli
innsiglast, svo enginn reisi þar frá óvit-
andi vorum umboðsmanni og almúga að
fá sér ýmisleg bréf móti Islands lögum og
rétti. Hvað vér náðuglega eigi viljurn
undan draga og höfum látið gjöra þeim
fornefnt innsigli og látið afhenda vorum
elskulega Heinrich Clnag, vorum manni,
þénara og umboðsmanni á fyrrnefndu
voru landi Islandi og þar með skriftlega
bífalað sama innsigli hjá sér að hafa í
góðri geymslu og hafa góða tilsjón þar til,
að ekkert verði þar með innsiglað, undan-
teknu nær nökkur þaðan af landsins inn-
byggjurum hefur nökkuð nauðsynlegt og
Þorskmyndin í Stokkhólmsbók.
áliggjandi hjá oss framkvæma eður lands-
ins þörf og allra þess innbyggjara nauð-
synleg efni hefur að sýsla.“ Á innsiglinu
er hausaður þorskur með kórónu yfir og
ártalinu 1593 til hliðar, en umhverfis í
boga er letrað: SIGILLVM INSVLÆ
ISLANDIÆ (Innsigli eyjarinnar íslands).
Innsigli þetta er geymt í Þjóðminjasafn-
inu, nr. 4390, afhent þangað af stiftsyfir-
völdunum árið 18974)
Þorskurinn virðist alllengi hafa verið
merki Islands áður en innsigli þetta var
gert, ýmist flattur eða óflattur. I sálma-
bók Guðbrands Þorlákssonar, prentaðri á
Hólum 1589, er t. d. góð mynd af merk-
inu, og þar er þorskurinn flattur. Og
þannig var merki íslands tekið upp í