Andvari - 01.01.1939, Blaðsíða 116
112
Einokunarfélögin 1733—1758
Andvari
ungs. Þetta tókst, aS því er virðist fyrirstöðulaust. Með
konungsúrskurði 15. desember 1732, var ákveðið að
stofna félag með einokun á íslenzku verzluninni allri,
til 10 ára, eða frá 1733 til ársloka 1742, gegn 8000
ríkisdala ársgjaldi, eins og kaupmenn höfðu farið fram
á, og var þetta þriðjungslækkun á gjaldinu til konungs,
eins og það var samkvæmt einokunarleyfum frá 1730,
sem upphaflega áttu að gilda til 1735. Verzlunarskil-
málar hins nýja félags voru gefnir út af konungi 3. apríl
1733.1) Stofnun þess var mikill viðburður í sögu íslenzku
verzlunarinnar, því að upp frá þessu var hún ekki rek-
in af einstökum kaupmönnum, heldur annaðhvort af fe-
lögum, sem leigðu hana alla í einu lagi, eða af konungi.
allt þar til að losað var um einokunarböndin árið 1787.
Stofnendur félagsins voru kaupmenn, sem ráku verzl-
un hér á landi, þegar stofnun þess var ákveðin. Munu
allir íslandskaupmenn, sem voru svo vel stæðir, að fe-
laginu væri talinn styrkur að þeim, hafa gengið í þap>
nema bræður tveir með ættarnafninu Bjering-Matthi-
sen, sem áttu verzlanir á Búðum og Patreksfirði. Ann-
ar þeirra, Vitus Bjering-Matthisen, ritaði konungi skjal
á móti félagsstofnuninni, dags. 11. nóv. 1732, og vitnar
þar m. a. til röksemda Árna Magússonar frá 1706.2)
Sumir af stofnendum félagsins höfðu rekið verzlun hing-
að til lands í 20 — 30 ár. Margir þeirra voru upp alnir
við íslenzku verzlunina og höfðu átt feður, sem voru
íslandskaupmenn. Skúli Magnússon segir í íslandslýsmgu
1) Lovsamling for Island II, 142—161.
2) Þetta skjal er í ríkisskjalasafni Dana, meðal rentukammers
mála, sem ekki er raðað eftir skrifstofum, í pakkanum Breve °3
dokumentev vedrörcnde den islandske handel 1682—1759. >''>
—1757.