Andvari - 01.01.1939, Blaðsíða 127
Andvari
Einokunarfélögin 1733—1758
123
sem hann taldi upp. Eins og vænta mátti sluppu þeir
við það að verða dregnir fyrir dóm af stjórninni, en
hún mæltist til þess af íslenzkum yfirvöldum, að þau
færðu betri sönnur á kærur sínar. Þessu svari stjórnar-
innar varð að hlíta, en amtmaður svaraði aftur með
bréfi dags. 25. marz 1746, og hélt fast við allar kærur
sínar gegn kaupmönnum, með svo ákveðnum orðum
sem kurteisi og undirgefni við stjórnina leyfði. Árið eftir
voru sums staðar tekin þingsvitni um verzlunina. Sýslu-
maðurinn í Austur-Skaftafellssýslu, Sigurður Stefánsson,
tók þingsvitni um verzlunina á Djúpavogi undan farin
uri og létu menn illa bæði af verzluninni og framkomu
haupmannsins, Henriks Hanssons, persónulega. Þá var
Prófastur á Stafafelli Högni Sigurðsson, sem nefndur
befir verið prestafaðir, og sendi hann skriflegan vitnis-
burð á þingið. Segir hann, að mjölið í sumum tunnun-
Urn hjá kaupmanni hafi verið mórautt eð svo nær
svart í miðjunni, að þriðjungi eða meir ódrýgra en ef
óspillt væri. >Léreft, sem hann selur á 12 fiska alinc,
se9ir síra Högni, »vantar venjulega breidd, einnin vest-
Ul-farann, sem hann selur á 8 fiska alin. Af þessu hvöru-
^veggju sen(ii eg á þingið próf, sem eg óska undir
bingsvitni mælist og mér aftur sendist. Einnin sendi eg
emn stein, sem ásamt öðrum minna fannst í einni minni
miöltunnu. Hans járn er mestan part óbrúkanligt nú, og
hefi e9 hönum því aftur skilað, og ei er eg, þess vegna,
a °ú komandi vetri fær húsvitjun að gjöra í sókninni,
eöur hennar upp á fallandi nauðsynjum í þessari stór-
s°tt að gegna, þá frostin koma*. Ljóst er af öðrum vitn-
jsburðum á þinginu, að kaupmaður hefir ekki komið
etur fram við bændurna en prófastinn. Þrátt fyrir þetta
Pmgsvitni hélt kaupmaður stöðu sinni hjá félaginu, eins
°9 ekkert væri við hann að athuga. Sama ár tók sýslu-