Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1964, Page 74

Andvari - 01.06.1964, Page 74
72 SVERRIR KRISTJÁNSSON ANDVARI boðið hafi komið fram — og þessu verður ekki haldið leyndu — hafa mjög óheppileg áhrif á hina íslenzku íbúa, og í enn annan stað bætist það, að með því að leggja fram slíkt tilboð, muni athygli annarra ríkja á þessu landi vakna og kannski örva þá löng- un, sem eitt ríki eða annað fengi til þess að eignast þetta land.... Fjármálaráðherrann kvaðst í öllum atrið- um vilja lýsa því yfir, að hann væri alger- lega samþykkur uppkasti orðsendingarinnar. Hann neitaði því ekki, að hann gæti ekki annað en talið mikilvæg þau rök, er innan- ríkisráðherrann hefði sett fram varðandi ís- land, að tilboðið um afhendingu þessa lands- hluta, þótt ekki yrði til neins, myndi hafa óheppileg áhrif á íslenzku íbúana; en gagn- vart þessu mætti heldur ekki gleyma því, að þetta tilboð muni sýna dönsku þjóðinni, hve rnikið ríkisstjórnin legði á sig til þess að verða við hinni djúpstæðu ósk þjóðarinnar um að halda Norðurslesvík. .. . Dómsmálaráðherrann gat þess, að hann teldi varhugaverðast tilboðið um að afhenda ísland, og að hann, ef spursmálið um slíka afhendingu lægi í raun og veru fyrir, mundi vera í mesta vafa um að greiða því atkvæði sitt; en eins og málið væri þessa stundina, álítur hann það tilboð, sem hér er lagt fram, í hæsta lagi sem skákbragð og í því efni sé það aðeins hugsanlegur möguleiki að það beri nokkurn árangur.... Ráðherra hertogadæmisins Slesvíhur: Hann gat þess þvínæst, að án efa sé það skylda stjórnarinnar að reyna við friðar- samningana að endurheimta eins mikið og unnt er af því, sem tapazt hefur, og hann taldi það því algerlega rétt að farið, að í því efni yrði lagt fram tilboð urn að láta af hendi hinar vesturindísku nýlendur; en hins veg- ar fannst honum það alltof mikil fórn að láta af hendi hjálendu sem ísland, sérstak- lega þegar færa skyldi hinu danska þjóð- erni í Slesvík slíka fórn, því að hinir dansk- lunduðu íbúar Slesvíkur væru alls ekki danskir í þeirn skilningi, að þeir teldu sig sameinaða konungsríkinu, enda hafi það komið í ljós í þeim mörgu tilraunum sem gerðar hafa verið árum saman til að koma á nánara samruna hinnar dönsku Slesvíkur og konungsríkisins. En svo sem ráða má af uppkasti því til orðsendingar, sem hér ligg- ur fyrir, þá er þetta tilboð, sem lagt er fram um að láta ísland af hendi, aðeins tilraun, og að því leyti er málið ekki eins varhuga- vert, en að öðru leyti vildi hann ekki láta í ljós neina skoðun á því, hvort það kynni þegar að vera hættulegt að bera fram slíkt tilboð. Hans Hátign konungurinn gat þess, að Hátignin hallist helzt að þeirri skoðun, að það sé réttast, að þess verði alls ekki getið í orðsendingunni, að maður gæti verið til- leiðanlegur til að láta ísland af hendi. Ef drepið skyldi á þetta yrði að minnsta kosti að gæta ýtrustu varkárni. Utanríkisráðherrann: Að því er ísland varðaði, þá væri utanríkisráðherrann sann- færður um, að það mundi ekkert stoða að bjóðast til að láta þetta land af hendi. En hann álítur þó, að skylt sé að reyna það, og hann getur sérstaklega ekki látið það álit liggja í láginni, að þar sem orðsendingin muni síðar verða lögð fyrir Ríkisráðið, muni það auðvelda samskipti ríkisstjórnarinnar og þeirrar samkomu, sem nú samkvæmt stjórn- arskránni hafi vald til að samþykkja friðar- samninginn eða hafna honum, er það sjáist, að stjórnin hafi ekki verið ófús til að kaupa hinn danska hluta Slesvíkur því verði að láta ísland af hendi. Elann telur þetta sjónarmið mikilvægt og hyggur því að skylt sé að reyna þetta og setja það í vald hinna konunglegu fulltrúa að þreifa fyrir sér i þessa átt; tilgangurinn, sem fólginn er í þessu efni í uppkasti því, sem fyrir liggur, er að- eins sá að þreifa fyrir sér, og þetta skal gert með hinum leyndasta hætti. Hann skyldi með tilliti til þessa gjarna leitast við að leggja meiri áherzlu á orðalag UDpkasfsins þannig, að í enn ríkara rnæli verði lagt brýnt á við þá að gæta bins ýtrasta trúnaðar. Innanríkisráðherrann gat þess, að livort sem brýndur væri fyrir mönnum fyllsta leynd, muni það þó, er orðsendingin verður síðar lögð fyrir Ríkisráðið, vitnast á íslandi, að menn hafi viljað láta ísland af hendi og hann vildi því mælast til þess, hvort ekki væri hægt að sleppa öllum kaflanum um ísland úr orðsendingunni, en setja hann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.