Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 17
andvari
Sigurður Eggerz
13
í'uglýsingin mundi leiða til þess, að konungur hefði í íslenzku
sérmáli bundið vilja sinn við viss atriði, sem löggjafar-
vald íslands og stjórn væru elcki einráð yfir, og því hefði
konungur ekki frjálsar hendur um breytingar á ákvæðinu,
sem farið kynni að verða fram á af Islands hálfu.“ — Jafn-
framt því, að staðfesting stjórnarskrárinnar féll niður, var
frestað úrskurði um íslenzkan landsfána.
Málalokum ríkisráðsfundarins og framkomu ráðherrans
þar var að vonum misjafnlega tekið hér heima, eftir þvi
hvar menn stóðu í flokki. Floklcsmenn hans héldu honum
samsæti eftir heimkomuna. Bjarni Jónsson frá Vogi flutti
honum þar kvæði. „Mikill fögnuður var þá í Reykjavík meðal
þorra manna. Ræðuskörungarnir minntu á gráu höndina,
sem kom út úr bjarginu, til þess að skera á festi þess, er
vígði bjargið. En einn þátturinn hélt, svo að dugði.“ (B. Sv. í
Mbl., 1. marz 1945). Sjálfur varði ráðherra ótrauðlega afstöðu
sína, hvenær sem færi gafst, bæði á stúdentafundi og á fundi
í félagi höfuðandstæðinga sinna, Heimastjórnarmanna.
1 marz 1915 var Hannes Hafstein kvaddur á konungsfund
og nokkru síðar einnig þrír Sjálfstæðismenn, til þess að ræða
um stjórnarskrármálið. Var svo einn hinna siðar nefndu,
Einar Arnórsson, skipaður ráðherra 4. maí. Stjórnarskráin
var staðfest 19. júní, jpeð skilmálum, sem meiri hluti þings
taldi ,,í fullu samræmi við fyrirvara Alþingis". Landsfáni var
og löggiltur. En út af þessu klofnaði Sjálfstæðisflokkurinn.
Voru þeir, sem fylgdu Einari Arnórssyni að málum, nefndir
»langsum“-menn, en hinir „þversum“-menn.
Eftir að Sigurður hafði látið af ráðherraembætti, var hann
samsumars skipaður sýslumaður í Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu. í ársbyrjun 1917 var hann settur bæjarfógeti í
Reykjavik.
Árið 1916 fóru fram alþingiskosningar. Sigurður Eggerz
var efstur á lista „þversum“-manna við landskjörið það ár.
k ékk sá listi næsthæsta atkvæðatölu þeirra 6 lista, sem i
kjöri voru, og kom að tveimur mönnum. Sat Sigurður siðan
á þingi sem landskjörinn þingmaður til 1926.