Andvari - 01.01.1943, Side 10
6
Þorsteinn Jónsson
ANDVA.M
mörgu Ieyti voru þeir, hann og síra Kristinn, skaplíkir, enda
urðu þeir aldavinir síðar.
í skóla las Einar mjög mikið af klassískum skáldritum og
svo allar þær nýjungar í bókmenntum, sem hann náði til. Var
hann þá þegar farinn að fást við ritstörf sjálfur, jafnvel þótt
aðeins ein smásaga frá þeim árum hafi, að hans eigin dómi,
verið þess verð að takast upp í síðari útgáfur af ritum hans.
Einar varð mjög gagntekinn af raunsæisstefnunni (realisman-
um), eins og flest ung skáld um þær mundir. Hann hefur
sjálfur sagt (í ritgerð um Matthías Jochumsson), að á þeim
tíma hafi sér fundizt hann ekkert hafa lesið jafngáfulegt sem
það, sem Georg Brandes rilaði í tímaritið Det 19. Aarhundrede.
Og í sömu ritgerð segir Einar, að það hafi þurft „mikið lil
þess á þeim árum að standast þann straum“ (þ. e. realismann
og natúralismann). Jónas Jónasson (prestur og rithöfundur)
segir í Fréttum frá íslandi 1880, að komið hafi út með Skuld
(blaði Jóns Ólafssonar) smásagan Hvorn eiðinn á ég að rjúfa?
eftir Einar skólapilt Hjörleifsson. „Saga þessi er með hinum
nýja realistiska blæ, eða á að vera það, og er að því leyti nýtt
framkvæmi í bókmenntuin vorum, en að því er stefnu hennar
snertir hafa dómar inanna verið allmisjafnir um hana. En þó
að ófullkomleika megi á henni finna, er hún engu að síður vel
samin af unglingi, mál og efnisfærsla ljóst og lipurt og frá-
sögnin fjörug og tilgerðarlaus", segir sira Jónas. Þetta mun vera
fyrsti ritdómur um sögu eftir Einar, sem verulega er takandi
mark á.
Gestur Pálsson, sem tekið hafði stúdentspróf 1875, sama árið
sein Einar Hjörleifsson kom í skóla, er af mörgum talinn fyrsti
raunsæismaður íslenzkra skálda. Þetta er ekki alveg rétl. Einar
var eldra sagnaskáld en Gestur, og sögur Einars frá þeim tím-
um eru mjög realistiskar. En Gestur er eldri að árum en Einar
(f. 1852), og það er einkennilegt, að fyrsta sagan, sem hann
(Gestur) skrifaði í Verðandi (1882), er líklega hans hezta saga,
Kærleiksheimilið. Gestur er þá þrítugur, en Einar að eins 28 ára.
Gestur er svartsýnn og kaldhæðinn „skynsemistrúarmaður“.