Andvari - 01.01.1943, Side 28
24
Þorsteinn Jónsson
ANDVARI
valdur er ekki sérlega hugðnæmur maður (frekar en t. d.
Anderson í samnefndri sögu), en til þess að skáldið nái til-
gangi sínum, virðist maður Rannveigar einmitt verða að vera
eins og Ásvaldur er, hvorki betri né verri. Kaflinn Laugin er
eitt með því fegtirsta, sem Einar H. Kvaran hefur ritað.
Það mætti rita heila bók um skáldskap Einars Kvaran, án
þess að nokkuð væri þar ofmælt. Svo athyglisverð eru verk
hans. Fáir hafa stigið jafnmörg spor upp hjallann og hann,
upp lil þeirra hæða, sem eru langt fyrir ofan dægurþras, smá-
munasemi og úlfúð þá, sem alls staðar er ríkjandi í daglegu lífi
manna og þjóða. Fullyrða xná, að hefði Einar ritað á víðlesna
tungu og dvalizt meðal fleiri vel menntaðra manna en hér voru
— og eru —, þá hefði hann orðið heimsfrægur maður snemma
á æviskeiðinu. Það hefur jafnan verið vanþakklátt og þreyt-
andi verk að rita fyrir íslendinga, þar sem flokkadrætti og
stjórnmálaþrasi er troðið inn í öll mál, stór og smá. Þar sem
það hefur verið gert að fræðigrein að finna nýjar og nýjar að-
ferðir til þess að troða skóinn niður af náunganum. Og þar
sem verðmætum, sem þúsund ára reynsla hefur skapað, er oft
kastað á glæ, en nýr óskapnaður tekinn í staðinn. — Einar
Kvaran kunni þá dýrmætu list: Að gæta hófs. Fjarri fór þvi,
að liann visaði á bug reynslu aldanna, eða vildi rífa niður
undirstöður þær, er stórmenni liðna tiinans höfðu lagt til sannr-
ar menningar. En jafnframt stóð hugur hans opinn fyrir nýjum
straumum, nýjum sönnunum, nýjum ráðgátum. Hann var
þrunginn af framsóknarhug og sannleiksþrá.
V.
Einar H. Kvaran var glæsimenni á velli, þótt ekki væri hann
ineira en meðalmaður á vöxt, eða vel það. Hann var fríður
maður og snyrtimenni í klæðaburði, svo að því var við brugðið.
í frainkomu var hann hægur og virðulegur, talaði fremur liægt
venjulega og gaf gott hljóð, þeim er hann ræddi við. Hæverska
hans var alveg fullkomin og brást aldrei.
Fáir munu hafa þekkt samtíðarmenn sína betur en Einar,