Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 62

Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 62
58 Runólfur Sveinsson ANDVARl Enda þótt siðustu áratugina hal'i átt sér stað allmiklar breytingar og framfarir i búskapárháttum íslenzkra bænda og framleiðsla þeirra hafi aukizt stórum, þá mun staðreynd, að á ýmsum sviðum stendur búskapur á íslandi langt að baki búnaði ýmissa landa í Evrópu og Ameríku. Við erum á eftir öðrum, meðal annars vegna þess, að þjóð- inni var haldið í úlfakreppu stjórnmála fram á þessa öld. Enn fremur erum við fátækir og fámennir og eigum þvi erfitt með að reka okkar eigin visindastarfsemi og tileinka okkur þá tækni, sem nú ryður sér hvarvetna mjög til rúms i land- búnaði. Ég hygg, að nauðsynlegt sé íyrir íslenzka bændur og þá, sem að búnaðarmálum þjóðarinnar starfa, að gera sér ljóst, að aðrar aðalatvinnugreinar landsins, svo sem sjávarútvegur og verzlun, standast betur samanburð og samkeppni við önn- ur lönd heldur en landbúnaðurinn. Raddir heyrast nú um það, allháværar stundum, frá l'ólki, sem ekki stundar sveitabúskap, að íslenzkur landbúnaður eigi jafnvel engan rétt á sér og rnuni aldrei standast sainkeppni við önnur lönd á heimsmarkaði landbúnaðarafurða og jafn- vel ekki á íslenzlcum markaði. Rök þeirra manna, er þessu halda fram, eru nær eingöngu þau, að hægt sé t. d. að selja smjör, flutt vestan frá Ameríku, fyrir hálft verð á við smjör framleitt á íslandi. Og því er haldið fram, að íslenzkir bænd- ur eigi einir sök á því, að þessi mikli munur er á fram- leiðslukostnaði smjörs á íslandi og í Ameríku. Mér er kunnugt um, að framleiðslukostnaður á ýmsum landbúnaðarafurðuin í U. S. A. er ekki helmingur á við þap> sem hann er á sams konar vörum á íslandi. Mér er einmg kunnugt um, að íslenzkir bændur eiga ekki einir sölc á Þv*> að svo er. Því til sönnunar vil ég benda á eftirfarandi atriði- 1. Hnattstaða landsins og erfið veðráttuskilyrði til búrekstrar. 2. Stjórn og veiting fjármuna þjóðarinnar (bankanna) a undanförnum áratugum til sjálvarútvegs, iðnaðar og verzlunar, og meðal annars af þeim ástæðum flótti lólks frá Iandbúnaði í þessar atvinnugreinar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.