Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 60
Kunólfur Svcinsson
ANDVARI
í>()
Ég varð þess var, að álit ýmsra búfróðra manna vestra á
vélanotkun í landbúnaði færi að verulegu leyti eftir stærð bú-
anna, þannig að minnstu búin gætu ekki komið við fullkomn-
ustu vélanotkun og mundu því eiga erfitt uppdráttar við hlið
stærri búanna.
Ég kynnti mér dálítið rafmagnsmál sveitanna í U. S. A.,
sem gengur þar undir nafninu „rural electrification“. Var full-
yrt, að þar sem strjálbýlið er mest, væri ekki hægt að leiða
rafmagn heim á hvern bæ, með þeim aðferðum, sem nú eru
þekktar við flutning rafmagns.
8. Bændurnir.
1'Bandaríkjunum er nokkuð á 7. milljón bænda. Búskapur
þeirra er ærið misjafn, bæði að stærð og rekstri. Enda er
landið mjög stórt og misjöfn skilyrði til búreksturs.
Kynning min af bændum í U. S. A. er á þann veg, að ég álít
þá góða bændur, og hef ég þá til samanburðar bændur a
Norðurlöndum, t. d. Danmörku, sem almennt eru taldir mjóg
góðir bændur. Þess skal þó getið, að ég álít skilyrði og að-
stöðu til búreksturs viða í U. S. A. betri heldur en á Norður-
löndum. Ég leit svo til, að amerískir bændur liafi fylgzt mjog
vel með tækni og vísindum 20. aldarinnar, og tekið hvort
tveggja í þjónustu sína að verulegu leyti. Þeir rækta jörð
sína vel og eru naskir á að finna, livaða nytjajurtir borgar sig
bezt að rækta á hverjum stað og tíma. Þeir eiga gott búfé og
vinna mjög ötullega að kynbótum þess. Þeir halda afurða-
skýrslur yfir það, svo og ættbækur. Þeir hirða vélar sínar og
hús yfirleitt vel. Þeir fylgjast mjög vel með öllum nýjungu11'
frá tilrauna- og rannsóknarstoíunuin og taka þær sani-
stundis í notkun. Þeir vinna í raun og veru inargir hverju 1
nánu samhandi við þessar stofnanir, enn fremur í náinni
samvinnu við ráðunauta, sem vinna að leiðbeiningum og úl-
breiðslu búvísinda, um leið og þeir örva áhuga bændanna
fjTÍr búskapnuin.