Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1964, Page 131

Andvari - 01.06.1964, Page 131
ANDVARI LEIKRIT GUÐMUNDAR KAMBAN 129 frá sviðrænu sjónarmiði. Vandamálin eru ekki aðalatriðið, heldur hlutverkið, and- rúmsloftið og atburðirnir. Vér kynnumst hjónabandi, sem orðið er kvöl, víti, sem magnar fram þenna lygaharmleik. Það gneistar af lífi og spennu í dagstofu Mc Intyre hjónanna, þar sem getur að líta stóra og smáa blómvendi og gamla kín- verska dragkistu. Það er drukkið kaffi og líkjör eftir að fjölskyldan hefur verið í óperunni. Hin fjöruga, töfrandi eigin- kona Norma á afmæli. Strax, og það vek- ur grunsemdir, ver hún mann sinn, hinn snjalla hugvitsmann, sem hefur þó engar tekjur, — vegna meÖfæddrar ófyrirsjálni stela aðrir alltaf hugmyndum hans. Það er beiskjublær á þessu atriði sem og öllum kvenpersónum verksins. Sagt er, að systirin Susan hafi aðeins verið 17 ára, þegar Kitton lávarður dró upp úr vasa sínum nælu með sjaldgæfri perlu og bauð lienni fyrir koss. Hún tók ekki á móti gjöfinni. En háttalag hennar og til- hurðir allir höfðu komið greifanum til þess arna. Núna er „úlfliður hennar spenntur digru armbandi úr hvítagulli, settu stórum safírum innan í sporbaugum tígulskyggðra demanta." Norma: Hvenær hefurðu fengið þetta? Susan: I dag. -— Líkar þér það? Norma: Það er heill fjársjóður. Mrs. Dale (fellur í aðdáun): Nei, Susan, þetta kalla ég gersimi. Norma: Hver gaf þér það? Susan: Það spyr maður ekki um. Af liverju hrosirðu? Norma: Það var rétt komiÖ fram á varir mínar að þú fengir gjafir þínar án mikils til- kostnaðar. Ég brosti af því mér skjátlaðist. Þetta litla atvik er gott dæmi urn svið- ræna rittækni, leikhúskjarnann, sem ein- kennir allt verkið. Það er hvikull blær yfir sviðinu, dálítið óþægilegur, allt er háð augnagotum, fínum, hættulegum skírskotunum, duldum hugsunum og af- afbrýðisemi. Vinnubrögð höfundar eru hér öll önnur en í fyrri verkum, það er meiri skemmtan að hverju atriði á sviðinu held- ur en áður var: Norma: Heldurðu að Susan hugsi nokkuð um að giftast? Ernest: Veit það ekki. Norma: Heldurðu að þaÖ sé nokkuð á milli hennar og Mr. VVallace? Ernest: A milli þeirra? Norma: Ég meina, nokkuð verulega náið. Ernest: Það er víst svo mikið á milli þeirra, að það er stundum alls ekki neitt á milli þeirra,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.