Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 26
22
Sigurður Eggerz
ANDVARS
kunnu ræðusnilld sinni og mælsku. Fannst ýmsum sem hann
væri yngstur af viðstöddum. Hjá öllum ræðumönnum kom
það skýrt í ljós, hve iniklum og einlægum vinsældum Sig-
urður Eggerz hefur átt að venjast þann tíma, sem hann hefur
dvalið á Akureyii.“ (Mbl. 2. marz 1945).
Þegar er Sigurður hafði látið af embætti, fluttust þau
hjón til Reykjavíkur. Hugsaði hann með fögnuði til þess að
geta nú gefið sig af alhug að hugðarstörfum sínum, ritstörf-
unum, svo og að starfi í stjórnarskrárnefnd. En þegar uin
sumarið kenndi hann meins í fæti, sem ágerðist svo, að hann
varð að leggjast á sjúkrahús, Landakotsspítala. Þar andaðist
hann 16. nóv. 1945. Jarðarför hans fór fram á alþjóðar-
kostnað, í heiðursskyni við hinn látna þjóðskörung. Biskup-
inn yfir íslandi flutti aðalræðuna í kirkjunni, að viðstöddu
miklu fjölmenni. Athöfninni var að sjálfsögðu útvarpað.
Með Sigurði Eggerz er hniginn í valinn einn þeirra manna,
er mest har á með þjóð vorri á öðrum og þriðja tug þessarar
aldar. Þau ár mörkuðu djúp spor í þjóðlífi voru, merlcum
áfanga var náð í sjálfstæðisbaráttu vorri og stefnan ákveðin,
sú er leidd var til fulls sigurs með stofnun lýðveldisins.
Margir hafa lagt hönd á plóginn, til þess að sá sigur mætti
vinnast, — fleiri en vitað er almennt eða viðurkennt. Sagan
mun bregða þar yfir skýrara ljósi, er tíinar líða, og breyta
í mörgu vorum dómum. En ætla má, að þeim mönnum, er
svo var farið sem Sigurði Eggerz, að þeir báru i brjósti eld-
legan áhuga og sáu jafnan markið, skírt og bjart, frain
undan, verði skipað í veglegt rúm í sölum Sögu, samkvæmt
hinu fornkveðna, að
eldr es beztr
með ýta sonum
olt sólar sýn.