Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1964, Page 82

Andvari - 01.06.1964, Page 82
80 ERIK S0NDERIIOLM ANDVARI hans eru jxí svo þung á metum, að ástæða er til að gera sér vonir um mörg verk frá hans hendi á komandi árum, sem ryðji honurn hraut til úrslitasigurs. Hans Lyng- by Jepsen (1920) er nokkru yngri en Gerd- es. Eftir hann liggja svipmikil ritverk, og hann er einn af efnilegustu höfund- um eftirstríðsáranna. Þegar eftir stríðið vann hann sér sess með heilum hóp skáldsagna, sem gæddar eru háum list- rænum eigindum og lrábærum sálfræði- legum lýsingum: „Den blinde vej“ (1946) og „Röd jord" (1949), en stærsta sigur sinn sem skáldsagnahöfundur vann hann með hinni afbragðsgóðu lýsingu mann- legs einmanaleika í „Vintervej'* (1955). Þá sögu má með réttu telja eina merki- legustu skáldsögu í Danmörku síðastliðin tuttugu ár. Hann hefur einnig skrifað tvö smásagnasöfn, og einkanlega í hinu síðara þeirra, „Hábet" (1953), hefur hann sýnt, að hann hefur svo gott vald á formi smá- sögunnar, að hann stenzt á þessu sviði samanburð við Martin A. Hansen og Branner. í heild eru ritverk þessa höf- undar svo sterk og meitluð og með svo fastmótuðum svip, að þau eru yfirbragðs- mest þess, sem nú er völ á. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að ljóðaskáldskapurinn er í fylgd ineð æsk- unni: ljóðskáldið springur oft út eins og fíngert blóm, oft undursamlega fullkom- ið, en prósaskáldið verður að feta miklu hægfarnari þróunarferil, áður en hann finnur sjálfan sig. Bókmenntir stríðsár- anna og eftirstríðsáranna urðu fyrst og fremst Ijóðaskáldskapur, og umtalsverð byrjendaverk í lausu máli voru bókstaf- lega ekki til. En það átti eftir að sýna sig einum áratug síðar, að til voru samt sem áður höfundar í stóru broti. Einn þeirra, Aksel lieltoft (1922), lét þó þegar árið 1948 frá sér fara smásagnasafnið „Polakk- en“, en úr því að ekki kom meira á cftir, fyrntist yfir nafn hans í vitund alls al- mennings. Því meiri varð undrun manna að rekast á nafn hans árið 1958 í sam- bandi við hina sterku skáldsögu „Chefen", sem dró að sér athygli lesenda í einu vet- fangi. 1 sögunni lýsir hann mjög sérstæðri manngerð, „yfirmanninum", þ. e. a. s. óhugnanlegum gervimanni, sem hugsar einvcrðungu í tölum og útreikningum, en gleymir mannlegri útsýn algjörlega. SJíkum manni verður ástaþáttur lífsins að einni saman kynþörf, sem hann hlýtur að Jullnægja nokkurn veginn reglubundið til þess að gcta unnið eðlilega. Lengi heppnast honum að Jiafa vald yfir ungri konu, sem gengst upp við djöfullegt ör- yggi lians, en þegar hún kynnist ungurn manni með allt aðra kvenlrugsjón og vita- skuld með allt annað lífsviðhorf, sem einnig tekur tillit til liins andlega í mann- inum, svíkur hún yfirboðara sinn og vel- ur garðyrkjumanninn unga. Ur þessum þríhyrningi er liugtækur efnisþráður sög- unnar unninn, en hin mannlegu úrlausn- arefni, sem á bak við liggja, eru höfund- inum að sjálfsögðu aðalatriði. I bókinni er sundurgreind tiltekin manngerð, sem ekki er óþekkt á vorum dögurn, og það á sniJJdarlegan lrátt, og þar að auki er stíll og bygging sögunnar hvort tveggja meist- aralegt. Nákvæmlega sama á við urn sam- tímamann Heltofts, Tage Skou-Hansen, sem liingað til liefur aðeins sent frá sér eina bók, nefnilega liernámsskáldsöguna „De npgne træer" (1957). En í rauninni er þetta ekki stríðssaga nema á yfirborð- inu, því að fyrir höfundinum vakir allt annað en lýsa þessunr þætti landssögunn- ar í skemmtilegri skáldsögu. Það kemur fljótt í ljós, að sagan er ástríðuþrungin ástarsaga, en þessi skilgreining er ekki heldur tæmandi. Því að þetta er saga um tvær manneskjur, sem vægðarleysi tilver- unnar kennir að þekkja sjálfar sig og lífið og standa andspænis þeirri sáru raun að verða að velja milli hamingjunnar og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.